Ofurhetjur.com

MAMMA er beeeeest!

Saturday - 3.February 2007

3735

Ninja Tíbrá lá í sófanum í gærkvöldi hjá pabba sínum sem var að læra. Hún var búin að vera voða skemmtileg og frussa og alles og pabbi hennar var greinilega ekki að sýna henni næga athygli því hún teygði hendurnar í áttina að mömmunni sinni sem var að taka til og sagði hátt og snjallt: MAMMA! Mamman trúði þessu varla, bráðnaði að sjálfsögðu algjörlega og réði ekki við sig úr hamingju, snarhætti að taka til og sýndi gellunni alla athyglina! Í dag er hún svo fjórum sinnum búin að segja MAMMA! Fimm dögum áður en bjútíbollan okkar varð fimm mánaða kom fyrsta orðið, ætlar greinilega að feta í fótspor móður sinnar sem sögð er hafa fæðst talandi! Þvílík endemis gleði og hamingja að vera MAMMA!

5 komment

  1. Veiiii til hamingu með fyrsta orðið…að frátöldu “agúúú”=) Bráðgáfaða litla barnið verður örugglega orðið altalandi þegar þið komið heim til íslands! Hlakka endalaust til að sjá ykkur sætu og kláru mæðgur!=)

    Komment by Andrea — Saturday - 3.February 2007 @ 14:29

  2. hæhæ krúttan okkar:) MAMMA er nottlega besta konan og að sjálfsögðu ætlar litla bjútíbollan okkar að feta í fótspor móður sinnar:) Þú er svooo dugleg elsku stelpan okkar, hlökkum geggjað til að sjá þig eftir 17 daga:):)
    knús og kossar
    Patti, Ísabella og co:)

    Komment by Kópavogsgengið — Saturday - 3.February 2007 @ 16:02

  3. Váááá duglega frænka mín, held bara að ég sé stoltasta frænkan í heiminum núna….. hlakka svoo til að sjá þig næstu helgi:)

    Komment by Guðný — Saturday - 3.February 2007 @ 18:49

  4. Elsku dúllur!
    Það er ekki ofsögum sagt að þú líkist móður þinni Ninjan mín ég
    held að það sé alveg satt að hún hafi fæðst talandi.
    Hafið það sem allra best í danaveldi,en samt ekki svo gott að þið
    komið ekki aftur heim.
    kossar og knús,
    Anna frænka og afleggjarar á Akureyri.

    Komment by Katrín frænka — Saturday - 3.February 2007 @ 23:03

  5. hahahahaha…..Þegar Ninja fær ekki athygli byrjar hun bara að tala til að fá hana hahahah :) jæja þá er bara að kenna henni að segja Sigurlaug hehe

    Komment by sigurlaug — Tuesday - 6.February 2007 @ 13:18

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu