Ofurhetjur.com

Jólatréð (r)okkar!

Saturday - 2.December 2006

2580

Við eigum jólatré vei - vei - vei!

Nú eru jólin að koma og allt orðið tilbúið í litla kotinu okkar! Við fengum okkur lítið jólatré því við erum svo lítil fjölskylda, með lítið barn í lítilli íbúð og erum lítið heima. Það er bara mánuður þangað til við flytjum til Danmerkur og ennþá styttra í jólin! Við erum að fara að skreyta piparkökur á morgun í Hvalfirðinum hjá Aggú frænku þannig að jólaundirbúningurinn er í algjöru hámarki. Kertaljós og notalegheit eru sko aðalmálið hjá okkur núna í skammdeginu og yndislegt að kúra fyrir framan fína jólatréð okkar!

Jólaknús til allra!

5 komment

  1. Vá, rosa flott jólatré. Hér í Danmörkinni styttist líka í jólin og er mín bara búin að kaupa allar jólagjafirnar:) Eina sem vantar núna er jólasnjórinn, en kannski fæ ég hann bara þegar ég kem heim á klakann. Jólaknús til ykkar sæta fjölskylda.

    Komment by Guðný besta frænka;) — Sunday - 3.December 2006 @ 18:49

  2. Pant koma í jólastemmninguna til ykkar um leið og ég er búin að afgreiða prófagrýluna=) Þið eruð svo mikil krúúúúúútt! =)

    Komment by Andrea — Monday - 4.December 2006 @ 09:24

  3. hæhæ krúttin min:) ossa fínt jólatréð ykkar:) hlökkum til að kíkja í heimsókn að skoða það:):)

    knús til ykkar á nesið:)
    Kópavogsbúarnir:)

    Komment by Steinunn — Monday - 4.December 2006 @ 21:54

  4. Ji ekkert smá krúttlegt allt saman…ég á líka litið jólatré hérna í dk :) Elska jólin!
    Flottar nýju myndirnar af Ninju og jólatrénu..ekkert smá sætir svipirnir hennar..
    Kossar og knús frá köben :*

    Komment by Sólrún frænka í Köben — Tuesday - 5.December 2006 @ 09:56

  5. Ji hvað litla fjölskyklan ykkar er krúttleg :o)

    Hlökkum til að koma og kíkja á jólastemmarann hjá ykkur

    Komment by Ámundi, Ásta og Elsa Björg — Wednesday - 6.December 2006 @ 10:08

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu