Ofurhetjur.com

Heimsókn hjá pabba.

Monday - 11.December 2006

2733

Ég kíkti í heimsókn til pabba. Árið er 1979 og pabbi er með miklu meira hár en ég þó við séum jafngömul. Samkvæmt nýjustu sköðunarkönnunum þyki ég hafa höfuðlagið hans pabba (og munnsvipinn líka samkvæmt Sigrúnu frænku í Mosó) en annað fæ ég frá henni mömmu minni (enda viill ég líka mikið frekar líkjast henni, pabbi er svo loðinn). Okkur pabba kom vel saman í fortíðinni enda semur okkur einstaklega vel í nútíðinni og ég brosi og hlæ þegar pabbi lætur eins og hálfviti. Nú fer að styttast í að við flytjum öll til Danmerkur, pabbi bjó þar þegar hann var lítill. Við stoppum örugglega þar sem hann bjó og þá skal ég sýna ykkur myndir af okkur pabba saman í sandkassanum hans (í fortíð og nútíð). Pabbi og mamma eru orðin voða spennt og eru alltaf að spá í hvað þau eiga að hafa með, svo lengi sem þau muna eftir mér þá er mér alveg sama hvað fer í gáminn. Þau eru líka búin að lofa mér því að stóri fuglinn muni fara með okkur eitthvert suður á bóginn um páskanna svo við getum spókað okkur á ströndinni og orðið kaffibrún.

2 komment

  1. Hey! Munnsvipurinn er frá mér! ;)

    Komment by Mamma — Monday - 11.December 2006 @ 00:22

  2. Ninja Tíbrá er nú aðeins meira lík mömmu sinni en pabba sínum, allavega miðað við barnamyndirnar. Fyrsta myndin af Önnu Siggu er bara alveg eins og það sé Ninja Tíbrá. Annars eruð þið náttlega öll alveg gullfalleg;)

    Komment by Guðný besta frænka;) — Monday - 11.December 2006 @ 11:20

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu