Ofurhetjur.com

Ean 13, fæðubót litlu konunnar.

Thursday - 15.February 2007

3921

Já, eins og titillinn ber með sér þá borðaði Ninja Tíbrá strikamerki í dag. Mamma hennar dró hana með sér í Toys’R'Us og verslaði handa henni Línu Langsokks dúkku (sem er álíka stór og Ninja btw). Ninja var náttúrulega alveg frá sér af hrifningu og réðst á hana með það að markmiði að gleypa hana í sig. Hún náði ekki lengra en að strikamerkinu og gleypti eins mikið og hún gat áður en mamma hennar (þ.e.a.s. Anna Sigga) kippti restinni út úr henni. Við höfðum ekki miklar áhyggjur af þessu svo sem en skemmtum okkur konunglega yfir því undir miðnætti þegar strikamerkið skilað sér út hinu megin, ögn grænna á litinn en þegar það fór inn. Pabba líst vel á dóttur sína :D

6 komment

  1. hehehehe já Ninja mín…gaman að þessum Línudúkkum hehehe:)

    Komment by Steinunn og gríslingarnir í Kóp — Friday - 16.February 2007 @ 01:04

  2. Þetta er nú meiri snúllan;) lang flottust og alltaf einhver ævintýri í gangi í útlöndonum elskurnar mínar. Hlakka til að sjá ykkur dúllurnar mínar og til hamingju með árangurinn Friðgeir minn. Þið standið ykkur vel :) við erum stolt af ykkur þarna í Danaveldinu. Kv Aggú systir og co í sveitinni.

    Komment by Aggú frænka — Friday - 16.February 2007 @ 01:51

  3. Hehehh litla snúllan.

    Trúi því að það hafi verið spennó að reyna gleypa þetta í sig á sem skemmstum tíma :)

    Komment by Pálína — Sunday - 18.February 2007 @ 22:16

  4. Var ekki Lína sögð vera stúlkna hraustust?
    … og Ninja rífur hana í sig :)

    Komment by Nonni — Monday - 19.February 2007 @ 12:26

  5. Ég er gríðarlega ánægð með Ninjuna mína! Lína er náttúrulega bara ótrúlega svöl og frábærust! :)
    Ég vildi að ég væri Lína!

    Komment by Elísabet — Tuesday - 20.February 2007 @ 13:00

  6. hahaha.. eg byrjadi strax ad hlæja ad þessu en svo vissi eg ekki alveg hvort ad þetta hefdi e-d att ad vera fyndið.. en jú þad er gott ad þetta endadi allt saman vel.. ;)

    Komment by sara — Thursday - 22.February 2007 @ 01:11

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu