Ofurhetjur.com

How do you like Iceland?

Thursday - 1.February 2007

3713

Icelandair bauð okkur mæðgunum tilboð sem við gátum ekki hafnað! Við bókuðum okkur ferð heim til Íslands mánudaginn 20.febrúar og verðum í 2 vikur, fljúgum aftur heim mánudaginn 5.mars! Við eigum eftir að sakna Friðgeirs alveg óendanlega mikið en hann verður hvort eð er á fullu í skólanum á þessum tíma. Við erum sko ekkert smá spenntar enda er margt að gerast í febrúar og mars, Patrik Dagur verður 2 ára 16.febrúar, Siggi 26 ára 2.mars, Steinunn 25 ára 22.mars og Þorgeir Kristján verður 11 ára 24 mars! Við viljum sko ekki missa af öllum þessum SPANGARLAUSU-partýum sem ég legg til að verði öll haldin á meðan við mæðgurnar erum á klakanum! Ég bind svo vonir við að Sigurlaug mín haldi líka tryllt afmæli þarna á þessum tíma ef hún heldur upp á afmælið á annað borð! Ég sé svo fram á að ég og Andrea höldum tveggja manna slúðurpartý og tölum um nýjasta slúddann! Friðgeir er byrjaður í skólanum á fullu og byrjaður á svokölluðu ,,miniproject” sem er eins og Hörpunámskeiðin í HR. Þetta er voða skemmtilegt og spennandi allt saman! Hann er í skólanum til 19:00 í kveld þannig að þetta er allt á góðri siglingu. Þetta nær allt saman hápunkti þegar ég og Ninja Tíbrá verðum á Íslandi, sem er bara glæsilegt!

Við keyptum stútakönnu fyrir Ninju Tíbrá í gær svo hún venjist á að drekka bara úr svoleiðis í staðinn fyrir pelanum þegar hún fær vatn og svoleiðis. Við bjuggumst nú ekki við mikilli flugeldasýningu þegar við létum hana fá könnuna í gær og héldum að það tæki aldeilis tíma að venjast henni en hún tók könnuna og stakk henni upp í sig og fékk sér að súpa! Hún er svo bráðgáfuð þessi elska! Henni finnst voða sport núna að sitja í Tripp-Trappnum og súpa úr stútkönnunni og spjalla! Hún er allt í einu orðin eitthvað svo fullorðin, nánast farin að sitja sjálf og spjallar alveg út í eitt! Henni finnst rosa gaman að leika sér og veltir sér alveg fram og tilbaka, velti sér meira að segja út úr rúminu okkar um daginn en dýnan lá sem betur fer bara á gólfinu og ekki fætur undir þannig að fallið var ekki mikið, kom bara smá kúla! Hún er voða mikið að uppgötva röddina og hvað hún getur gert með henni þessa dagana, hún gargar stundum bara og bregður alveg ægilega, áttar sig ekki alltaf á því að þetta eru hennar læti. Henni finnst líka langbest að syngja sig í svefn, hún vill sko hafa sína duddu og kúra einhversstaðar í einni klessu, annaðhvort í fanginu eða í rúminu eða eitthvað og svo syngur hún sig í svefn og sýgur dudduna sína. Hún elskar líka spegilinn, getur sko alveg spjallað lengi lengi við sætu stelpuna sem þar býr. Hún er öll í því að kyssa og knúsa og gera ,,aaaaaaaa” og það er algjört ææææði! Hún hermir líka þvílíkt eftir og reynir að gera eins og hljóð og hreyfingar, oft með mjög fyndnum afleiðingum. Alltaf þegar ég er að reyna að fá hana til að segja mamma þá segir hún ,,maaaaemma” og ,,maaaaaææææ” sem verður að einhverju ægilega skræku hljóði eins og þegar hún er að gera ,,aaaaa” og þetta vil ég túlka sem mamma! Mér líður eins og ég eigi klárasta barn sem fæðst hefur!

5 komment

  1. jiiiiiiidúddamía…við hlökkum til að fá ykkur heim (þú manst þetta með hlakka og nefnifallið hehe), það verða nú aldeilis partýin svo ekki sé talað um spangarleysið hehe:) knús knús Mamma, Steinka og Ísabella sem sitja hér í Lautó í einkahúmorskasti hehe:)

    Komment by Kópavogsgengið — Thursday - 1.February 2007 @ 12:01

  2. Hlakka endalaust mikið til að fá ykkur heim, vá þá ætla ég sko að knúsa litlu vinkonu mína, búin að sakna ykkar endalaust mikið:) og auðvitað verður afmælisboð handa ykkur, ekki spurning :) Þúsind knús og kossar til DK ;)

    Komment by sigurlaug — Thursday - 1.February 2007 @ 13:31

  3. ohh, en frábært að heyra, þið skvísur eruð sko flottar á því. Hlakka til að hitta ykkur sæta fjölskylda eftir aðeins viku:) Þá ætla ég að halda áfram með að kenna Ninju Tíbrá að segja Guðný…. hún var nú komin ansi nálægt því þarna síðast, hehe.

    Komment by Guðný — Thursday - 1.February 2007 @ 16:56

  4. Það koma náttúrulega gæðagen úr öllum áttum saman í þessa snúllu ;) Vonandi fær maður að sjá framan í ykkur ! ;)

    Komment by Nanna — Thursday - 1.February 2007 @ 22:13

  5. Alltaf gaman að fylgjast með ykkur! Mikið er hún Tíbrá dugleg!!! Ef einhver möguleiki þá væri voða gaman að hitta ykkur þegar þið komið, þó væri ekki nema í örstutta stund! Við fengum fyndinn póst á mailin okkar (kíktu á yahoo póstinn, tengist verkefninu góða að sjálfsögðu). Kveðja frá völlunum… (best að fara að kenna Ásdísi Iðu að segja Ninja Tíbrá…)

    Komment by Bryndís — Friday - 2.February 2007 @ 11:54

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu