Ofurhetjur.com

Skvísuferð til Odense

Saturday - 12.May 2007

6769

Ninja Tíbrá er búin að jafna sig á heilahristingnum, vírusnum og veikindunum. Hún var með rúmlega 40°c hita þegar hitinn fór hæst en fékk sem betur fer ekki hitakrampa eins og ég fékk alltaf þegar ég var lítil. Vikan fór semsagt í veikindi, ærlega inniveru og kósýheit. Fritz er fluttur niður í skóla þangað til á mánudaginn (..eða svo gott sem fluttur - hann er þar nótt sem nýtan dag.) Hann er alveg ótrúlega duglegur og við erum alveg ægilega stoltar af okkar manni! Hann er búinn að standa sig þvílíkt vel, mætir í skólann eldsnemma og kemur heim seint og hefur samt orku í að knúsa okkur, búa til rúm handa Ninju Tíbrá, vaka á nóttunni yfir veikri prinsessu og vera yndislegur þrátt fyrir afar takmarkaðan svefn! Á mánudaginn kemur eru skil á verkefninu í prent þannig að þá kemur hann heim og fær smá frí - veiii! Hann smíðaði semsagt rúm handa Ninjunni, geggjað flott rúm sem við eigum bara eftir að klára að mála og þá þarf litla strumpan að sofa ein, ég á líklegast eftir að sakna hennar meira en hún okkar hehe.

Við mæðgur skelltum okkur upp í lestina í gær og fórum úr í Odense og ætlum að vera þar yfir helgina. Guðný dekrar við okkur hérna og það er rosa gaman hjá okkur skvísunum. Guðný skrapp út í búð til að kaupa allt sem þarf til að gera konfekt, við erum svo miklar húsmæður að við ætlum að gera konfekt! Við vorum að koma úr dýragarðinum og í kvöld erum við að fara í júróvisjóngrillveislu hjá íslensku læknanemunum þannig að það er heldur betur stuð hjá okkur. Við förum svo líklegast heim bara á mánudagsmorguninn, þegar Friðgeir og hópurinn hans verða búin að skila í prent og hann búinn að endurheimta líf sitt ! =)

Næstu helgi koma svo Andrea og Jakob og ég er gjörsamlega að missa vitið úr spenningi - helgina eftir það koma mamma, pabbi, Þorgeir Kristján, Steinunn, Siggi, Patrik og Ísabella og ég er að missa svefn úr spenningi yfir því þannig að þegar allt þetta fólk loksins kemur verð ég búin að tapa geðinu - ég er sko búin að bíða ALLTOF lengi eftir að knúsa þau! :D

5 komment

  1. Oh, þið heppin að fá svona margar heimsóknir!!:)

    Komment by Rebekka — Saturday - 12.May 2007 @ 16:32

  2. ohhhh hvað ég hlakka mikið til að hitta ykkur:) góða skemmtun hjá Guðnýju…biðjum að heilsa henni:) knús knús úr kosningavöku:)
    Steinka og stuðboltarnir:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Sunday - 13.May 2007 @ 00:14

  3. þetta er allt að registera hjá mér núna eftir að ég kláraði prófin og ég held svei mér þá að ég sé bara að missa vitið af spenningi, verst að þetta er ekki fyrr en á föstudaginn næsta…en jakob skilar verkefninu sínu á morgun þannig að þá fæ ég loksins knús og dagarnir verða vonandi fljótari að líða ;) Hlakka svooo til að sjá ykkur sætu!!!

    Komment by Andrea — Sunday - 13.May 2007 @ 16:01

  4. Það er æðislegt að hafa ykkur skvísur í heimsókn og ég bið líka að heilsa þér Steinka;)

    Komment by Guðný frænka — Sunday - 13.May 2007 @ 17:43

  5. Datt inná síðuna þína og vá frábært að skoða hana.
    Kv Fjóla

    Komment by Fjóla Þorsteins — Monday - 14.May 2007 @ 02:12

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu