Ofurhetjur.com

Tannálfur í nýju rúmi

Thursday - 17.May 2007

7225

Í gær fann Friðgeir aldeilis fínan fjársjóð - nýja tönn! Þá er skvísan komin með þrjár tönnslur! Báðar framtennurnar í neðri góm og hægri framtönnina í efri góm.

Síðustu daga erum við búin að vera á fullu að græja rúmið hennar Ninju Tíbrár, enda ekki seinna vænna, daman að verða níu mánaða. Friðgeir smíðaði það og ég er málaði það (það er reyndar ekki alveg tilbúið, á eftir að mála eina umferð í viðbót.) Tíbrá litla svaf fyrstu nóttina í sínu eigin rúmi í nótt. Við lögðum hana inn til að athuga hvort hún gæti sofnað sjálf, hún var nú ekkert alveg sátt við það og kvartaði svolítið en sofnaði samt á tíu mínútum! Við vorum að vanda ægilega stolt af litla englinum okkar! Hún svaf til hálf sjö í morgun, vaknaði bara einu sinni til að fá dudduna sína - litla dudduskott! Hún kúrir bara með nóg af duddum, Línu Langsokk og Grísling, þau passa hana. Þvílík sæla að sofa heila nótt! Ég og Friðgeir vorum reyndar alltaf að vakna því við erum jú orðin vön að vakna óteljandi oft. Klukkan hálf sjö tókum við hana svo uppí og hún fékk að súpa hjá mér og dormaði sér svo aðeins lengur í millunni, yndisleg nótt alveg! Tanntakan hefur greinilega verið að trufla hana í svefninum upp á síðkastið því í nótt svaf hún eins og engillinn sem hún er. Ég vona að svefninn verði héðan í frá svona auðveldur og góður.

Í fyrradag átti mamma afmæli! Ég hefði nú alveg verið til í að knúsa hana ærlega í tilefni dagsins en ég bíð bara með það í viku í viðbót, þá koma þau í heimsókn! Þann daginn trimmuðum ég og Helga með stelpurnar okkar í kerrunum út í Aalborg Øst þar sem Bella bauð í hitting og kræsingar. Ég verð nú að viðurkenna að ég er með nettar harðsperrur eftir alla kílómetrana í rigningunni en þetta var æðislegt, Ninja hefur sjaldan sofið jafn vært á daginn og akkúrat þarna, á fullri ferð úti í rigningu og roki.

Í gær skelltum við fjölskyldan okkur í tívolíið hérna í Álaborginni. Við fengum okkur ís, tókum fullt af myndum, prófuðum allskyns skemmtilegheit og nutum samverunnar, það hefur ekki verið svo mikið af henni upp á síðkastið sökum verkefna í skólanum. Um kvöldið vorum við með ,,hygge-aften” og borðuðum góðan mat, nammi og flatmöguðum yfir spennandi sjónvarpsþáttum - það klikkar sko aldrei!

Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Við eigum svo mikið af norskum vinum þannig að við ætlum að skella okkur í Kildeparken (almenningsgarðinn í miðborginni) og grilla lúmpur (norskar pönnukökupylsur) og fagna með nossurunum í góða veðrinu!

Á morgun koma svo Andrea, Jakob og Róbert - vííííííúú! =)

5 komment

  1. Vá æðislegt að heyra með svefninn hennar NInju og gott það var ekki annað sem var að trufla hana hérna síðustu nóttina í Odense. Rúmið er ægilega flott, þið eru meiri listamennirnir, þið foreldrarnir;)

    Komment by Guðný frænka — Thursday - 17.May 2007 @ 19:08

  2. Rigning og rok??? vonandi verður ekkert svoleiðis í næstu viku…eða á morgun!=) Ógeðslega kjúúút rúm…ekki skrýtið að hún sofi vel í því! Hlakka til að sjá ykkur á morgun!!

    Komment by Andrea — Thursday - 17.May 2007 @ 19:16

  3. ohh vildi að ég væri lika að fara að koma til ykkar á morgun!!!!!

    Komment by sigurlaug — Thursday - 17.May 2007 @ 23:16

  4. Heyrðu! Hvernig ís varstu eiginlega að borða??? Mikið svakalega er hann girnilegur!! Geturðu ekki sent mér einn svona bara í pósti??? Ég held mig eigi bara eftir að dreyma hann í nótt!!
    gaman að vel gengur ;) alltaf gott að sofa í “friði” í rúminu…
    Kveðja ís-öfund-sjúka Bryndís ;)

    Komment by Ásdís Iða og Bryndís — Friday - 18.May 2007 @ 00:02

  5. Hæ hæ:)
    Litla músin, bara alltaf á hausnum. Hefur ekki stækkað neitt smá mikið, algjör rúsína:)
    Biðjum heilsa í bili og muna að knúsa litlu frá okkur!

    Komment by Lómasalagengið — Sunday - 20.May 2007 @ 12:46

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu