Ofurhetjur.com

Ninja Tíbrá - stoltur íslendingur í þjóðskrá!

Wednesday - 6.December 2006


Loksins er nafnið hennar Ninju Tíbrár komið í þjóðskrá - rúmlega mánuði eftir skírn. Það gengur ekkert að vera Stúlka Friðgeirsdóttir endalaust - sérstaklega ekki þegar maður á svona fallegt nafn! Ninja er sko orðin þvílíkt stór! Það skemmtilegasta er að fara í bað, alltaf þegar hún fer í baðið verður það helst að vera það langt að það þarf að bæta heitu vatni á balann því það er orðið kalt. Ef baðið er eitthvað steypibað lætur mín sko aldeilis heyra í sér þegar hún er tekin uppúr og grætur sáran og fær ekka og alles þannig að baðið er alltaf langt og skemmtilegt. Gellan fær svo alltaf nudd og þægilegheit eftir baðið, áður en hún fer í náttfötin - þetta er sko algjört uppáhald! Hún hjalar og brosir allan daginn og er orðin ótrúlega dugleg að grípa í dótið sitt og sveifla því um allt og skoðar allt í kringum sig. Ninja Tíbrá verður þriggja mánaða á föstudaginn og fer í sprautu að því tilefni á mánudaginn. Það tekur örugglega meira á mömmuna en Ninju því hún lét aldrei í sér heyra á Vökudeildinni þegar hún var stungin oft á dag. Við mæðgur erum annars bara í því þessa dagana að undirbúa fyrir jólahátíðina því þetta er í fyrsta skipti í mínu lífi sem ég er ekki í jólaprófum og er alveg að njóta þess í botn!
Af því að það eru nú að koma jól og fólk hefur verið að spyrja hvernig á að fallbeygja nafnið hennar ákvað ég að skella því hérna inn:

  • nf. (hér er): Ninja Tíbrá
  • þf. (um): Ninju Tíbrá
  • þgf. (frá): Ninju Tíbrá
  • ef. (til): Ninju Tíbrár
2594

4 komment

  1. vá hvað þú ert eitthvað mikið æði!!!

    þú ert nú bara alveg eins og mamma þín… og steinunn!:)

    njótiði þess að hlakka til jólanna skvísur, sjáumst vonandi áður en þið flytjið!

    Komment by Jóa — Wednesday - 6.December 2006 @ 19:45

  2. Ninja Tíbrá flalleg sem aldrei fyrr, jú reyndar hefur verið falleg frá fæðingu. Stoltust amma í heimi

    Komment by Amma Gróa — Wednesday - 6.December 2006 @ 20:37

  3. Og klárlega flottasti íslendingurinn. Hlakka svo til að koma heim og fá að knúsa þig og sjá alla flottu svipina þína. Nú eru bara 17 dagar þangað til, víííí.

    Komment by Guðný besta frænka;) — Wednesday - 6.December 2006 @ 22:16

  4. hæhæ elsku sæta vinkna min, jæja núna er smá pása milli prófa hjá “nonna frænku” spurning að maður reyni að hitta á ykkur mæðgur á morgun :)

    Komment by Sigurlaug — Thursday - 7.December 2006 @ 14:03

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu