Ofurhetjur.com

Pakkar & bikiníeyja

Sunday - 15.April 2007

5833
Við fengum ANNAN óvæntan pakka frá Íslandi áður en við fórum til Kanarí! Fritz var vægast sagt glaður þegar póstmaðurinn hringdi bjöllunni og hljóp niður til að opna fyrir honum því hann var viss um að hann væri búinn að fá bækurnar sem hann var búinn að bíða eftir frá Amazon í aaansi langan tíma. Hann fékk sko heldur betur bækurnar og Ninja Tíbrá fékk pakka! Hún fékk pakka frá Ömmu Gróu og Afa Ásgeiri sem innihélt páskaegg (lykilatriði að eiga nóg af páskaeggjum þegar maður er sex mánaða) og náttföt! Gott að eiga góða að sem þekkja þarfir litla krílisins, henni var nauðsynlega farið að vanta náttföt! Yndislegt að eiga svona frábæra fjölskyldu - sem senda óvænta pakka með nokkurra daga millibili með allskyns dóti og nauðsynjavörum sem ekki er hægt að kaupa í Danmörku og náttfötum sem vantar!

Friðgeir rakaði af sér skeggið sem hann er búinn að vera með síðan um jólin og Ninja Tíbrá trylltist úr hræðslu! Hún var ekki að gúddera þennan mann sem kominn var inn í stofu hjá okkur og vildi fá pabba sinn aftur! Hún jafnaði sig nú samt fljótt og örugglega litla prinsessan okkar.

Guðný skvísa kom í heimsókn til okkar frá Odense áður en við fórum til Kanarí og það var sko æði að fá hana eins og alltaf! Hún er sko langduglegust af öllum að koma í heimsókn! Við grilluðum með Eyjólfi og Maju þar sem Gústi sá liðinu fyrir útrunnum bjór.

Við fórum svo til Kanarí á föstudeginum og Eyjólfur var svo yndislegur í sér að skutla okkur á flugvöllinn. Mér fannst ég vera komin til útlanda að vera komin yfir í Nörresundby (hinummegin við Limafjörðinn) því þangað hafði ég aldrei komið áður. Ninja var draumur foreldra sinna eins og alltaf og stóð sig eins og hetja í flugunum (hljómar eins og skordýrin en er flug í fleirtölu). Hún lék á alls oddi og heillaði alla spánverjana upp úr skónum! Við vorum nokkrum sinnum spurð: ,,WHAT’S HER NAME?” og þá sögðum við eins og gefur að skilja: ,,NINJA” og fengum þá: ,,EEEHHH, NO - I MEAN WHAT IS HER NAME?” Þetta þótti okkur alltaf mjööög fyndið af því Ninja þýðir jú lítil stelpa á spænsku =)

Páskafríið á Bikiníeyju var vægast sagt unaðslegt og við erum ansi ánægð með að hafa bara skellt okkur. Ninja Tíbrá dýrkaði að vera léttklædd og fannst bestast að fara í sund. Við fórum í vatnsrennibrautagarð, spiluðum minigolf, slöppuðum af á ströndinni, gerðum ómeðvitaða tilraun til að láta reiða spanjóla berja okkur og gerðum margt fleira ógleymanlegt. Við borðuðum íslensk páskaegg, slökuðum ærlega á og nutum þess í botn að vera til!

Friðgeir makaði alltaf á sig sólarvörn í bak og fyrir en einn daginn þegar hann var að bera á sig náði hann ekki alveg nógu vel á milli herðablaðanna og um kvöldið var útkoman augljós - hann brann á þessum einum bletti - var eins og dreki hafi spúið á hann eldi á smá blett. Þetta var pínu eins og í auglýsingunni fyrir einhverjar sólarlandaferðir fyrir mörgum árum síðan þar sem pabbinn sofnaði í sólbaðinu og var með handafar á bringunni - óendanlega fyndið!

Þegar við svo komum heim beið okkar enn einn pakkinn! Ohhh það er svo frábært að fá svona pakka! Þessi pakki var frá Lóu, Gulla, Snæfríði Sól, Amelíu Rún, Mána Snæ og ófæddu tvillingunum. Lóa er svo mikil kjarnakona að hún prjónaði á Ninju Tíbrá geggjaðan ullargalla, húfu, vettlinga og ullarsokka! Hún prjónaði svona galla á tvíburana og prjónaði bara einn í leiðinni fyrir Ninju Tíbrá - það er sko dugnaður í skvísunni! Amma Gróa prjónaði líka á Ninjuna æðislega peysu þegar við vorum á Íslandi þannig að Tíbrá litla er aldeilis vel undirbúin fyrir útiveruna. Ég og Steinunn erum svo að prjóna peysur og fleira á skvísurnar okkar þannig að Ninju Tíbrá ætti nú ekkert að skorta. Ninja Tíbrá og Ísabella Sól verða svo eins í dressinu þegar við systur erum búnar með frumraun okkar í prjóneríinu.

Andrea og Jakob ætla að koma í heimsókn til okkar eftir mánuð og jeremías á jólaskónum hvað við erum spennt! Núna mööönum við alla til að panta sér flugfar til okkar og njóta sólskinsins með okkur í maí og júní!

Við settum inn alveg aragrúa af myndum frá því áður en við fórum til Kanarí, myndir frá Kanarí (sem ég skipti niður í þrjú albúm sökum gríðarlegs fjölda) og myndir frá helginni. Úff, þessi færsla er nú orðin ægileg langloka, enda margt búið að vera að gerast!

5 komment

  1. jahh eg las sko & eg myndskreytti líka allt fríið eins & eg hefdi verið þarna líka… hahaha.. ví.. ;)

    Komment by sara — Sunday - 15.April 2007 @ 22:01

  2. Æðislegt að sjá allar flottu myndirnar af ykkur frá kanarí, það hefur greinilega verið mikið stuð á familiunni :) Frábært að þið skemmtuð ykkur sona vel…..sakna ykkar rosa mikið, kemst vonandi í heimsókn fljótlega þúsund knús og kossar frá klakanum :)

    Komment by sigurlaug — Monday - 16.April 2007 @ 02:00

  3. 39 days beibí…39 deys:) úúúú það verður sko stuð :)
    knús Steinka sys

    Komment by Gríslingarnir í Kóp — Monday - 16.April 2007 @ 11:34

  4. ég las og skoðaði hverja einustu mynd gaumgæfilega ;) ohhh mér finnst líka svo gaman að skoða myndirnar af ninju þegar hún er alveg glæný…ég verð svo hrikalega spennt að fá litla prinsinn í fangið ;)

    knús frá kaaaaasóléttu konunni á íslandi ;)

    Komment by guðrún veiga og bumban — Monday - 16.April 2007 @ 14:53

  5. Æðislegar myndirnar frá Kanarí, hafið greinilega haft það rosa gott þar ;)

    Komment by Guðný — Monday - 16.April 2007 @ 22:56

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu