Ofurhetjur.com

ÍSLAND - BEST Í HEIMI!

Monday - 14.May 2007

6933

Það var ææægilegt stuð í Odense hjá okkur um helgina! Ég var rétt í þessu að setja inn aragrúa af myndum.

Ninja Tíbrá er farin að vera svoooo dugleg að við foreldrarnir erum hreinlega að rifna úr stolti! Hún réttir upp hendurnar eins og langt og hún nær í tíma og ótíma til að sýna hvað hún er stór (eins og sést á myndinni), skææælbrosir þegar við klöppum og klappar svo sjálf! Hún klappaði alltaf með því að lemja höndunum bara upp og niður en núna er hún farin að klappa rosa flott og það heyrist meira að segja klapphljóð - ótrúlega flott! Hún er orðin ansi brött í að labba meðfram og er á fullu í að æfa jafnvægið, hún sleppir öðrum fætinum og annari hendinni og veifar á fullu og er hrikalega stolt af sér, enda ekkert skrítið hehe. Hún dillir sér líka stundum og sveiflar fótunum þegar hún stendur og finnst það ægilega skemmtilegt - hún er náttúrulega bara mesta krúttið!

Áðan þegar við vorum á leiðinni heim var lestin full af hermönnum í fullum herklæðum. Ninja Tíbrá lék á alls oddi og skildi ekkert af hverju þessir kallar klöppuðu ekki fyrir henni þegar hún sýndi þeim hvað hún er stór! Þeir voru aðeins of alvarlegir fyrir Ninju litlu. Þeir voru að spjalla saman og ég hafði ekkert annað að gera en að æfa dönskuskilninginn minn og hlusta á umræðuna. Einn hermaðurinn fór svo að segja sögu af því þegar hann fór til Reykjavíkur síðasta haust. Hinir urðu alveg æsispenntir yfir þessu framandi ferðalagi dátans og hlustuðu allir með eftirvæntingu á staðreyndirnar sem víðsýni hermaðurinn bauð uppá. Þetta eru dæmi um staðreyndir sem danskir hermenn telja upp þegar þeir tala um ferðir sínar á framandi slóðir lands ísa og elda:

  • Það er rosalega fallegt þarna en ÞAÐ ER ENGINN HER! Hinir voru eins og sjokkeraðar smástelpur sem hafði verið sagt upp á diskóteki í sjötta bekk án þess að eiga von á því.
  • Það voru fullt af stelpum til í að sofa hjá mér BARA útaf því ég er hermaður, hérna vilja þær ekki sofa hjá mér ÚTAF því ég er hermaður - allir félagar hans ætluðu að sjálfsögðu að panta sér far með fystu vél til Íslands.
  • Það er allt svo dýrt þarna að ég þurfti að borga fyrir tannstöngla og tómatsósu á skyndibitastöðunum! Danirnir (sem eru líklegast sparsamasta þjóð í heimi) fussuðu og sveiuðu og hættu allir á einu bretti við ferðina sem átti að leiða af sér mikinn kvenkost því maður lætur nú ekki bjóða sér að þurfa að borga fyrir tómatsósu!
  • Maður kemst ekki inn á skemmtistaði nema að borga dyraverðinum eða standa í röð í marga klukkutíma! Þetta fannst dönunum nú alveg út í hött en verra þótti þeim að einn bjór myndi kosta álíka mikið og einn kassi í danaveldinu. Þetta fyllti mælinn og tilhugsunin við tóma budduna eftir Íslandsferð var óyfirstíganleg - enginn hafði lengur áhuga á að heyra meira um þetta land sem áður hljómaði framandi en núna var flokkað sem fokdýrt óvinaríki sem enginn hafði hug á að heimsækja í þessu lífi né öðrum.

Já, ég hló að sjálfsögðu bara í hljóði og skemmti mér konunglega yfir lýsingum hermannana á ástkærri fósturjörð minni en ekki breytti það skoðun minni, ÍSLAND - BEST Í HEIMI!

4 komment

  1. Það var æðislegt að fá ykkur í heimsókn, ég er bara strax farin að sakna ykkar og get ekki hugsað til þess að ég sjái ykkur kannski ekki fyrr en í júlí!!!! Takk fyrir komuna;)

    Komment by Guðný frænka — Monday - 14.May 2007 @ 19:24

  2. gaman að þessu ;) Hefurðu heyrt eitthvað frá Japönunum?
    Kv Bryndís og Ásdís Iða

    Komment by Ásdís Iða og Bryndís — Monday - 14.May 2007 @ 22:19

  3. halla malla…við erum að tala um 8 daga úllalla:):) hlökkum GEGGJAÐ mikið til…knús í klessu…Steinka og Ísabella:)

    Komment by Steinunn og prakkararnir:) — Wednesday - 16.May 2007 @ 11:47

  4. Þið eruð allar æðislegar, það er erfitt að sjá hver er yngstur miðað við myndirnar. Mér sýnist allar stelpurnar skemmta sér vel í rólunum og sandinum.
    Ykkar elskandi mamma

    Komment by Amma Gróa — Wednesday - 16.May 2007 @ 21:38

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu