Ofurhetjur.com

Boligønsker i Aalborg

Thursday - 14.December 2006

2657

897

Líkar mæðgur? Á efri myndinni er ég í fanginu á Steinku systur og á neðri myndinni er Ninja Tíbrá á svipuðum aldri - erum við ekki líkar?

Núna eru bara rétt rúmar 3 vikur í að við flytjum í Baunaveldið! Við skráðum okkur á þennan líka rokksolid biðlista eftir íbúð fyrir ári síðan, vorum heldur betur tímalega í því til að vera alveg viss um að fá íbúð. Við sóttum um íbúðir á ákveðnu kollegíi. Núna - ári seinna erum við enn ekki búin að fá íbúð. Við byrjuðum nr.21 á biðlista og svo fljótlega urðum við nr.7, þegar við svo settum Ninju inní dæmið hoppuðum við upp í sæti nr.3 og svo í september upp í sæti nr.2! Þetta var draumastaða, að okkur fannst, því nú fengjum við alveg bókað íbúð! Fyrir nokkrum vikum hoppuðum við svo upp í sæti nr.3 (algjörlega röng þróun að okkar mati!) og svo nr.4! Nú voru góð ráð dýr því þá var ekki nema mánuður í flutninga. Líkurnar á því að við fáum þessar íbúðir sem við sóttum um fyrir ári síðan eru afar litlar. Þessi vika er því búin að fara í íbúðarleit og símtöl á dönsku. Við erum búin að sækja um á 6 öðrum kollegíum þar sem við erum nr.1 á biðlista en erum hins vegar búin að bíða þar svo stutt og erum að sækja um svo seint að þetta er allt í óvissu, það gæti þess vegna verið búið að úthluta þeim íbúðum sem eru að losna. Við biðjum bara til Guðs að einhver ákveði að hætta í skóla um áramótin og flytja út úr íbúð sem við sóttum um svo við getum fengið íbúð! Við krossleggjum því fingur og vonumst eftir að fá íbúð í jólagjöf!

Eeeen, við vorum að fá óóóótrúlega skemmtilegar leyndó-fjölgunar-fréttir rétt í þessu við mæðgur og við erum alveg hreint æææææsispenntar! Næsta ár verður ótrúlega skemmtilegt og inniheldur leikfélaga fyrir Ninju Tíbrá (ekki samt systkini ef einhver giskaði á það)! Ég lofa að segja frá því þegar það má gera þetta opinbert!

3 komment

  1. vá hvað þið eruð líka!! alveg eins sko!:)

    var líka að skoða gömlu myndirnar af þér og man nú eftir nokkrum þeirra, gat nú ekki annað en brosað!:)

    man þegar við vorum oft að leika okkur saman á lambeyrarbrautinni og man sérstaklega eftir einu atviki þegar Þorgeir var að vinna hjá kók þá kom hann einn daginn heim með 1/2 kók og lítinn snakkpoka á mann handa okkur og þvílík gleði sem varð!! hehe

    man líka eftir köflótta kjólnum sem þú ert í á einni myndinni, mér fannst hann alltaf svo geggjað flottur! man að ég og Ragga vorum alveg æstar í að fá svona þannig að það endaði með því að sniðið var tekið af þínum og saumaðir tvö stykki handa okkur systrum! við linntum ekki látum fyrr en við fengum alveg eins og þú!:)

    en jæja það er aldeilis að maður getur “talað” þegar maður á að vera að læra!:) vona að allt gangi vel í íbúðarleitinni…
    heyrumst skvísur!:)

    Komment by Jóa — Thursday - 14.December 2006 @ 23:52

  2. Ég hlakka svoooo til í að fá ykkur hingað út og veit að þetta mun allt ganga vel hjá ykkur. Það gerir það alltaf;) Og ef í hart fer þá er ykkur alltaf velkomið að gista í höllinni minni:D Hafið það gott og ég sé ykkur eftir aðeins 6 daga, vííííi

    Komment by Guðný besta frænka;) — Sunday - 17.December 2006 @ 12:24

  3. Ég er nokkuð viss um að AKU eigi að redda ykkur íbúð tímabundið þangað til þið fáið það sem þið sóttuð um. Held að það kallist boliggaranti eða eitthvað þannig. Man það ekki alveg. Hugsa allavega að þið þurfið nú ekki að hafa allt of miklar áhyggjur.
    Gangi ykkur annars vel :D

    Komment by Ríkey — Friday - 22.December 2006 @ 14:06

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu