Ofurhetjur.com

Telefónónúmeró

Saturday - 27.January 2007

3612

Sjúbbídú! Við erum loksins búin að fá dótið okkar! Ég sit hérna í öllu draslinu að reyna að sannfæra mig um að nú þurfi ég aldeilis að fara að taka til. Friðgeir og Ninja Tíbrá fóru niður í bæ til að skila verkefnum, kaupa hillur og fá lánaða borvél til að setja upp gardínur og fleira skemmtilegt þannig að ég er bara ein hérna í kotinu - ótrúlega skrítið!

Hérna hefur verið upp á síðkastið þvílíkur kuldi! Þegar litið er út um gluggann lítur út fyrir að vera besti sumardagur ársins á Íslandi en svo þegar maður hættir sér út nístir kuldinn alveg inn að beini, ekki íslenskur kuldi, slydda, snjókoma og brjálað rok heldur bara stilla og sól og þurr kuuuuuuuuuuldi! Mér finnst þetta mjög merkilegt!

Ég fékk danskt símanúmer í póstinum áðan og Friðgeir fær sitt líklegast bara í næstu viku. Síminn hjá mér er: 0045 2990 8981. Það er nú ekkert flókið að muna, 0045 er bara landsnúmerið, 2990 er eini parturinn sem er flókinn og er ekki einu sinni það flókinn og 8981 er eins og endirinn á íslenska númerinu mínu!

Jæja, ég ætla að fara að drífa mig í að gera fint hérna hjá okkur í litla Ålaborgar-kotinu okkar!
Knús til allra heima og milljón sakn!

7 komment

  1. Þegar ég dvaldist í Danmörku var mér líka alltaf svo kalt, sama hversu vel ég var klædd náði kuldinn mér alltaf! Gangi ykkur vel að koma ykkur fyrir :)

    Komment by Elísabet — Saturday - 27.January 2007 @ 16:36

  2. Frábært að þið eruð loksins búin að fá dótið ykkar. Fæ þá kannski að borða með alvöru hnífapörum og drekka úr öðru en kertastjaka næst þegar ég kem í heimsókn;) Nú get ég líka misst mig í að hringja í ykkur sæta fólk. Hafið það gott…

    Komment by Guðný — Saturday - 27.January 2007 @ 18:28

  3. hellú hellú:) Gaman að þessu með danska númerið…núna er bara að fá sér almennilegan netsíma sem hægt er að hringja í hehe:) Knús knús og sakn í tætlur
    Mamma, pabbi og Doddi, Steinka, Siggi, Patti og Ísabella

    Komment by Kópavogsgengið — Saturday - 27.January 2007 @ 20:00

  4. p.s. áfram ísland sem er komið áfram í 8 liða úrslitin hehe:)

    Komment by Kópavogsgengið — Saturday - 27.January 2007 @ 20:00

  5. æææðislegar nýju myndirnar:) Greinilegt að litla snúllan okkar er að flýta sér að stækka:) Gaman að sjá líka smá myndir úr íbúðinni:) Þið verðið að setja inn nokkrar svoleiðis myndir svo maður geti séð ykkur fyrir sér almennilega hehe:) Knúsiknús
    Steinkan og gríslingarnir

    Komment by Steinunn og gríslingarnir í Kóp — Monday - 29.January 2007 @ 00:19

  6. Fyrr má nú segja… Það er alveg hárrétt þetta hjá þér með kuldan, það lítur út fyrir að vera geggjað veður en svo þegar út er komin ætlar maður að krókna… En ég get huggað þig með því að þú gleymir þessu öllu í sumar þegar hitinn fer að koma, það vorar miklu fyrr hérna úti heldur en heima og það er sumar veður fram að jólum.

    Nú mælir maður bara með stórri loðskins rússahúfu úr héra og mjöööög þykka vetlinga úr handprjónaðri ull. Þetta er bara stemning…

    Kær kveðja úr suðrinu… Horsens.
    Bjössi

    Komment by Bjossi — Monday - 29.January 2007 @ 07:47

  7. Jiiii hvað Ninja er mikið krúúúúúttt, ótrúlega sætar myndir!=) Var að reyna að rýna í þær og reyna að sjá hvernig íbúðin er…þið verðið að setja inn nokkrar svoleiðis þegar allt er komið á sinn stað!
    Er búin að vera að reyna að ná þér á msn…luma á einu slúðri sem ég er að drepast að deila með þér!=)
    Risaknús úr kópavoginum,
    Andrea

    Komment by Andrea — Monday - 29.January 2007 @ 12:13

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu