Ofurhetjur.com

Einhyrningur

Saturday - 5.May 2007

6803

Fyrsta ferðin á Sygehus Syd var þegar Ninja Tíbrá fékk ofnæmisviðbrögð við graut þegar hún var að verða 6 mánaða. Önnur ferðin á Sygehus Syd var í dag! Nóttin var ansi erfið eins og næturnar síðastliðinn mánuðinn. Ninja Tíbrá fær ekki lengur að drekka á nóttunni og hún er ekki tilbúin að sætta sig við það og grætur enn ótrúlega sárt þrátt fyrir að mánuður sé liðinn frá því að við byrjuðum á þessu. Í nótt og síðustu nótt grét hún í sitthvora 6 klukkutímana - úff, hvað það var erfitt að hlusta á litla gullið sitt gráta svona lengi og sárt! Allaveganna fór ég seint fram úr í morgun til að gera graut fyrir litlu prinsessuna og Friðgeir og Ninja Tíbrá voru ennþá að kúra. Í einni svipan, þegar pabbi hennar leit aðeins af henni, var Ninja Tíbrá komin út á brún á rúminu og dottin útúr áður en pabbi hennar náði í skottið á henni. Svona gerist auðvitað þegar lítill prakkari er annars vegar. Rúmið er sirka jafn hátt og hún, rúmur hálfur metri. Hún datt beint á ennið og uppskar auðvitað rosa fínt einhyrningshorn og blátt enni. Við hringdum niður á Sygehus Syd til að athuga hvort þeir vildu kíkja eitthvað á hana en þeir sögðu okkur bara að koma ef hún myndi breytast eitthvað. Pabbalingurinn fór í skólann og við mæðgur vorum hérna heima að passa hreiðrið. Ninja valt alltaf út á hlið þegar hún stóð upp og var vönkuð og vælin, enda örugglega með vænan skammt af höfuðverk. Þegar hún svo sofnaði aftur og aftur og fór að kasta upp þá stóð mér nú ekki lengur á sama og skellti gellunni í ,,slingið” (sem er burðarsjal fyrir börn) og arkaði niður í bæ til að hitta Friðgeir. Við fórum svo saman upp á Sygehus Syd þar sem Ninja Tíbrá ofurhressa var alls ekki svo hress, hún svaf og vildi snerta við dótinu sínu, vildi ekki einu sinni leika með símana okkar - þá er nú eitthvað mikið að! Við biðum eftir doksa og spjölluðum svo við hann. Hann kíkti á hana og hún sýndi öll viðbrögð þannig að hann úrskurðaði að ef hún hefur fengið heilahristing hefur hann verið lítill. Við vorum að sjálfsögðu ægilega glöð með þetta foreldrarnir. Hann sagði okkur líka að NÆST þegar hún dettur svona illa að setja strax ís svo kúlan verði ekki svona stór hehe. Hann sagði samt að hún yrði líklegast mjög sljó næstu daga, með höfuðverk og eftir sig eftir þetta mikla höfuðhögg. Hann fór svo að skoða hana aðeins betur, fannst hún líta eitthvað laslega út, mældi hana og þreifaði og komst að því að hún er með vírus og var með 39,5°c! Úps, eins gott að við fórum á spítalann að láta tjekka á skvísunni (reyndar fórum við út af fallinu, ekki vírusnum en glæsilegt að læknirinn spottaði vírusinn). Okkur fannst hún reyndar orðin ansi heit á kroppnum á meðan við biðum eftir doksanum en héldum að það væri frekar tengt byltunni. Svefnleysi og vanlíðan dúllunnar síðustu nætur er þá þessum vírusi að kenna en ekki alfarið sök móðurinn fyrir að vera að minnka brjóstagjöfina. Þegar við svo komum heim var mamman aðeins of upptekin við tiltektina og fór að hafa nettar áhyggjur þegar litli skæruliðinn tók að æla í sífellu og fór með puttann aftur í kok til að sjá hvort hún væri búin að gleypa eitthvað og viti menn, ég veiddi upp úr skottunni filt-tappa undan einum eldhússtólnum eða borðstofustólnum eins og Fritz vill kalla þá! Já hlutirnir eru ekki lengi að gerast á þessu heimili - eins gott að hafa augun á Ninjunni allar sekúndur í öllum mínútum.

Hún vill núna helst af öllu bara fá að kúra í fanginu og nudda hárið með dudduna sína - ekki leika á alls oddi og skemmta sér og öðrum eins og vanalega. Hún er óskaplega lítil í sér og líður greinilega mjög illa. Hún hristir þetta vonandi af sér á næstu dögum litli engillinn okkar og verður eins og hún á að sér að vera!

7 komment

  1. Ninja mín, þú verður að hætta að hræða pabba og mömmu svona mikið! Annars verða þau búin að fá nokkur hjartaáföll fyrir þrítugt. Bið annars að heilsa ykkur og vona að þið hafið það gott í blíðunni í DAN :)

    Komment by Elísabet — Saturday - 5.May 2007 @ 23:42

  2. æ almáttugur litla skinnið :/ ég er mikið farin að kvíða svona atburðum því ef prinsinn verður eitthvað líkur móður sinni þá verður hann algjör skæruliði…

    …en þetta fylgir víst. gott að allt fór vel :-)

    vonandi að ninjan verði hress sem fyrst.

    knús frá okkur bumbuling ;-)

    Komment by guðrún veiga og bumban — Sunday - 6.May 2007 @ 02:53

  3. æjajaj, þetta var nú ekki gott, en gott að heyra að læknirinn fann þetta með vírusinn, hefði líklega geta farið verr…. vonandi bara að hún jafni sig fljótt og vel á þessu svo hún geti kíkt í heimsókn til Odense, sólin og leikvöllurinn gjörsamlega bíður eftir henni hérna… og ég auðvitað líka;)

    Komment by Guðný — Sunday - 6.May 2007 @ 04:02

  4. Sum okkar eru nú alveg að verða þrítug (löngu orðin þrítug ef þú spyrð Andreu ;) ) þannig að við fáum okkar hjartaáföll á fertugsaldri …… úfff.

    Komment by Pabbinn — Sunday - 6.May 2007 @ 11:23

  5. HALLA MALLA…þú ert nú upprennandi prakkari eins og frændi þinn (og frænka sýnist mér á öllu líka)…ekki langt í kakódallinn held ég hehehehe:) en knús til þín ninja okkar og get well kveðjur…og svo til m&p líka…hlökkum GEGGJAÐ til að koma til ykkar eftir 18 daga :):)
    knús knús Steinunn, Siggi, Patik Dagu Siuson og Ísabella Ssól Siuadóttir

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Monday - 7.May 2007 @ 12:51

  6. Fjúff, aumingja þú að lenda í þessu öllu saman i einu.

    Vá hvað þú ert líka orðin klár, mamma segir að nú verði ég að læra að standa sjálf upp eins og Ningja Tíbrá frænka í Danmörku :o)

    Annars skallaði ég sófaborðið okkar bara þegar ég var að reyna að standa upp í gær og fékk bláa kúlu á ennið.

    gb fa

    Komment by Elsa Björg — Monday - 7.May 2007 @ 14:15

  7. jáhérna það er greinilega mikið um að vera hjá Ninju litlu….úff, vonandi jafnar hún sig fljótt og vel. Viljum nú ekki að aða´lskvísan sé lasin og með kúlu……Bið að heilsa múttu og pabba…sakna þin :x

    Komment by sigurlaug — Tuesday - 8.May 2007 @ 20:56

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu