Ofurhetjur.com

Spegill, spegill herm þú mér..

Tuesday - 26.September 2006 4 komment

695

Litla skvísan dafnar ótrúlega vel! Hún er náttúrulega fallegasta og besta barnið af þeim öllum (það finnst okkur foreldrunum að minnsta kosti). Hún stækkar alveg ótrúlega hratt og mér finnst eins og það hafi verið í gær sem við vorum á leiðinni upp á fæðingadeild - ótrúlegt hvað tíminn flýgur þegar lífið er svona stórkostlegt :D Ljósmóðirin kom áðan og vigtaði litlu gelluna og hún þyngist vel og er komin með kennitölu og alles! Við skötuhjú og litla kríli ætlum að skella okkur í fyrsta fjölskyldugöngutúrinn á eftir í sólinni vííííí!

..Við mæðgur skelltum inn alveg fuuullt af nýjum og skemmtilegum myndum!

Nýjar myndir & tæknistríðni

Tuesday - 19.September 2006 6 komment

649

Það er nú allt í lukkunnar velstandi hérna hjá okkur ofurhetjunum. Fólk er aldeilis farið að láta sjá sig í heimsókn og allir voða ánægðir með litlu skvísuna enda ekki annað hægt! Patrik Dagur er búinn að fá að knúsa litlu frænkuna og hann er sko BARA góður við hana, kallar hana ,,Lúllu” - ég veit ekki hvort það er útaf því hún sefur svo mikið eða hvort hann er að reyna að segja Snúlla eins og við hin. Hann vill alltaf fá að taka hana og knúsa hana. Hún fór síðan örlítið að gráta um daginn úr svengd og ég var að segja Patrik að hún væri örugglega svöng og þetta lét hann nú ekki segja sér tvisvar og snaraði sér inn í eldhús og sótti snakk til að seðja svengd litlu frænku. Þorgeir Kristján er líka ansi ánægður með gelluna og er voða duglegur að passa hana og leyfa henni að kúra með sér. Það eru sumsé allir hugfangnir af þessu litla gulli sem hana hitta enda mjög svo sjarmerandi skvísa hér á ferð!

Við erum með opið hús hérna ef einhverjum langar að kíkja á okkur - bara að hringja á undan sér og láta vita (svo við getum sópað draslinu undir sófa áður en fólk birtist).

..Tæknin er nú eitthvað búin að vera að stríða okkur hérna tölvunördunum og heimasíðan er ekki búin að vera að virka sem skildi en við erum að vinna í því að laga þetta allt saman svo allir geti fylgst grannt með!

..Við settum inn fullt af nýjum myndum í ,,Fyrstu dagarnir heima” albúmið áðan! DANSI DANSI =)

Komin heim á Glæpanesið

Saturday - 16.September 2006 9 komment

501

Jæja - þá er litla fjölskyldan á Miðbrautinni komin heim! Það er sko aldeilis gott að vera komin heim og geta kúrt með litlu dúllunni okkar í millunni í staðinn fyrir að þurfa að skilja hana eina eftir uppi á Vökudeild á meðan við fórum og sváfum í sitthvoru horninu á Reykjavík.
Lungnasérfræðingurinn sem var að sjá um litlu skvísuna okkar sagði reyndar að við mættum alls ekki vera að fá fólk í heimsókn til að byrja með því hún væri enn svo ægilega máttfarin og viðkvæm fyrir sýkingum. Við viljum samt endilega fá alla í heimsókn til að sjá litla gimsteininn okkar en ekki fyrr en í kringum seinnipartinn í næstu viku eða næstu helgi :) Þá eru sko allir velkomnir! Hún braggast annars rosa vel og það er rosa dagamunur á henni - það þarf til dæmis ekki að vekja hana lengur og vera með rosa prógramm til að halda henni vakandi á meðan hún er að drekka. Hún er rosa flott og mikil svkísa og við erum sko ægilega stolt af henni og hvað hún er búin að vera dugleg, ósigrandi hreinlega! Það fer oft rosa illa í fullorðið fólk að fá sýklalyf, allskyns kvilla láta á sér kræla og það eru bara nokkrar töflur - litla gellan okkar fékk sko sama skammt af sýklalyfjum og mjólk og það beint í æð og nokkrar tegundir en þessi litla hejta er sko ekkert að kippa sér upp við þetta og er sko mun hressari en ég þorði að vona ;) Ég setti inn nýjar myndir - vei vei veiiiiiiii!

Umönnunarsamfélag eða hitt þó!

Tuesday - 12.September 2006 5 komment

Þetta er algjört hneyksli, fyrst er mér neitað um feðravernd (Anna Sigga fékk mæðravernd á meðgöngunni, á ég ekki að fá eitthvað líka?) og svo fæ ég ekki að vera á spítalanum með dúllunum mínum, sendur heim til að hýrast hér einn á Glæpanesinu (grát, snökt). Ætli ég beiti mér ekki fyrir því að stofnuð verði Sængurmannadeild þar sem nýbakaðir pabbar geti slappað af eftir erfiðar fæðingar (horft á enska boltann eða eitthvað [innsk. reyndar tapaði Liverpool illa um helgina, líklegst best að hafa bara misst af því­]) og að helv*!! sjálfsalinn frá Kvennadeild Rauða Kross Íslands verði lagaður, frekar pirrandi þegar maður ætlar að kaupa súkkulaði handa ástinni sinni að kassinn gleypir allta fþað sem sett er í hann. En að öllu gríni slepptu þá saknaði ég stelpnanna minna voða mikið í nótt og vona að ég fái þær báðar heim sem fyrst, höllin er tómleg án Önnu Siggu og litlu prinsessunnar.

Myndir af prinsessunni og fylgdarliðinu

Monday - 11.September 2006 17 komment

453

Núna eru komnar inn nokkrar myndir af fyrstu dögum í lífi hennar hátignar Prinsessunnar af Miðbraut 15 b (b stendur fyrir kjallari.) Pabbi tók myndavélina heim og setti inn myndir. Kíkið við undir Myndir og sjáið litla gimsteininn.

Lí­til lasin ofurhetja!

Sunday - 10.September 2006 7 komment

Litla stelpan okkar er náttúrulega fallgust í heimi (það finnst amk foreldrunum!) Hún er sko með rosa fínt dökkt hár og ofboðslega falleg augu. Hún er sko alveg með munnsvipinn hennar mömmu sinnar og hökuna en með augnsvipinn hans pabba síns (eða það sýnsit okkur allaveganna svona fyrst um sinn.) Hún er alveg gjörsamlega fullkomin í alla staði :)

Ég sit hérna uppi á kaffistofu á Barnaspítalanum þar sem litla dúllan okkar er búin að vera síðan strax eftir fæðinguna. Legvatnið var grænt (hún var sumsé búin að kúka í það) þar sem fæðingin gekk seint og hún var orðin þreytt gleypti hún eitthvað af legvatni og er með svo kölluð blaut lungu. Það voru strax teknar lungnamyndir af henni því hún náði ekki að anda og hún var sett í svokallað CPAP sem er öndunarstuðningur úr nefinu og ofan í lungu. Hún var tengnd við allskonar vélar og mæla og það sést varla í hana fyrir nálum í höndum og höfði og slöngum í andlitinu. Hún var í hitakassa fyrstu næturnar og með súrefni og sykurvatn sér til aðstoða og gat ekki tekið við neinni næringu því hún átti svo erfitt með að anda. Hún var orðin voða þreytt greyjið en braggast rosa vel. Hún var strax sett á sýklalyf til að slá á sýkingu sem talið er að hún sé með í lungunum eftir græna legvatnið. Það eru alltaf teknar lungnamyndir mjög reglulega og blóðprufur (alltaf verið að stinga hana í hausinn, hendurnar og lappirnar) og fylgst ofboðslega vel með henni. Hún fékk að koma úr hitakassanum í gær og CPAP-ið var tekið úr lungunum hennar. Hún var voða dugleg í gær og fékk meira að segja að knúsa okkur og fær að koma á brjóstið og var sko ekkert nema dugleg að drekka. Það var algjörlega himneskt! Við erum náttúrulega hjá henni öllum stundum og vonum að þetta gangi allt fljótt yfir og að hún braggist hratt og örugglega. Hún er ekki í kassanum í dag og var ekki heldur í nótt en er samt aftur komin með sonduna ofan í maga til að fá að drekka því hún var orðin alltof þreytt eftir veikindin og hefur ekkert getað fengið að súpa hjá mömmu sinni í dag en vonandi bara hressist hún sem fyrst svo brjóstagjöfin fari að ganga eins og í sögu. Í dag er hún muuun laslegri en hún var í gær og liggur eiginlega í hálfgerðu móki - þó hún sé ekki sofandi þá opnar hún samt ekki augun nema svona örlítið og þá ranghvolfir hún þeim bara. Hún verður núna bara að fá að hvílast ofsalega vel og vera dugleg að braggast og svo verður ástandið aftur endurmetið á morgun. Sama hvernig fer þá verður allt í lagi með hana en þetta tekur bara allt sinn tíma. Fyrst þegar myndir voru teknar þá leit þetta allt mun verr út og gert var ráð fyrir mun lengri tíma í bata en hún er búin að vera að taka sér. Hún verður áfram á sýklalyfjum en þarf ekki að vera lengur með sykurvatni í æð því hún getur tekið við mjólk (stundum í sonduna og stundum á brjósti) og við vitum eftir hádegi á morgun hversu lengi í viðbót hún verður á sýklalyfjunum. Hún verður áfram uppi á Vökudeild þar sem er hugsað ofboðslega vel um hana og við erum hjá henni alveg frá því við megum koma á morgnanna og þangða til við megum ekki vera lengur á kvöldin. Hún verður núna bara að láta sér batna og koma heim með okkur í kotið okkar á Nesinu. Ég er inniliggjandi á Sængukvennadeildinni en Friðgeir greyjið þarf alltaf að fara heim og vera þar á nóttunni (voða einmanalegt). Það er voða skrítið að sjá litlu dúlluna okkar svona lasna - sérstaklega þegar hún var öll tengd í allskonar vélar, en hún er samt búin að vera alveg ótrúleg ofurhegjta og búin að taka rosa framförum! Hún er sko langstærsta barnði á Vökunni því þar eru núna bara fyrirburar og svo ein svona stór og stæðileg stelpa sem er nánast of stór í hitakassann hehe. Ég er annars bara hress - bara skrítið fyrir okkur öll að fá ekki að vera bara saman og fara heim daginn eftir eins og planið var auðvitað. Jæja, ég ætla að fara aftur og knúsa duglegu gelluna okkar - hún fær alveg að vera í fanginu á okkur núna þó hún sé tengd í allskonar vélar og mæla þannig að þetta er nú allt að koma til! Við setjum inn einhverjar myndir þegar allt er farið að róast hjá okkur en heimsóknir verða að bíða eitthvað því það má ekki koma til okkar á Vökudeildina og svo er hún náttúrulega sérstaklega veik fyrir bakteríum núna og læknarnir ráðlögðu okkur að fá ekki heimsóknir fyrst um sinn svo við þyrftum nú ekki að koma aftur á Vökuna. Knús til allra og takk fyrir alla góðu straumana og fallegu kveðjurnar frá öllum! Þetta er allt saman að virka og skvísan er sko aldeilis að finna fyrir því hvað allir vilja að hún verði hraust og hún er alveg að standa undir væntingum ;)

LITLU STELPUR HANS PABBA LITLA

4 komment

Hún er SVOOOO sæt litla stelpan okkar, 15,5 merkur og 52 cm og fæddist svo slétt og fín eina mínútu í átta á föstudaginn og fékk strax flottan lit. Mamma litla stóð sig eins og hetja og fékk litlu á bringuna um leið og hún kom út. Pabbinn fékk að klippa á naflastenginn og hjálpa til við að setja bleyju á krílið. Foreldrarnir eru að rifna úr stolti yfir litlu prinsessunni. Núna eru allir bara að hvíla sig og reyna að jafna sig eftir átökin. Myndir fá að fylgja flótlega þegar þær eru komnar úr framköllun (hehe.)

Settur dagur

Friday - 1.September 2006 13 komment

Í dag og á morgun er þessi ,,setti dagur” sem alltaf er talað um. Fyrsti sónarinn sem við fórum í sagði að barnið ætti að fæðast 1.september en næsti sónar sagði að dagurinn væri 2.september. Í dag er ég semsagt búin að ganga með barn í maganum í 40 vikur eða 280 daga og hafa ógleði og uppköst í 275 daga. Þetta þykir mér nú ansi góður árangur og allt algjörlega þess virði. Ég er nú alveg til í að litla gullið fari að láta sjá sig og heiðra spennta forledrana með nærveru sinni, helst fyrr en síðar. Það sem mér finnst nú fyndnast er að við þetta allt saman er gullið okkar virtist nú aldeilis ætla að taka forskot á sæluna og mæta á svæðið fyrir 12 vikum síðan og hef ég því ekkert mátt vinna síðan til að minnka líkurnar á fyrirburafæðingu. Ég hef greinilega sýnt krílinu hvernig manni á að líka vel inni í bumbunni því ekkert bólar á því þegar það loksins má koma =)

Við fórum og sóttum fína fína Emmaljunga-vagninn okkar í gær og þetta er að sjálfsögðu sá allra flottasti í bransanum og því verður sko heldur betur hægt að skella sér í torfærur og fínerí með þessari flottu græju ( hann er sko á gömbó mödder). Núna vantar bara litla barnið okkar til að setja í vagninn fína og til að prófa allt glæsilega dótið sem við erum búin að verða okkur út um. Það eru margir búnir að vera að spyrja hvort það sé eitthvað sérstakt sem okkur vantar og ef einhver er að velta þeirr spurningu fyrir sér þá vantar ósköp fátt.

Það er semsagt ekkert að gerast hjá okkur núna en við bíðum bara spennt og hlökkum til þegar þetta fer allt á fullt og við getum mætt á spítalann til að koma krúttinu okkar í heiminn. Það eru í mesta lagi 14 dagar í að krílið fæðist (þ.e.a.s. ef ég geng framyfir og verð sett af stað) þannig að það er nú alls ekki langt að bíða! Fyrst við erum búin að lifa af þessa bið í 280 daga so far (og ég sem get varla beðið eftir jólunum - þá kalla ég þetta nú ansi góðan árangur hjá mér) þá eru 14 í viðbót bara pís of keik! Svo eru bara ótrúlega spenó að vita hvort þetta er stelpa eða strákur og það hafa að sjálfsögðu allir sínar getgátur sem gerir þetta bara ENNÞÁ meira spennandi!

- Knús af Glæpanesinu þar sem beðið er eftir litlu kríli!