Ofurhetjur.com

Farvel mister kameramen..

Tuesday - 5.June 2007

8131

Ástkæra myndavélin okkar söng sitt síðasta í dag. Ninja Tíbrá prakkari henti henni í gólfið þegar hún var að standa upp og við ekki nægilega mikið á varðbergi hvar við settum hana. Við það broanaði af henni stillingarhjólið til að breyta um stillingar og myndavélin var föst á portrait myndastillingunni, sem er hin fínasta stilling þanng að við vorum bara ánægð með að sú stilling var föst en ekki vídjóstillingin eða eitthvað. Lán í óláni sumsé. Prakkarapúkinn okkar sá sér svo leik á borði í dag (í bókstaflegri merkingu þar sem myndavélin var uppi á eldhúsborði) og kippti í lenskappið sem fast er í myndavélina um leið og ég snéri mér við. Myndavélin fór í gólfið og ég var endalaust fegin að hún fékk hana ekki í hausinn því þetta er jú ekki beint minnsta myndavélin. Aftur var þetta lán í óláni því Ninja Tíbrá sætamús slapp við skellinn, skítt með myndavélina! Myndavélin sumsé kveikir ekki á sér núna. Hennar lífdagar voru margir, góðir og þrælaði hún heldur betur á lífsleiðinni því við höfum tekið endalaust af myndum á hana. Ég er nú eiginlega bara sátt með þetta, get ekki sagt að það sé mikil sorg í mínu hjarta því hún var orðin gömul og lúin blessunin. Ég setti inn síðasta framlag myndavélarinnar. Þetta þýðir bara eitt, að núna kaupum við myndavélina sem Friðgeir gaf mér í jólagjöf í fyrra - vííííúúúú! Ég var einhvernveginn aldrei búin að ganga frá kaupum og gera upp hug minn hvaða vél væri sú eina rétta en Ninja Tíbrá sá valkvíðann í augum móður sinnar og tók ákvörðunina fyrir mig, yndislega dúllan! Núna erum við búin að velja okkur tryllitæki til að kaupa og ég iða í skinninu úr spenningi!

Eeen, að öðru. Lóa og Gulli eignuðust tví­bura á föstudaginn! Eina gellu (10 merkur og 46 sentimetra) og einn töffara (11 merkur og 47 sentimetra)! Núna eiga þau 5 gullmola! Ég vona að ég verði einhverntí­ma svona rí­k! Við erum búin að slefa úr heimþrá yfir myndunum af litlu fallegu frændsystkinunum og viljum helst koma með næstu vél til að knúsa þau! Við verðum að vona að Lóa setji inn myndir á hverjum degi til að sefa tvíburaknúsþörfina okkar. Ég varð nú að stela einni mynd af sætu tvillunum og setja hana hérna með, þetta eru sumsé þau hérna uppi. Það besta við börnin er að það er allt í lagi þó maður sjái þau ekki alveg strax, þau sætkka bara og það er það besta! ..eða hvað Andrea? ; )

Fritzinn okkar stóð sig eins og hetjan sem hann er í prófinu - fékk að sjálfsögðu hæst í sínum hópi! Á morgun hefst enn ein lærdómslotan og svo er þetta endanlega búið. Eða b.sc, amk, svo fer hann jú í master - meistarinn minn!

Smá gullkorn um litla ljósið okkar að lokum, ég er búin að vera að lesa fyrir Ninju Tíbrá bókina: ,,Hjá afa og ömmu” sem afi Þorgeir gaf henni þegar allir komu í heimsókn og í bókinni er hundurinn Lubbi aðalhetjan. Ég segi auðvitað alltaf VOOOFF VOOOOOOOFF eins og góðri mömmu sæmir þegar hundurinn birtist í bókinni, núna verður hún alveg æst þegar hún sér bókina og segir UFF UFF og bendir skælbrosandi á hundinn! Jeremías, ég á svo gáfað barn! Það fyndnasta af öllu er að hún bendir ótrúlega pen með vísifingri, alveg eins og hún sé fullorðin hefðarfrú! Hún segir líka NAMM NAMM NaMMmmmM hátt og snjallt þegar hún er að borða eitthvað sem henni finnst gott, sem er allt! Besta sem hún veit er semsagt seríós, amma Gróa sendi okkur svoleiðis frá Íslandi um daginn (því svoleiðis góðgæti fæst ekki í Danmörkinni eins og svo margt annað) og það er búið að slá í gegn! Þetta er án efa langbesta sem hún fær og fínhreyfingarnar eru orðnar mun nákvæmari og betri af því að plokka seríósið upp af gólfinu, skálum, af borðinu og úr dótinu því þetta fer jú útum allt þegar litlir puttar eru annars vegar. Eitt hérna í blálokin, Ninja Tíbrá er komin með kaffibrún augu - goooooordjööös!!!

4 komment

  1. hæhæ litla sæta fjölskylda, alltaf gaman að lesa færslurnar frá ykkur :) Hafið það sem allra best elsku vinir, vona að ég hittti ykkur sem allra fyrst, sakna ykkar endalaust mikið…..

    Komment by Sigurlaug — Wednesday - 6.June 2007 @ 17:13

  2. Hæ hæ Ninja stóra frænka. Voða sómum við okkur vel á síðunnin þinni, við hlökkum svoooo mikið til að hitta þig þegar þú kemur heim.
    Kysstu pabba þinn frá okkur og segðu honum að okkur finnst hann svo duglegur. Og gefðu svo mömmu þinni stærsta knús sögunnar og segðu henni að hún er svo góð mamma.
    Kveður frá “góða” veðrinu á Fróni, Tvíburarnir í Hveró

    Komment by Snæfríður, Máni og tvíbbarnir — Wednesday - 6.June 2007 @ 21:39

  3. Brún eru best… ;)
    Hlakka svo til að hitta ykkur aftur…

    Komment by Nanna — Thursday - 7.June 2007 @ 15:45

  4. Haha, já hún Ninja er sko enginn vitleysingur, gott hjá henni að eyðileggja myndavélina…. annars hefði mamman líklega aldrei fengið jólagjöfina sína. Hafið það gott og hlakka til að sjá ykkur:D

    Komment by Guðný — Thursday - 7.June 2007 @ 16:30

RSS feed fyrir kommentin á þessa færslu - TrackBack URL

Kommentaðu