Ofurhetjur.com

One way ticket!

Wednesday - 22.November 2006 5 komment

2370

Við erum búin að kaupa okkur flugmiða til Danmerkur! Við FLYTJUM út til Ålaborgar 10.janúar - bara rétt rúmlega mánuður í að við borðum smörrebröð í hvert mál! Fyrstu skref litlu Ninjunnar okkar verða sumsé líklegast tekin í Danmörkinni!

Jólin eru sko alveg að koma - við erum búin að setja upp aðventuljósið í bílinn og jólalög í spilarann! ..og þegar jólin eru búin verðum við Ålaborgarar og Ofurhetjur på dansk ;)

Ísabella Sól Sigurðardóttir!

Saturday - 18.November 2006 6 komment

2165
Við eiguðumst litla yndislega frænku í gær! Hún er litla systir hans Patriks Dags og dóttir Steinunnar og Sigga. Mamman mín var viðstödd þegar hún fæddist og amma Drífa líka. Steinka frænka var alveg ótrúlega dugleg og voru þær mæðgur bara komnar heim strax í gær. Hún fæddist klukkan 00:08 17.nóvember og var 17 merkur og 55 cm, stór og flott gella. Ég held að hún hafi verið búin að heyra af því hvað ég er orðin stór (enda orðin 10 vikna) og ætlað að reyna að ná mér áður en hún kæmi í heiminn! Ég er sko búin að fá að sjá hana og liggja hjá henni og við erum bara strax orðnar ótrúlega góðar vinkonur! Litla sæt var svo skírð í gærkvöldi (allt á sama sólahringnum) og fékk hún fallega nafnið Ísabella Sól! Mamma mín segir að við séum sætustu frænkur allra tíma og ég er bara ekki frá því að það sé rétt hjá henni. Við setjum inn fleiri myndir af litlu bjútíbollunni bráðlega - Á myndinni uppi er ríkasta amman í bænum með Ninju Tíbrá og Ísabellu Sól!

Ég og mamma erum annars bara búnar að vera heima voða mikið upp á síðkastið. Mamma mín er svo paranojd að hún þorir ekki með mig út í þennan kulda því hún vill ekki að ég fái illt í lungun mín aftur. Ég er sko orðin þvílíkt stór (enda orðin stóra frænka) og vil bara fá að sitja og spjalla eins og hitt fullorðna fólkið. Helst af öllu væri ég til í að standa en mamma mín leyfir mér það nú ekkert alveg strax því fæturnir mínir eru ennþá svo litlir og linir - þessar mömmur! Mér er búið að vera eitthvað illt í bumbunni minni upp á síðkastið og er oft voða lítil í mér þegar við eigum að fara að sofa á kvöldin því þá líður mér oft illa. Ég vil helst af öllu kúra í fanginu á mömmu og pabba og er algjör brjóstabína og það er best að kúra á brjóstinu, þó ég sé ekkert endilega svöng því það er sko notalegast að liggja í mjólkurlyktinni og sofna. Ég er líka harðákveðin í því að vaggan er bara til að leika sér í en ekki til að sofa í og læt aldeilis heyra í mér ef mamma og pabbi eru eitthvað að gleyma því. Það er líka langmesta hlýjan á milli mömmu og pabba og þeim finnst hvort eð er rosa notalegt að hafa mig í millunni þannig að það er bara minn staður. Ég hjala og spjalla allan daginn og brosi alveg heilan hring. Augun mín eru risastór og falleg og ég get enganveginn ákveðið mig hvort þau eiga að vera brún eða blá. Jæja, ég ætla að fara að fá mér að súpa hjá múttunni minn!

Knús - Ninja Tíbrá STÓRA FRÆNKA!

2 mánaða í gær - 9 vikna á morgun

Thursday - 9.November 2006 5 komment

1787

Ninja Tíbrá er sko langflottust! Hún er orðin 60cm (fæddist 52cm) og 5335gr (fæddist 3900gr). Hún ætlar sko greinilega að verða hávaxin og falleg. Það liggur líka í augum uppi að hún fær rjóma en ekki einhverja undarennu úr brjóstunum því hún þyngist svo vel þessi bjútíbolla - komin með fína undirhöku og alles.

Við familyan vorum að skoða myndir af Elsu Björg á þriðjudaginn og vorum að tala um hvað hún væri dugleg, byrjuð að velta sér og svona og Ninja Tíbrá gerði sér lítið fyrir og velti sér af bakinu yfir á magann þá nóttina! Börn byrja yfirleitt á því að velta sér af maganum yfir á bakið en hún er nú ekkert að tvínóna við þetta þessi gella!

Hún brosir og hjalar allan daginn og er algjör gleðipinni og húmorisiti. Þegar hún hnerrar, hnerrar hún oftast 6x í röð og þegar hún er búin að hnerra þessi heljarins ósköp heldur hún áfram að herma eftir hnerrinu og glottir eins og hún sé að reyna að vera rosa sniðug og okkur finnst það að sjálfsögðu endalaust fyndið! ;)