Ofurhetjur.com

Tinky Winky & standandi prakkari

Tuesday - 3.April 2007

5239

Ég held að ég sé almennt ekki hrædd við að breyta til og gera eitthvað róttækt. Ég hef til dæmis farið óendanlega oft í klippingu og oftar en ekki komið út með allt annað lúkk en ég fór inn með. Ég hef verið með hanakamb, rautt hár, dökkt hár, ljóst hár, dökkt undir og ljóst yfir og öfugt, stutt hár, sítt hár, stutt að aftan sítt að framan - sítt að framan og öfugt, sítt öðrumegin og svona mætti lengi telja. Ég hef samt aldrei farið inn á hárgreiðslustofu áður og komið út með fjólublátt hár og bleikar strípur! Þetta gerði ég á laugardaginn og eins ótrúlegt og þetta hljómar þá er þetta bara ansi töff! Þetta á amk að vera það allra heitasta í Danmörku í sumar og það þýðir náttúrulega ekkert annað en að vera týskuþræll í sínu landi! Ég og Tinky Winky í Teletubbies erum alveg keimlík þessa dagana =)

Dagurinn í gær var aaaansi góður! Við vöknuðum við að póstmaðurinn rogaðist upp tröppurnar með stóran pakka! Ég skrifaði undir og hoppaði hérna eins og lítil smástelpa úr spenningi að vita hver hafi sent pakkann og sá svo að pabbi var skrifaður fyrir honum - það kom mér nú svosem ekki á óvart! Við fengum sumsé frábæran og óvæntan pakka frá Íslandi! Veiiii hvað það var mikil gleði á heimilinu! Við fengum risastór íslensk páskaegg og Ninja Tíbrá fékk glás af pökkum frá mömmu, pabba, Þorgeiri Kristjáni, Steinunni, Sigga, Patrik Degi og Ísabellu Sól! Svona óvænt ánægja getur aldeilis bjargað vikunni! Ninja Tíbrá var alveg í essinu sínu hérna og dundaði sér lengi við að opna pakkana og reyndi alla sína takta og nýtti tennurnar tvær til fullnustu við að reyna að ná páskaegginu úr pokanum en allt kom fyrir ekki.

Aðalmálið í kassanum var hitamælir í baðið sem gladdi Ninju Tíbrá ósköpin öll og varð til þess að hún STÓÐ UPP í fyrsta skipti!!! VÁ - ég hélt að ég myndi alveg kafna úr stolti! Hún stóð upp aftur og aftur í gær og er búin að vera að því líka í dag! Ég tók vídjó af því þegar hún stóð upp í annað skiptið. Hún festi löppina aðeins undir sér þannig að mamman kom henni til bjargar á kostnað gæða myndbandsins. =)

Friðgeir kom heim úr skólanum í gær fyrir hádegi og við vorum með ,,hyggedag” og kúrðum yfir vídjó og borðuðum pítsu og nutum þess að eiga flottasta barn í heimi - sem stendur upp! Við mæðgur skelltum okkur svo út í Aalborg Øst í afmæli til Berglindar í gær og ég komst að því að hún er heljarinnar bakari skvísan!

Á myndinni hérna fyrir ofan sjást tönnslurnar tvær ansi vel. Ég setti inn myndaalbúm með nýja Tinky Winky hárinu, standandi Ninju Tíbrá og síðustu dögum! Ég setti líka inn myndir í marsalbúmið fyrir stuttu =)

6 komment

  1. ohh, vá ótrúlega gaman að fá svona óvæntan pakka… bíð alltaf eftir himinhárri ávísun í póstinum, hehe;)
    En hárið er nú bara megaflott… ekki eins rosalegt og ég hélt þegar ég las bloggið….
    Og NInja er náttlega bara duglegust, farin að standa, segja Guðný (Gúgú, hehe) og allt….

    Komment by Guðný — Tuesday - 3.April 2007 @ 16:19

  2. Jiiiiiiiiiiiiiii….vá hvað ég er stolt af litla krúúúúttinu sem er orðin alveg ótrúlega stór og sætari með hverjum deginum!

    Komment by Andrea — Tuesday - 3.April 2007 @ 17:24

  3. ó mæ god hvað þú ert mikill rassálfur Ninja Tíbrá…ekkert smá dugleg:) Tinki Winky er líka ossa flott með svona fjólublátt hár…reyndar alveg sama hvernig liturinn er á hárinu þínu Annsa mín þú ert alltaf töff:) En gott að tískulöggan tekur þig ekki í sumar hehe:) Sakna ykkar alveg endalaust og hafið ossa gaman úti á Kanarí:)
    knús knús Steinka systa og co:)

    Komment by Steinunn og gríslingarnir í Kóp — Wednesday - 4.April 2007 @ 10:39

  4. úff mér varð hugsað til þín í morgun þegar ég reyndi að troða mér í hvert skóparið á fætur öðru en eeeeekkert gekk. og það endaði með því að ég varð að láta mig hafa það að fara í risastórar bleikar gúmmítúttur ;)

    en ninjan verður alltaf sætari og sætari…almáttugur ég get sko ekki beðið eftir litla snáðanum þegar ég skoða myndirnar af henni :) og svo er stubba-hárið þitt alveg ógurlega glæsilegt ;)

    góða skemmtun á kanarí …

    Komment by guðrún veiga og bumban — Wednesday - 4.April 2007 @ 16:51

  5. Takk takk. Ekki leiðinlegt að fá hrós fyrir baksturinn :) En ég verð að segja að mér finnst hárið á þér ansi töff og bjóst ekki við því svona flott lituðu og klipptu þegar þú sagðir mér að það væri fjólublátt með bleikum strípum ! Annars til hamingju með standandi stelpuna!:)

    Kveðja úr austri

    Komment by Berglind — Thursday - 5.April 2007 @ 22:49

  6. Vá hvað þú ert klár. Ég verð nú bara að fara að kíkja í heimsókn og læra einhverjar kúnstir :o)

    Mamma og pabbi biðja að heilsa til útlandanna og vonast til að komast með í næstu páskareisu.

    Knúsiknús

    Komment by Elsa Björg — Tuesday - 10.April 2007 @ 20:45

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu