Ofurhetjur.com

Hann á afmæli í dag..

Saturday - 24.March 2007

4456

Þorgeir Kristján, yndislegasti litli bróðir sem nokkur getur hugsað sér á afmæli í dag! Ég vildi óska þess að ég gæti gefið honum knús en hann verður bara að fá extra stórt knús næst þegar ég hitti hann! Töffarinn er 11 ára í dag - tíminn líður heldur betur hratt!

Á þessum tíma fyrir ári síðan vorum við að keyra um eyðimerkur Ástralíu - þá hringdi ég í Þorgeir Kristján til að óska honum til hamingju með afmælið um miðja nótt svo ég myndi ná honum þegar hann var búinn í skólanum heima á Íslandi! Þá var ég nýbyrjuð að finna fyrir hreyfingum hjá Ninju Tíbrá í bumbunni og ég lá útí eyðimerkursandinum í myrkrinu fyrir utan húsbílinn okkar að horfa á stjörnurnar og tala við Þorgeir Kristján í símann og Ninja Tíbrá sparkaði á fullu, enda er Þorgeir Kristján í algjöru uppáhaldi hjá henni!

Til hamingju með afmælið gullið mitt - þú ert æði! :D

2 komment

  1. Hey girls.. Takk fyrir kvöldið! Ætlaði að henda msninu mínu á þig; rebekka_thormar og svo hotmail.. Heyrumst!:)

    Komment by Rebekka — Sunday - 25.March 2007 @ 00:12

  2. Hehe, úps.. Þetta átti nú bara að vera ‘girl’ :)

    Komment by Rebekka — Sunday - 25.March 2007 @ 00:19

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu