Ofurhetjur.com

Letilíf í Danaveldi

Monday - 23.April 2007

6217
Gleðilegt sumar! Ég og Ninjan erum bara búnar að vera með letidaga síðustu daga, vera bara inni og leika því veðrið hefur ekkert verið skemmtilegt. Ég var að setja inn slatta af myndum frá þessum letidögum okkar. Mats kom í mat til okkar á laugardaginn og lokaverkefnishópurinn hans Friðgeirs kemur í mat á morgun. Á miðvikudaginn er svo Liverpool-leikur og matarboð og á fimmtudaginn koma íslensku mömmurnar og krílakrúttin þeirra til mín í mat og fínerí þannig að það er nóg að gera framundan.

Ninja Tíbrá er svo mikið krútt að ég get hreinlega ekki hætt að horfa á hana! Það er nú kannski eins gott að ég get ekki haft augun af henni því það er jú alveg bannað þessa dagana, hún er orðin rosa prakkari og er farin að skríða á fullu. Stundum fer hún upp á fjórar fætur og skríður þannig en stundum dregur hún sig áfram og spyrnir með tánum og liðast hérna um gólfin eins og lítill ormur. Síðustu daga er hún búin að vera í baráttu við þröskulda heimilisins. Fyrst þegar hún ætlaði að komast yfir einn slíkan og það tókst ekki þá varð hún frekar pirruð, settist upp og rétti hendurnar í áttina til mín (sem þýðir að það á að taka hana upp) og vildi alls ekkert vera á gólfinu á meðan þessi þröskuldur væri þar. Hún er búin að gera margar frekar fyndnar tilraunir til að sigra þröskuldana og loksins er hún búin að finna leið til þess að smokra sér yfir þá og núna er aðalsportið að fara yfir þröskuldana og fram á gang að skoða skóna.

Við keyptum litla uppblásna Bangsímon-sundlaug á Kanarí og það er uppáhaldsdótið þessa dagana, hún klifrar út úr henni og í hana aftur og sest upp rosa hróðug. Hún er öll í því að brasa eitthvað, fer að hillunni, nær í bangsa og dregur hann með sér í sundlaugina og fer að leika, alveg móð og másandi. Henni finnst líka endalaust gaman að vera í hoppurólunni sem við fengum lánaða hjá Tinnu Maríu og skríkir alveg þvílíkt hátt og snýr sér í hringi rosa montin. Eina vandamálið er að hurðagöt í Danmörku eru greinilega hærri en á Íslandi því gellan nær ekki niður úr hoppurólunni þannig að hún er bara notuð sem róla í staðinn, sem er bara ennþá skemmtilegra.

Tíbráin okkar málaði listaverk handa foreldrum sínum um helgina og þegar hún var búin að fá nóg af málingavinnunni stakk hún penslinum upp í sig og smakkaði bláan. Blár smakkaðist ekkert alltof vel enda ekki til þess gerður og þegar ég tók af henni pensilinn þá gargaði hún á mig í pirringstón, greinilegt að það er að koma smá skap í mína ;)

Jæja, tími til kominn að binda endi á þessa leti! Við mæðgur ætlum að drífa okkur í bæinn með Ríkey og Eiríki Ingimari.

4 komment

  1. helllllúúú…

    takk fyrir afmæliskveðjuna mín kæra :) ég sendi þér sms til baka en ég veit ekki hvort að það skilaði sér …

    kveðja
    gveiga og bumban sem vex og vex….og vex

    Komment by guðrún veiga og bumban — Monday - 23.April 2007 @ 16:03

  2. Sælar letidömur! jú, ég lagði sko mikla áherslu á að verkefni væri jú samvinna okkar og það væri þeim fyrir bestu að hafa okkur báðar! Við skulum krossa fingur og vona að Japanir séu vænlegri til styrkja heldur en Íslendingar ;)

    Komment by Ásdís Iða og Bryndís — Tuesday - 24.April 2007 @ 22:51

  3. Litlan er að verða of stór… geturru ekki sett á pásu á hana þarna úti ? ;) loksins þegar maður kemur suður stingið þið af….

    Komment by Nanna — Wednesday - 25.April 2007 @ 14:15

  4. Hæ hæ vá hvað Ninja Tíbrá er falleg:D hefur ekki langt að sækja það svo sem;) sætar myndirnar:D

    Komment by Erla og Arna Lind — Thursday - 26.April 2007 @ 15:07

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu