Ofurhetjur.com

Nýjar myndir & tæknistríðni

Tuesday - 19.September 2006

649

Það er nú allt í lukkunnar velstandi hérna hjá okkur ofurhetjunum. Fólk er aldeilis farið að láta sjá sig í heimsókn og allir voða ánægðir með litlu skvísuna enda ekki annað hægt! Patrik Dagur er búinn að fá að knúsa litlu frænkuna og hann er sko BARA góður við hana, kallar hana ,,Lúllu” - ég veit ekki hvort það er útaf því hún sefur svo mikið eða hvort hann er að reyna að segja Snúlla eins og við hin. Hann vill alltaf fá að taka hana og knúsa hana. Hún fór síðan örlítið að gráta um daginn úr svengd og ég var að segja Patrik að hún væri örugglega svöng og þetta lét hann nú ekki segja sér tvisvar og snaraði sér inn í eldhús og sótti snakk til að seðja svengd litlu frænku. Þorgeir Kristján er líka ansi ánægður með gelluna og er voða duglegur að passa hana og leyfa henni að kúra með sér. Það eru sumsé allir hugfangnir af þessu litla gulli sem hana hitta enda mjög svo sjarmerandi skvísa hér á ferð!

Við erum með opið hús hérna ef einhverjum langar að kíkja á okkur - bara að hringja á undan sér og láta vita (svo við getum sópað draslinu undir sófa áður en fólk birtist).

..Tæknin er nú eitthvað búin að vera að stríða okkur hérna tölvunördunum og heimasíðan er ekki búin að vera að virka sem skildi en við erum að vinna í því að laga þetta allt saman svo allir geti fylgst grannt með!

..Við settum inn fullt af nýjum myndum í ,,Fyrstu dagarnir heima” albúmið áðan! DANSI DANSI =)

6 komment

  1. Hún er svooo falleg … ég bara get ekki hætt að skoða myndirnar af henni :) …. gott að allt gengur vel og vonandi hittumst við sem fyrst :)

    risaknús frá Ak til ykkar allra
    Katrín og gullmolarnir

    Komment by Katrín frænka — Tuesday - 19.September 2006 @ 22:26

  2. Æðislegar nýju myndirnar, hún verður bara sætari og sætari með tímanum:D Get ekki beðið eftir að koma og knúsa hana. Hafið það gott krúttí krútt.

    Komment by Guðný — Wednesday - 20.September 2006 @ 12:57

  3. Hún er sko algjör dúlla… og þokkalega lík þér líka Anna Sigga :) En við verðum að fara að kíkja í heimsókn við tækifæri og fá að sjá litla gullmolann…

    Komment by Sonja Gísla — Wednesday - 20.September 2006 @ 17:26

  4. Hún er náttúrlega bara fallegust af öllum, æðislegt að fá að koma og knúsa hana um daginn :)

    Komment by Sigurlaug — Wednesday - 20.September 2006 @ 18:51

  5. Rosalega er hún sæt , ohh maður bráðnar alveg.

    Gaman að sjá nýju myndirnar, held að ég sé að fara með rétt mál hér en er þetta ekki græna samfellan sem keypt var í Kína og Patrik og Íris eru búin að nota bæði :O) Ég held það, ansi notaleg samfella :O)

    Hlakka til að sjá ykkur !! P.s kem´til Rvk um miðjan okt og var að spá hvort ég mætti ekki snigla mér með Steinku og aðeins fá að knúsa lúlluna ?

    Knús knús til ykkar

    Komment by Pálína, — Wednesday - 20.September 2006 @ 19:01

  6. hehe jú Pálína mín, rétt til getið…græna góða samfellan:):) Svo þegar þessi gella hættir að nota hana tekur næsta gella við:)

    En Krúttin mín á Miðbrautinni…hvernig væri að koma með nýja færslu…maður kemur hérna inn 500 sinnum á dag og vantar eitthvað svona til að hlýja hjartaræturnar…veit að Pallan er mér sammála og eflaust margir aðrir virkir lesendur:):) Ossa gott að myndasíðan er komin í lag…:);)

    knús
    Steinkan og co í Lautó:)

    Komment by Steinunn — Sunday - 24.September 2006 @ 21:41

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu