Ofurhetjur.com

,,FYRIRGEFÐU, ERT ÞÚ MEÐ VESEN?”

Tuesday - 12.December 2006

Ég fór með Ninju Tíbrá í ungbarnaskoðun í morgun. Ninja átti tíma kl.10:00 og þegar ég var passlega búin að klæða hana í útigallann heyrðust þessar líka þrumur og eldingar! Það þurfti að sjálfsögðu að skipta um algalla því hún kúkaði alveg upp í hálsmál. Við mættum því 2 mínútum of seint og ekki þótti mér 2 mínútur tiltökumál. Okkur var sagt að setjast fyrir framan stofuna hjá lækninum sem við og gerðum. Þegar við vorum búnar að bíða í 20 mínútur kom grænlenskt par (að ég held) með son sinn á sama reki og Ninja. Þau settust á móti okkur og biðu líka. 10 mínútum seinna kom gamall maður og settist hjá okkur Ninju og var líka að bíða. Við mæðgur vorum alveg sallarólegar og bara að spjalla. Eftir 50 mínútna bið voru Ninja og grænlenski strákurinn bæði farin að ókyrrast töluvert og ég var orðin frekar pirruð á endalausri biðinni en sagði samt ekkert. Þegar klukkan var orðin 11 og ég komin með algjört ógeð á biðstofunni kemur fram hjúkrunarfræðingur og horfir á mig og segir í pirringstón: ,,Fyrirgefðu, ert þú með vesen?” Þetta var dropinn sem fyllti mælinn hjá mér, ég hafði verið ansi dugleg að bíða róleg, án þess að vera með vesen og nú kom þessi kelling askvaðandi fram og sakaði mig um það vesen sem ég hafði forðast með öllum kröftum að búa til! Það sauð alveg töluvert í mér og ég horfði á óvin minn og sagði fúl: ,,nei, ég er sko ekkert með neitt vesen!!!” Ég reyndi samt að halda ró minni og snappa ekki á þessa ágætu konu. Þegar ég var að hugsa um að segja eitthvað meira rétti grænlenska konan á móti mér upp hendina og sagði: ,,VESEN” og benti á barnið. Litla krúttið hét sumsé Vesen og ég þurfti að nýta gjörsamlega alla mína orku í að grenja ekki úr hlátri uppí hjúkkuna og vesalings grænlenska parið og skammaðist mín að sjálfsögðu alveg ofan í tær fyrir pirringinn og lætin í mér!

7 komment

  1. hehehehehe já það er nú alltaf sama VESENIÐ á þér:):) hehe gaman að þessu…en þú gleymdir nú alveg að segja frá því hvað daman er orðin þung:) en þá ætla ég bara að gera það:) Ninja Tíbrá er nú orðin 6 kg (3 mánaða) og Ísabella Sól er orðin 5.5 kg (3.1/2 vikna) hehe…bara að ná stóru frænku:):)

    en hættu svo þessu veseni kona og farðu að undirbúa jólin hehe:)

    knús Steinkan og co í Kópavoginum

    Komment by Steinunn Gerður — Tuesday - 12.December 2006 @ 17:13

  2. haha, ótrúlega fyndið. En sérstakt nafn að heita vesen!

    Komment by Guðný besta frænka;) — Tuesday - 12.December 2006 @ 20:47

  3. Það var lagið!! Bara um að gera að hakka þetta heilsugæslupakk í sig. Hefðir átt að kýla hana kalda, hljóta að eiga kalda bakstra þarna á stöðinni.

    Komment by Pabbakrílið — Tuesday - 12.December 2006 @ 22:40

  4. ehemm… sem verðandi hjúkrunarfræðingur verð ég að biðja þig um að vera ekki að berja heilsugæsluliðið!!! hehehehe en sjitt, ég meig nú bara næstum því á mig þegar ég las þetta…. bwahahahahahahahahahahahaa…..

    Komment by Bryndís — Wednesday - 13.December 2006 @ 15:44

  5. Vá brilliant saga, ég hefði dáið úr hlátri ef ég hefði verið þarna hahahahahahahahahaha…bara snildin ein!! :)

    Komment by sigurlaug — Wednesday - 13.December 2006 @ 19:21

  6. Hehe… þvílík snilld. Efast reyndar um að ég hefði haldið ró minni svona vel eins og þú ;o)

    Bestu kveðjur úr Breiðholtinu.

    Komment by Kjartan og co. — Thursday - 14.December 2006 @ 12:49

  7. hehe, þetta er ein besta saga sem ég hef heyrt:) ég sprakk úr hlatri:) hafðu það gott:)

    Komment by Jóhanna — Thursday - 14.December 2006 @ 22:03

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu