Nú liggja danir í því
Thursday - 14.June 2007
Jæja þá er komið að því! Við erum að fara að flytja aftur heim á klakann. Fritz er búinn með skólann og planið var auðvitað alltaf að koma heim núna. Danmerkurdvölin hefur verið yndisleg í alla staði og lífið verið ansi ljúft. Hugmyndin er að koma heim í lok júlí, eftir mánaðar ródtripp um Evrópu og svissnesku Alpana. Síðustu dagar eru sumsé búnir að fara í niðurpökkun og stemningu á Östre Alléinu okkar.
Þannig er mál með vexti að okkur vantar íbúð á höfuðborgarsvæðinu frá 1.ágúst í að minnsta kosti hálft ár. Ef einhver veit um íbúð eða veit um einhvern sem vantar pottþétta leigjendur, reyklausa og almennilega í alla staði - þá vonum við að við séum ykkur efst à huga! (..þið getið haft samband við okkur, Anna Sigga: 0045 2990 8981 / ofurhetja@gmail.com & Fritz: 0045 2885 2809 / velmenni@gmail.com).
..þar sem það eru oft 600 manns sem skoða síðuna okkar á dag þá ætti nú að vera einhver sem veit um eitthvað sem hugsanlega gæti hentað okkur
Um síðustu helgi, á fertugsafmælinu hennar Ãgústu systur og níu mánaða afmælinu hennar Ninju TÃbrár, buðum við Eyjó og Maju í íslenskt lambakjöt og vá hvað það var gott! Ekkert jafnast á við íslenska lambið! Ninja Tíbrá borðaði á sig gat af kjötinu og smjattaði á góðgætinu eins og sönnum íslendingi sæmir. Við vonum að veðrið verði jafn gott þangað til við leggjum land undir fót og ennþá fleiri sólargeislar sem skína í Evrópureisunni okkar!
..Það er núna sprungið fyrir báðum framtönnunum í efri góm hjá gellunni en þær eru samt ekki enn farnar að koma almennilega niður, þetta tekur jú allt sinn tíma! Hún er orðin svo dugleg að segja allt mögulegt, ef maður segir ,,hvað er þetta?” þá segir hún DETTA og réttir fram hlutinn sem hún er með (við reiknum bara með að DETTA sé þetta.) Hún kallar á Dodda í tíma og ótíma, segir mamma, pabbi, ava, amma, ó ó, eff eff (voff voff) og datt. Þegar við segjum Ninja við hana þá segir hún NINN-NINN og brosir sínu breiðasta. Hún er ekkert eðlilega mikill snillingur þessi gella!