Ofurhetjur.com

Ísabella Sól Sigurðardóttir!

Saturday - 18.November 2006

2165
Við eiguðumst litla yndislega frænku í gær! Hún er litla systir hans Patriks Dags og dóttir Steinunnar og Sigga. Mamman mín var viðstödd þegar hún fæddist og amma Drífa líka. Steinka frænka var alveg ótrúlega dugleg og voru þær mæðgur bara komnar heim strax í gær. Hún fæddist klukkan 00:08 17.nóvember og var 17 merkur og 55 cm, stór og flott gella. Ég held að hún hafi verið búin að heyra af því hvað ég er orðin stór (enda orðin 10 vikna) og ætlað að reyna að ná mér áður en hún kæmi í heiminn! Ég er sko búin að fá að sjá hana og liggja hjá henni og við erum bara strax orðnar ótrúlega góðar vinkonur! Litla sæt var svo skírð í gærkvöldi (allt á sama sólahringnum) og fékk hún fallega nafnið Ísabella Sól! Mamma mín segir að við séum sætustu frænkur allra tíma og ég er bara ekki frá því að það sé rétt hjá henni. Við setjum inn fleiri myndir af litlu bjútíbollunni bráðlega - Á myndinni uppi er ríkasta amman í bænum með Ninju Tíbrá og Ísabellu Sól!

Ég og mamma erum annars bara búnar að vera heima voða mikið upp á síðkastið. Mamma mín er svo paranojd að hún þorir ekki með mig út í þennan kulda því hún vill ekki að ég fái illt í lungun mín aftur. Ég er sko orðin þvílíkt stór (enda orðin stóra frænka) og vil bara fá að sitja og spjalla eins og hitt fullorðna fólkið. Helst af öllu væri ég til í að standa en mamma mín leyfir mér það nú ekkert alveg strax því fæturnir mínir eru ennþá svo litlir og linir - þessar mömmur! Mér er búið að vera eitthvað illt í bumbunni minni upp á síðkastið og er oft voða lítil í mér þegar við eigum að fara að sofa á kvöldin því þá líður mér oft illa. Ég vil helst af öllu kúra í fanginu á mömmu og pabba og er algjör brjóstabína og það er best að kúra á brjóstinu, þó ég sé ekkert endilega svöng því það er sko notalegast að liggja í mjólkurlyktinni og sofna. Ég er líka harðákveðin í því að vaggan er bara til að leika sér í en ekki til að sofa í og læt aldeilis heyra í mér ef mamma og pabbi eru eitthvað að gleyma því. Það er líka langmesta hlýjan á milli mömmu og pabba og þeim finnst hvort eð er rosa notalegt að hafa mig í millunni þannig að það er bara minn staður. Ég hjala og spjalla allan daginn og brosi alveg heilan hring. Augun mín eru risastór og falleg og ég get enganveginn ákveðið mig hvort þau eiga að vera brún eða blá. Jæja, ég ætla að fara að fá mér að súpa hjá múttunni minn!

Knús - Ninja Tíbrá STÓRA FRÆNKA!

6 komment

  1. Vá hvað þú ert heppin Ninja Tíbrá að eignast svona sæta frænku. Þið eruð æðislegar saman og verðið án efa bestu vinkonur. Innilega til hamingju með þetta allt saman og gaman að heyra svona mikið frá þér. Þú verður örugglega bara farin að tala áður en ég sé þig næst…. og hlakka endalaust til:)

    Komment by Guðný besta frænka;) — Sunday - 19.November 2006 @ 17:28

  2. SætuSÆTU frænkur…og svo á bara að stinga af til útlanda!! ég er komin með alveg þvílík Ninju-fráhvarfseinkenni eftir nokkra daga hérna á Akureyri. veit ekki hvernig ég á að lifa þetta af þegar þið flytjið út! Hlakka þvílíkt til að sjá ykkur strax eftir próf!=)

    Komment by Andrea — Monday - 20.November 2006 @ 14:48

  3. Innilega til hamingju með litlu fræknu, nafnið hennar og allt. þið takið ykkur vel út hjá ríkustu ömmu í heimi. Svo sannarlega. Bara halda áfram að vera stolt og gleði ömmu og afa. DUGLEGUST.,

    Komment by Amma Gróa — Monday - 20.November 2006 @ 17:09

  4. Vá æðislegar nýju myndirnar af þér. Held ég sé bara alveg sammála henni mömmu þinni að þú sért fallegasta barnið, hættir bara ekkert að verða fallegri… hvar endar þetta eiginlega;)

    Komment by Guðný besta frænka;) — Monday - 20.November 2006 @ 19:22

  5. ohh hvað þær eru gullfallegar ;)

    Komment by guðrún veiga — Wednesday - 22.November 2006 @ 01:08

  6. Klárlega sætustu frænkurnar í bænum!!!!!!!

    Komment by sigurlaug — Wednesday - 22.November 2006 @ 11:12

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu