Ofurhetjur.com

Spegill, spegill herm þú mér..

Tuesday - 26.September 2006

695

Litla skvísan dafnar ótrúlega vel! Hún er náttúrulega fallegasta og besta barnið af þeim öllum (það finnst okkur foreldrunum að minnsta kosti). Hún stækkar alveg ótrúlega hratt og mér finnst eins og það hafi verið í gær sem við vorum á leiðinni upp á fæðingadeild - ótrúlegt hvað tíminn flýgur þegar lífið er svona stórkostlegt :D Ljósmóðirin kom áðan og vigtaði litlu gelluna og hún þyngist vel og er komin með kennitölu og alles! Við skötuhjú og litla kríli ætlum að skella okkur í fyrsta fjölskyldugöngutúrinn á eftir í sólinni vííííí!

..Við mæðgur skelltum inn alveg fuuullt af nýjum og skemmtilegum myndum!

4 komment

  1. vei vei vei, ég get ekki hætt að skoða myndirnar:D Mér finnst hún sko líka fallegust og best:D Þó ég eigi ekkert í henni… eða jú kannski bara smá:) Hlakka endalaust til að fá að sjá hana í alvöru. Haltu svo bara áfram að stækka litla frænka.

    Komment by Guðný danske pige — Tuesday - 26.September 2006 @ 19:28

  2. hæhæ krútta litla og fallega fjölskylda:)
    Þetta er nottlega flottasta gellan í bænum :):) Endilega kíkið á frænku í kópó í dag svo hún læri ekki yfir sig:):)

    knús Steinka frænka og co

    Komment by Steinunn — Wednesday - 27.September 2006 @ 08:29

  3. Auðvitað bara sætasta pæjan í öllum bænum. Best í heimi að koma og fá að knúsa hana…LANGflottust!!! :)

    Komment by sigurlaug — Thursday - 28.September 2006 @ 08:40

  4. hæhæ krúttudúllusnúllan þín:) og nottlega foreldrarnir líka hehe…ég held að það sé kominn tími á nýja færslu…verður nú að segja frá labbitúrunum sem þú hefur farið í síðustu daga og svona:) algjör snúllurúlla:)

    knús í krús
    Steinunn, Siggi, Patti og bumbustelpan sem fer bráðum að koma;);)

    Komment by Steinunn — Friday - 29.September 2006 @ 20:40

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu