Ofurhetjur.com

Go’ morgen Danmark!

Wednesday - 17.January 2007

Jæja, þá erum við komin heim í Ålaborgina okkar. Við fengum íbúðina um leið og við komum og gistum því fyrstu nóttina í nótt. Við erum búin að reyna að ná í Flyttemand Nielsen sem var að flytja fyrir okkur dótið hans Fritz hérna í Ålaborg og enginn svarar. Við vorum farin að halda að þessi ágæti maður hafi tekið peningana okkar (sem við borguðum fyrir að flytja dótið) og hent dótinu okkar hlæjandi í sjóinn og dansað trylltan dans á meðan hann horfði á það sökkva. Við náðum svo núna rétt áðan í eitthvað annað fyrirtæki sem er í samstarfi með Flyttemand Nielsen félaga okkar, semsagt þau sem eru að geyma dótið sem Nielsen flutti fyrir okkur, og í ljós kom að þessi ágæti maður hefur ekkert látið sjá sig og ekkert hefur til hans spurst í lengri tíma! Við megum sumsé koma á morgun og sækja dótið okkar sem er þar í geymslu því Nielsen sem átti að flytja það til okkar fyrir tveimur dögum virðist ekkert ætla að flytja fyrir okkur, enda er hann horfinn af yfirborði jarðar. Á morgun er sumsé planið að leigja bíl og fara í Jysk Sengedunslagerinn (Rúmfatalagerinn) og kaupa það sem okkur vantar (kommóðu, óhreinatauskörfu og eitthvað) og fara líka í Bilka (riiiiiiiisa stórverslun þar sem allt í heiminum er til) til að kaupa bleyjur á litla silkirassinn okkar sem ekki þolir neinar bleyjur nema Pampers og fara svo að sækja dótið okkar. Bilka og Rúmfó eru sumsé aðeins útúr borginni og dótið okkar er í Nörresundsby sem er líka aðeins útúr þannig að það er bara fínt að við ætlum að leigja bíl til að klára að gera kósý hérna hjá okkur.

Við erum búin að vera bara í reddingum síðan við komum hingað, gerðum heiðarlega tilraun til að skrá okkur inn í landið en eigum að koma aftur seinna með útfyllta pappíra (álíka mikið vesen og að sækja um fæðingarorlof), keyptum okkur internettengingu og sjónvarpstengingu, fórum í skólann hans Friðgeirs til að redda málunum með síðustu önn og fórum í heimsóknir í gær. Við fórum í gær og kíktum á litla krúttstrákinn hjá Hauki og Ríkey (sem ég vil endilega fá að kalla Alla litla) og fengum hjá Eyjólfi og Maju lánað ýmislegt til að lifa af fyrstu dagana hérna.

..Við erum annars bara ó svo hress hérna í kósý-kotinu okkar á vindsænginni og söknum allra íslendinganna okkar ósköpin öll! Knús til allra heima!

5 komment

  1. Hæ elskurnar ! Gott að það gekk vel hjá ykkur, og vonandi heldur það bara áfram ;) Verið dugleg að pósta myndum af prinsessunni !

    Baunakveðjur,
    Nanna, Helgi og Árný Lilja

    Komment by Nanna — Wednesday - 17.January 2007 @ 21:22

  2. ó mæ god hvað við söknum ykkar litlu danskarar!!!! vorum að skoða myndir af Ninjunni okkar og Patti er ekkert að skilja það hvar hún er…hún er bara HEIMA eða í MINNUNNI hehe;) knús í klessu og biðjum að heilsa Kírey og þeim hehe
    Steinka og grísirnir þrír

    Komment by Steinunn Gerður — Wednesday - 17.January 2007 @ 21:34

  3. Gott að þið hafið það gott í nýju íbúðinni, hlakka til að koma og kíkja á slottið þegar allt er orðið reddý. Hafið það gott í Álaborginni:)

    Komment by Guðný — Wednesday - 17.January 2007 @ 22:51

  4. BILKA er nattla bara besta budin i heiminum…

    Komment by Bjøssi — Thursday - 18.January 2007 @ 10:25

  5. Mikið ógeðslega langar mig að koma bara strax í heimsókn til ykkar. Erum eiginlega ekki búin að gera annað en að liggja í flensu og botnlangakasti síðan þið fóruð og ég er alveg farin að þrá það að komast í ferskt loft og félagsskap….ekki að jakob sé slæmur ;-) Gott að þið séuð búin að koma ykkur fyrir og aldrei að vita nema ég banki uppá hjá ykkur bráðum =) Knús og kossar til ykkar og óendanlega mikið sakn!!!!

    Komment by Andrea — Thursday - 18.January 2007 @ 15:31

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu