Ofurhetjur.com

Superheros strike!

Saturday - 26.August 2006

21J
Jæja nú fer að líða að settum degi (2. september) og allt er orðið klárt fyrir komu litla engilsins. Við fórum í sónar í síðustu viku til að athuga hvort krílið væri nokkuð sitjandi en svo var ekki sem er alveg frábært! Reyndar snéri það ekki alveg rétt en við krossleggjum fingur og vonum að það snúi sér í fæingunni. Við erum alveg ægilega spennt að fá að vita hvort þetta er stelpa eða strákur því það er nú aldeilis búið að reyna að kíkja í pakkann en án árangurs (3svar sinnum). Þangað til ætlum við bara að láta okkur líða vel á Miðbrautinni (allir velkomnir í heimsókn) og njóta þess að vera spennt og skemmta okkur við að búa til heimasíðu fyrir litlu ofurhetjufjölskylduna.

8 komment

  1. Hah! Þetta er æði =)

    Komment by Anna Sigga — Saturday - 26.August 2006 @ 23:28

  2. hæhæ:) flott heimasíða krúttin mín;)

    Komment by Steinunn — Monday - 28.August 2006 @ 10:54

  3. Jæja, það eru komnar myndir!!! fullt af þeim!!

    Komment by Bryndís — Monday - 28.August 2006 @ 11:35

  4. Svaka flott það sem ég hef séð. Eruð þið algjörir tölvunördar?? Það verður gaman að fylgjast með framvindu síðunnar. Ykkar elskandi mamma.

    Komment by Mamma Gróa — Monday - 28.August 2006 @ 14:14

  5. Hæ hæ elskur, æðisleg síða !
    Núna fylgjumst við spennt með, gangi ykkur sem allra best ! Þetta er svo gaman :O) Lilta STELPAN kemur örugglega sem fyrst í heiminn :O)

    KNús knús

    Komment by Pálína, Íris Antonía og Senegalinn — Monday - 28.August 2006 @ 16:44

  6. Agalega fín síða hjá ykkur :) vonandi á allt eftir að ganga vel og ég ætla nú að fá að koma í heimsókn og kíkja á krílið :)

    Komment by Sonja Gísla — Monday - 28.August 2006 @ 20:16

  7. flott síða;) ég fylgist spennt með..

    Komment by guðrún veiga — Tuesday - 29.August 2006 @ 10:37

  8. FRÁBÆ SÍÐA HJÁ YKKUHEFUR HEIRT Í YKKUR EN SJÁUST VONADI FLÓTLEG YNISLEG FÓLK OG TIL HAMINGJU MEÐ SÍÐUNA KVEÐA ÚR KÓP HUGS AND KISSES SKNAÐAR KVEÐJA SKULI:-):-)R ALLT OF LANG SÍÐAN AÐ MAR

    Komment by skúli guð — Friday - 1.September 2006 @ 05:08

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu