Ofurhetjur.com

Kanarííííí beibííííí!

Thursday - 29.March 2007

293

Já leidís end djentölmen - við pöntuðum okkur í dag ferð til Kanarí! Þar ætlum við að eyða páskunum í sól og blíðu og ærlegri afslöppun. Við förum eftir viku og verðum í viku! Á páskunum í fyrra vorum við á Cook eyjum í frábæru yfirlæti, með Tíbrána í bumbunni og snorklgleraugun á nefinu og þessir páskar verða eflaust ekki síðri! Við verðum í þriggja herbergja íbúð þannig að Ninja Tíbrá fær sitt eigið herbergi í heila viku - úje! Fyrir utan hjá okkur er sundlaug og ströndin og miðbærinn mjög stutt frá. Við fljúgum frá Álaborg og verðum sótt út á flugvöll og keyrð upp á hótel þannig að þægilegheitin gætu ekki verið meiri og að sjálfsögðu fengum við þetta á trylltu tilboði eins og góðum dönum sæmir! Þetta verður fyrsta ,,fjölskyldupakka” ferðalagið okkar og eflaust dálítið annað en við höfum verið að gera hingað til en erum æsispennt yfir þessari skemmtilegu þróun! Við verðum með stóra íbúð þannig að ef einhver á leið hjá þá er alveg hægt að gista í herberginu ,,hennar” Ninju Tíbrár.

Við foreldrarnir ætlum að einbeita okkur að því að slaka ærlega á og sleikja sólina en Ninja Tíbrá ætlar að einbeita sér að því að sleikja sandinn og brosa hringinn eins og alltaf.

Jeremías á jólaskónum - spenningurinn er alveg að fara með okkur!

8 komment

  1. ÉG GET EKKI BEÐIÐ, þetta verður svaka ferð, við erum búin að henda innkaupalistanum með klósettpappír, pasta og smjörlíki sem helstu forgangsatriði og erum búinn að búa til nýjann með sólhatt og sólarvörn efst á blaði…..

    Komment by Pabbalingurinn — Thursday - 29.March 2007 @ 20:35

  2. Algjörlega æðislegt hjá ykkur litla fjölskylda. Samgleðst ykkur af öllu hjarta. Munið bara sólarvörn 50 eða yfir á ömmustelpuna og stór sólhattur. Svo farið þið sjálf varlega.
    ykkar elskandi mamma og amma

    Komment by Amma Gróa — Thursday - 29.March 2007 @ 23:27

  3. Það er ekki hægt að segja annað en það sé SMÁ öfund í gangi hérna megin!!

    Vonandi hafiði það bara ógeðslega gott og njótið þess í botn að gera EKKI NEITT!;)

    Komment by Jóa — Friday - 30.March 2007 @ 00:22

  4. hæj hó.. eg er einmitt líka ad fara til kanarí um páskana.. neih nu lýg eg.. en mig langadi bara ad segja hæj.. & benda þér á kommentið sem eg setti á mínu/þínu svæði síðuna þina.. ;) & svo vildi eg líka segja þer ad þad gledur mig ad eg hafi getad kætt þig med kommentinu á síðunni hja jóu.. ;) já þetta er komið gott i bili.. ;) hafid þad bara ofsalega gott i sólinni :)

    Komment by sara — Friday - 30.March 2007 @ 14:19

  5. úff…ég væri alveg til í að koma með ykkur…það væri nú ekki leiðinlegt að sjá ykkur öll:):) Knús knús
    Steinkan og gríslingarnir:)

    Komment by Steinunn og gríslingarnir í Kóp — Sunday - 1.April 2007 @ 01:24

  6. ÞETTA VERÐUR SNILLD.
    Hafið það gott um páskana elskur
    Páskakveðjur frá Króknum

    Komment by Pálína — Sunday - 1.April 2007 @ 21:16

  7. Vá æðislegt! Vonandi hafið þið það æðislega gott ;) eitt er samt víst, þið verðið aldrei brúnni en ég um páskana ;) hahaha!!!!

    Komment by Nanna — Monday - 2.April 2007 @ 11:08

  8. vá hljómar ekkert smá vel allt saman, góða skemmtun í sólinni litla fjölskylda :)

    Komment by sigurlaug — Tuesday - 3.April 2007 @ 13:24

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu