Ofurhetjur.com

Grautargella

Monday - 5.February 2007

3757

Ninja Tíbrá fékk að smakka graut í fyrsta skipti í gær. Við ætluðum bara aðeins að leyfa henni að smakka og fara hægt í þetta og leyfa henni að venjast grautnum ef henni þætti hann góður en bara bíða aðeins með þetta ef henni þætti þetta ógeð. Hún japlaði aðeins á grautnum og hló svo ægilega, vildi bara fá meira! Í dag gáfum við henni svo aftur smakk og hún skríkti af gleði og var í þvílíku stuði á meðan hún var að borða og svo þegar smakkið var búið fór hún að háskæla og tárin láku niður kinnarnar. Henni finnst þetta greinilega æði þannig að við ætlum að hafa graut á boðstólnum í kvöldmatinn næstu daga! Hún sofnaði svo bæði í gær og í dag um hálf-tíu og sefur eins og steinn þannig að grauturinn er greinilega alveg málið, enda er hún orðin fimm mánaða gella! Við vonum bara að henni finnist allur matur alltaf svona góður!
..Við settum inn nýjar myndir =)

8 komment

  1. what að bjúúúútííí:) algjörlega gjordjös:) knús og kossar…hlökkum til að fá ykkur heim á klakann:)
    knús
    Steinka, Siggi, Pattinn og Bellan:)

    Komment by Kópavogsgengið — Monday - 5.February 2007 @ 23:12

  2. æ hvað hún er mikil bjútíbolla..;)

    Komment by guðrún veiga — Monday - 5.February 2007 @ 23:40

  3. Voðalega er prinsessan dugleg ;) Við Anna Lilja erum lasnar heima í dag… Gott að vera svona samstilltar með þessi veikindi ;) Erum að skoða Ninju “Tíbblá” eins og Anna Lilja segir !! ;) Hún er sko vinkona hennar Önnu bara svo það sé á hreinu….
    Hilsen til Danmark !

    Komment by Nanna og Anna Lilja — Tuesday - 6.February 2007 @ 16:46

  4. EF hún heldur áfram að líkjast mömmu sinni þá verður ekki langt í að hún fari að heimta “bræðaðan ost í örbylgjuofn og eitthvað að drekka djús”! =) Það er þvílíkt barnaæði í gangi hérnamegin þessa dagana og það skánar ekki við að sjá myndir af sætustu sem við söknum alveg þvílíkt…kannski langar okkur bara svona í kríli útafþví að við fáum ekki lengur litlabarnaknús-þörfinni fullnægt með einni heimsókn á nesið!

    Komment by Andrea og Jakob — Tuesday - 6.February 2007 @ 19:57

  5. - jkµµ[8

    LLj þ” ÐÐ’
    æðp0

    Komment by 0Elsa Björg — Thursday - 8.February 2007 @ 13:47

  6. Lausleg þýðing á færslunni hennar Elsu Bjargar er:

    Til hamingju með fimm mánaða afmælið sæta skvísa

    Komment by Elsa Björg — Thursday - 8.February 2007 @ 15:21

  7. Var kommentið hennar Elsu Bjargar á sænsku? Eins gott að þið þýdduð það því við skiljum ekkert í sænsku.

    Komment by Pabbalingur með alskegg. — Thursday - 8.February 2007 @ 16:44

  8. Hlakka ekkert smá til að fá ykkur mæðgur í heimsókn og knúsa ykkur aðeins :)

    Komment by sigurlaug — Monday - 12.February 2007 @ 13:41

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu