Ofurhetjur.com

Ferðalag í ofsaveðri

Sunday - 14.January 2007

Við erum komin aftur til Danmerkur eftir mikið og langt ferðalag. Við höfðum það ótrúlega gott í Sverige hjá Ámunda, Ástu og Elsu gellu, borðuðum dýrindis jólamat og spiluðum fram á rauða nótt. Í nótt og dag var aftakaveður í Svíþjóð og þrír eru látnir sökum óveðurs en við kipptum okkur ekkert upp við það og skelltum okkur út á strætóstoppistöð og fórum af stað til Danaveldisins. Við tókum 4 strætóa (því lestin frá Lundi til Malmö gekk ekki sökum ofsaveðurs) og 2 lestir og komumst loks til Guðnýjar rétt eftir átta í kveld. Ninja Tíbrá var alveg í essinu sínu í lestinni og heillaði lítinn sætan hálfsárs tyrkjagaur í lestinni upp úr skónum.

Við vildum bara láta vita af okkur því veðrið var svo tryllt og einhverjir búnir að senda áhyggjufull sms í dag! Knús til allra frá Danaveldispakkinu og Ninju törkílover!

4 komment

  1. Já var einmitt hugsað til ykkar, æðislegt að heyra að allt gangi vel :) Hlakka til að heyra meira frá ykkur :)

    Komment by sigurlaug — Sunday - 14.January 2007 @ 22:09

  2. gott að vita að þið eruð óhullt í þessu veðri;) Söknum ykkar mest í heimi
    knús Steinka og co:)

    Komment by Steinunn Gerður — Sunday - 14.January 2007 @ 23:29

  3. Það er nú auðvelt að heillast af henni Ninju! Þið verðið að passa hana fyrst strákarnir eru strax orðnir skotnir í henni :)

    Komment by Elísabet — Monday - 15.January 2007 @ 18:13

  4. Hæ Rúsína og co…

    Já svo að þið eruð flutt til Danmerkur… Það er frábært.

    Ég verð að kíkja til ykkar í heimsókn við tækifæri. Það tekur rúma klukkustund með lest að renna til ykkar, eins og þú mannst þá bý ég í Horsens sem er rétt við Árhús. Ég var að klára prófin mín sem gengu rosalega vel. Ég fékk 11 í einkunn. Svo verð ég í frýi í einhvern tíma þangað til næsta önn byrjar.

    Þið hafið ekki verið að ferðast á besta tímanum hugsa ég vegna þess að það er búið að vera geggjað veður í allan vetur, svo eini stormurinn sem er búin að vera hittir á þegar þið eruð að ferðast… En frábært að allt hafi sloppið vel til og að rúturnar hafi gengið. Stundum í svona tilfellum er bara allt stopp… Sem er alveg fáránlegt.

    Allavega veðum í bandi… Þið eruð ávallt velkomin til Horsens ef þið viljið skoða ykkur um og kíkja í heimsókn.

    Har det godt…
    Venlig Hilsen, Björn Magnús.

    Komment by Bjössi Danski — Tuesday - 16.January 2007 @ 10:43

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu