Ofurhetjur.com

Blóð, sviti & tár

Tuesday - 1.May 2007

6423

Í síðustu viku reyndi litli skæruliðinn okkar að standa upp á miðju gólfinu. Hú var á fjórum fótum og spennti svo lappirnar þannig að hún stóð í þær og sleppti svo höndunum til að standa almennilega upp en hafði ekki jafnvægi í þessar æfingar þannig að hún datt beint á andlitið. Ég var að fylgjast með henni og sá fallið þannig að það kom mér lítið á óvart þegar ég tók hana upp og hún tuffaði blóði framan í mig. Tennurnar tvær í neðri góm kýldust semsagt á bólakaf upp í tannlausa efri góminn og það blæddi alveg töluvert mikið og lengi. Hún jafnaði sig nú ótrúlega fljótt og var aftur farin að æfa sig í að standa og labba eftir lúr. Hún var samt ansi varkár út vikuna, það mátti enginn koma nálægt munninum og hún vildi bara vera með duddu. Hún er orðin alveg ótrúlega dugleg að standa - stendur hérna upp við allt og alla og er farin að labba aðeins meðfram, taka nokkur skref. Svo skríður hún útum allt þess á milli, þetta er yndislegur tími. Hún er búin að vera ansi kelin upp á síðkastið, hingað til hefur hún ekki viljað of mikla ástúð því það er svo mikið að gera hjá henni, hún hefur ekkert tíma í svona knúserí en núna knúsar hún okkur og kyssir í bak og fyrir (eins og sést á myndinni) og er ótrúlega mikið aaaaaaaa, enda er hún yndislegasta barn í veröldinni!

Veðrið hjá okkur er búið að vera unaðslegt upp á síðkastið þannig að við erum bara búin að vera úti! Suma daga hefur verið það heitt að Ninja Tíbrá er bara á samfellunni. Í síðustu viku brölluðum við margt skemmtilegt - við fórum í sund, fórum í mömmuklúbb til Ríkeyjar, fórum í bæinn, fórum í göngutúra, fórum í garðinn, borðuðum góðan mat og skemmtum okkur konunglega í sólinni. Í kvöld ætlum við til Ríkeyjar, Hauks og Eiríks Ingimars að grilla sparirifbein - namminamm og á morgun ætla ég að halda mömmuklúbb og bjóða gellunum upp á eitthvað ægilega gott í hádegismat.

Jæja, við mæðgur ætlum að drífa okkur aftur út í sólina =)

5 komment

  1. Þú ert náttla bara æði Ninja mín!
    Gaman að sjá hvað þið hafið það gott þarna, getið bara dúllað ykkur eins og þið viljið! gaman að hugsa til þess að ég verði vonandi í svipaðri stöðu eftir ár!!:)

    Það er greinilegt að mamman er dugleg að kíkja í HM ofl. Ninja er bara eins og klippt út úr tískublaði á hverri mynd, algjör prinsessa!:)

    Hafiði það rosa gott þarna í sólinni!:)
    kv.Jóa og bumban:)

    Komment by Jóa — Tuesday - 1.May 2007 @ 19:06

  2. æjajaj, hvað mín er mikill hrakfallabálkur, en verður samt örugglega farin að labba fyrir sumarið með þessu áframhaldi!! Sakna ykkar alveg böns og bíð eftir að þið bankið uppá:)

    Komment by Guðný — Tuesday - 1.May 2007 @ 19:46

  3. Vá æðislegar myndir af snúllu… hún er orðin svo mannaleg. frábært að hún sé farin að stranda upp… sá það reyndar fyrir mér hana rosa þrjóska að reyna að standa upp á miðju gólfinu… hehe

    bless í bili. sjáumst vonandi fljótlega… ;D

    Komment by Eiríkur H — Thursday - 3.May 2007 @ 12:46

  4. hehe snúllan:) Það er svona þegar maður er að flýta sér að stækka þá lendir maður í ýmsu:) En maður lærir af mistökunum þannig að no worrys Bríbrá mín…þetta kemur allt með kalda vatninu:) Pattalingurinn er bara búinn að vera í því að kyssa Ninju sína hérna á skjánum þannig að hann er aldeilis farinn að sakna Bríbrárinnar sinnar…enda bara 22 dagar þangað til við komum til ykkar…biðin alveg að fara með okkur hérna á klakanum hehehe:) GEGGJAÐ sætar myndirnar af snúllunni okkar…knús í klessu Steinka, Patti og Ísó:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Thursday - 3.May 2007 @ 16:13

  5. Hello my friends :)
    ;)

    Komment by exapykepexila — Monday - 19.May 2008 @ 04:07

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu