Ofurhetjur.com

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið

Wednesday - 31.January 2007 3 komment

3661

Í gær og í dag erum við búin að fá mikið af pósti, í gær fengum við ,,sundhedskort” með dönsku kennitölunum okkar til að nota þegar við förum til doksa. Í umslaginu hennar Ninju Tíbrár var kortið hennar og bréf. Ég var viss um að þetta væri eitthvað svona krúttlegt ,,velkomin í landið litla barn” bréf en hafði nú aldeilis rangt fyrir mér! Bréfið var til útfyllingar um það hvort Ninja Tíbrá ætti að vera Organ Donor! Þetta fannst mér nú alveg tú mödds, 5 mánaða gamla barnið mitt þarf ekki alveg strax að fara að huga að dauðanum. Spurning hvort danirnir séu svona óskaplega skipulagðir, skipuleggi jarðarförina með fæðingunni og að hér sé ,,ekki er ráð nema í tíma sé tekið” algilt.
Í dag fengum við svo Dan-kortin okkar. Í danaveldinu virkar það þannig að hvergi getum við notað vísa-kort nema að þau séu sérstök dönsk vísakort sem okkar ramm-íslensku eru að sjálfsögðu ekki þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að redda sér Dan-kortum. Á Dan-kortinu mínu stendur: Anna Kristjansdottir! Þvílíkur sigur - loksins er ég orðin alnafna kynskiptingsins margfræga, eins gott að hún komi ekki að nappi af mér kortinu! Við eigum greinilega meira sameiginlegt en nafnið, mér finnst ég enganveginn eiga að heita Anna Kristjansdottir, það er hreinlega ekki ég og henni fannst hreinlega ekki að hún ætti að heita Kristján eða hvað hún hét fyrir aðgerð.

Telefónónúmeró

Saturday - 27.January 2007 7 komment

3612

Sjúbbídú! Við erum loksins búin að fá dótið okkar! Ég sit hérna í öllu draslinu að reyna að sannfæra mig um að nú þurfi ég aldeilis að fara að taka til. Friðgeir og Ninja Tíbrá fóru niður í bæ til að skila verkefnum, kaupa hillur og fá lánaða borvél til að setja upp gardínur og fleira skemmtilegt þannig að ég er bara ein hérna í kotinu - ótrúlega skrítið!

Hérna hefur verið upp á síðkastið þvílíkur kuldi! Þegar litið er út um gluggann lítur út fyrir að vera besti sumardagur ársins á Íslandi en svo þegar maður hættir sér út nístir kuldinn alveg inn að beini, ekki íslenskur kuldi, slydda, snjókoma og brjálað rok heldur bara stilla og sól og þurr kuuuuuuuuuuldi! Mér finnst þetta mjög merkilegt!

Ég fékk danskt símanúmer í póstinum áðan og Friðgeir fær sitt líklegast bara í næstu viku. Síminn hjá mér er: 0045 2990 8981. Það er nú ekkert flókið að muna, 0045 er bara landsnúmerið, 2990 er eini parturinn sem er flókinn og er ekki einu sinni það flókinn og 8981 er eins og endirinn á íslenska númerinu mínu!

Jæja, ég ætla að fara að drífa mig í að gera fint hérna hjá okkur í litla Ålaborgar-kotinu okkar!
Knús til allra heima og milljón sakn!

Tvöfalldan kjúkling í pasta takk fyrir takk!

Sunday - 21.January 2007 3 komment

3573

Við elduðum pasta og kjúkling í kvöldmatinn. Við erum ekki með hnífapör eins og áður hefur komið fram þannig að við redduðum okkur að sjálfsögðu og borðuðum pastaréttinn með staupglösum og innihald þessara staupa var mun betra en innihaldið sem ég man eftir að hafa skellt í mig úr staupglösum á pöbbum borgarinnar! Án efa besti staupRÉTTUR sem ég hef smakkað =)

Notaðir klósettburstar í skiptum fyrir handklæði og hnífapör

Saturday - 20.January 2007 2 komment

3548

Í gær fórum við út í Svenstrup á stórum kassabíl að sækja dótið. Þegar við komum þangað voru tveir ansi ligeglad danir hálfdrukknir þar og hjálpuðu þeir okkur að ferma bílinn. Ninja Tíbrá duglega krútt sat inní bíl á meðan og lúllaði eins og lítill engill. Við settum allt hafurtaskið í bílinn og furðuðum okkur á magninu. Þegar við svo fórum að taka upp úr kössunum í gær kom í ljós að vegna þess að við vorum með tvo ligeglað, hálfdrukkna dani með okkur í að bera kassa, slæddist með þetta fína antik-bollastell sem við könnuðumst ekkert við, fullur kassi af framlengingasnúrum og notuðum klósettburstum og glás af páskaskrauti! Það sem hins vegar kom ekki upp úr kössunum voru handklæði, sængurföt, hillur, glös, hnífapör, parketsópur og fleira hressandi sem þar átti að vera þannig að allar líkur eru á að okkar kassar og kassarnir með notuðu klósettbustunum hafi ruglast og fólkið sem fékk okkar kassa fékk mun meiri fjársjóð frá okkur heldur en við frá þeim! Það sem kom upp úr kössunum var hins var ótrúlega margt fyndið og ó svo margt nytsamlegt eins og til dæmis allt til eldamennskunnar sem var vel metið eftir að hafa lifað á pizzum með allskyns góðgæti síðustu daga. RÚMIÐ var svo sannalega kærkomið þar sem við erum búin að sofa á vindlausri vindsæng og gátum aldeilis sofið veeeeeel í nótt.

Í dag erum við svo búin að vera ýkt dugleg og setja í tilljón-milljón þvottavélar og gera allt ótrúelga fínt hjá okkur. Núna eru sko allir meira en velkomnir í heimsókn þannig að það er um að gera að panta flugmiðann hið snarasta! Dótið okkar frá Íslandinu kemur svo núna í vikunni. Skipið er komið í höfn í Árósum og verður dótinu okkar skutlað til okkar í fyrsta lagi á mánudaginn og síðasta lagi á fimmtudaginn - sjibbííííí! Þegar við verðum búin að koma öllu því dóti fyrir líka, ÞÁ verður sko fínt hjá okkur og þá verðum við meira að segja með hnífapör til að bjóða öllum sem koma í heimsókn í mat híhíhí!

Ninja Tíbrá fékk svo loksins Tripp-Trapp stól í gær! Hún fékk pening fyrir Tripp-Trapp í sængurgjöf frá Heddý og Palla, Krisa og Hófý, Allú og Gísla og Gullú og Gungör og öllum familyunum þeirra. Í gær var umslagið því dregið upp og keyptur stórglæsilegur stóll! Ninja fékk að velja litinn og var lengi að velta þessu fyrir sér og ákvað svo að slefa duglega á rauða stólinn þannig að rauður varð fyrir valinu og hún er sko búin að sitja í honum, skríkja og leika sér með dótið sitt og táslurnar sínar í allan dag!

Ég og Tíbrá erum bara einar heima núna, Frigeir er að horfa á boxið með stelpu-pöbbunum uppi á Borgmasterhæðinni og við gellurnar ætlum sko aldeilis að skemmta okkur yfir nýjasta Greys Anatomy þættinum og kúra!

Knús til allra heima - við minnum á að það er best að kaupa flugmiðana sem fyrst fyrir sólina og sumarylinn hjá okkur svo þeir séu sem ódýrastir, við lofum að það verður sko til vindsæng MEÐ lofti í þegar gestir koma og við verðum líka búin að kaupa glös því eins og er eru bara til staupglös!

Ef einhvern saknar notaðra klósettbursta (eða vantar á heimilið) í afar slöku ásigkomulagi þá eru þeir til hjá okkur, þeir eru falir fyrir handklæði, glös og hnífapör, hugsanlega eitthvað minna - um að gera að koma bara með tilboð!

Fótós

Thursday - 18.January 2007 2 komment

3536

Þá er loksins komið í ljós hvað gerðist eiginlega með húsgögnin okkar (þau sem voru í geymslu hérna úti). Maðurinn sem sá um flutningana er vant við látinn sökum veikinda og hann hélt allt bókhald í hausnum á sér þannig að núna eru góð ráð dýr þegar fólk hringir inn og biður um að fá þau aftur (það er að segja ef þeir á annað borð svara þarna hjá Flyttemand Nielsen). Þeir höfðu samband við okkur og báðust innilegrar afsökunar á að hafa týnt dótinu okkar, lofuðu öllu fögru um að þeir myndu á endanum finna það og að þetta yrði leyst hið snarasta. Þeir urðu heldur betur hressir þegar ég sagði þeim að ég hefði nú þegar fundið dótið mitt og þeir gætu bara sótt það á morgun. Við fáum sem sagt vonandi allt heila klabbið á morgun.

Í öðrum fréttum er það helst að við hentum inn fullt af myndum af manndrápsveðri og ferðalögum milli landa. Þið vitið hvar á að finna þær (hér). Við settum líka inn myndir af jólunum og svoleiðis, þið finnið þær (hér). Næsta mál er að koma íbúðinni í myndunarhæft stand svo þið getið séð hversu vel við búum. Svo er um að gera að mynda næsta nágrenni og þá þurfið þið næstum ekki að koma í heimsókn (NÆSTUM).

Go’ morgen Danmark!

Wednesday - 17.January 2007 5 komment

Jæja, þá erum við komin heim í Ålaborgina okkar. Við fengum íbúðina um leið og við komum og gistum því fyrstu nóttina í nótt. Við erum búin að reyna að ná í Flyttemand Nielsen sem var að flytja fyrir okkur dótið hans Fritz hérna í Ålaborg og enginn svarar. Við vorum farin að halda að þessi ágæti maður hafi tekið peningana okkar (sem við borguðum fyrir að flytja dótið) og hent dótinu okkar hlæjandi í sjóinn og dansað trylltan dans á meðan hann horfði á það sökkva. Við náðum svo núna rétt áðan í eitthvað annað fyrirtæki sem er í samstarfi með Flyttemand Nielsen félaga okkar, semsagt þau sem eru að geyma dótið sem Nielsen flutti fyrir okkur, og í ljós kom að þessi ágæti maður hefur ekkert látið sjá sig og ekkert hefur til hans spurst í lengri tíma! Við megum sumsé koma á morgun og sækja dótið okkar sem er þar í geymslu því Nielsen sem átti að flytja það til okkar fyrir tveimur dögum virðist ekkert ætla að flytja fyrir okkur, enda er hann horfinn af yfirborði jarðar. Á morgun er sumsé planið að leigja bíl og fara í Jysk Sengedunslagerinn (Rúmfatalagerinn) og kaupa það sem okkur vantar (kommóðu, óhreinatauskörfu og eitthvað) og fara líka í Bilka (riiiiiiiisa stórverslun þar sem allt í heiminum er til) til að kaupa bleyjur á litla silkirassinn okkar sem ekki þolir neinar bleyjur nema Pampers og fara svo að sækja dótið okkar. Bilka og Rúmfó eru sumsé aðeins útúr borginni og dótið okkar er í Nörresundsby sem er líka aðeins útúr þannig að það er bara fínt að við ætlum að leigja bíl til að klára að gera kósý hérna hjá okkur.

Við erum búin að vera bara í reddingum síðan við komum hingað, gerðum heiðarlega tilraun til að skrá okkur inn í landið en eigum að koma aftur seinna með útfyllta pappíra (álíka mikið vesen og að sækja um fæðingarorlof), keyptum okkur internettengingu og sjónvarpstengingu, fórum í skólann hans Friðgeirs til að redda málunum með síðustu önn og fórum í heimsóknir í gær. Við fórum í gær og kíktum á litla krúttstrákinn hjá Hauki og Ríkey (sem ég vil endilega fá að kalla Alla litla) og fengum hjá Eyjólfi og Maju lánað ýmislegt til að lifa af fyrstu dagana hérna.

..Við erum annars bara ó svo hress hérna í kósý-kotinu okkar á vindsænginni og söknum allra íslendinganna okkar ósköpin öll! Knús til allra heima!

Ferðalag í ofsaveðri

Sunday - 14.January 2007 4 komment

Við erum komin aftur til Danmerkur eftir mikið og langt ferðalag. Við höfðum það ótrúlega gott í Sverige hjá Ámunda, Ástu og Elsu gellu, borðuðum dýrindis jólamat og spiluðum fram á rauða nótt. Í nótt og dag var aftakaveður í Svíþjóð og þrír eru látnir sökum óveðurs en við kipptum okkur ekkert upp við það og skelltum okkur út á strætóstoppistöð og fórum af stað til Danaveldisins. Við tókum 4 strætóa (því lestin frá Lundi til Malmö gekk ekki sökum ofsaveðurs) og 2 lestir og komumst loks til Guðnýjar rétt eftir átta í kveld. Ninja Tíbrá var alveg í essinu sínu í lestinni og heillaði lítinn sætan hálfsárs tyrkjagaur í lestinni upp úr skónum.

Við vildum bara láta vita af okkur því veðrið var svo tryllt og einhverjir búnir að senda áhyggjufull sms í dag! Knús til allra frá Danaveldispakkinu og Ninju törkílover!

Kóngsins Köbenhavn..

Friday - 12.January 2007 3 komment

Við erum núna stödd í Lundi í Sviþjóð hjá Ámunda, Ástu og Elsu Björgu. Við sendum allt okkar hafurtask í skip á síðastliðinn þriðjudagsmorgun, gengum frá íbúðinni og knúsuðum familyuna fram eftir kvöldi. Fyrir allar aldir á miðvikudeginum fórum við út á flugvöll og í flugið okkar til kóngsins Köbenhavn. Við tjekkuðum okkur inn á hótel og geymdum endalausa farangurinn uppi á hóteli á meðan við skoðuðum borgina. Við skoðuðum hafmeyjuna (bestu vinkonu mín og Tíbrár því við erum jú báðar Meyjur og elskum vatnið), versluðum á Strikinu og i Field’s (stærstu verslunarmiðstöð á norðurlöndunum) og rölltum í rigningunni um Nyhavn. Þetta var sko algjört æði og við borðuðum góðar súkkulaðikökur og nutum lífsins í botn. Ninja Tíbrá uni sér vel i vagninum (enda geggjað flott tryllitæki) og rigningin og rokið var höndlað með hlýjum fötum og regnhlíf sem snérist alltaf á rönguna í rokinu. Við vorum tvær nætur í Köb og svo í dag hittum við Ástu og Elsu Björgu á lestarstöðinni og tókum með þeim lest og strætó yfir til Lundar. Ninja Tíbrá og Elsa Björg knúsuðust í lestinni og eru sko orðnar ótrúlega góðar vinkonur. Við borðuðum saman dýrindis pizzu með krabba, karrý og majonesi og ætlum að hafa það gott hérna með þeim fram á sunnudag og fyrsta mál á dagskrá á morgun er að sjálfsögðu að kíkja í Polarn þvi þetta er jú heimaland P.O.P! Á sunnudaginn heldur svo ferðalagið áfram því þá förum við til Guðnýjar í Óðinsvé. Við ætlum sko aldeilis að hafa það næs með henni á 25 ára afmælisdeginum hennar á mánudaginn og fara svo HEIM til Álaborgar á þriðjudaginn. Við ætlum að hitta íbúðareigandann kl.15:00 í Östre Allé 26, 2sal (3hæð) til vinstri þar sem við munum búa næstu mánuði!

Við vorum að skoða myndir af Patrik Degi, Ísabellu Sól og Þorgeiri Kristjáni og hún var sko meira en lítið áhugasöm, reyndi að grípa í tölvuna, þekkir greinilega sitt fólk! ..Knús til allra heima - Ninja Tíbrá bjútíbolla sendir slef og hlátur til allra - hún situr hérna hjá mér, var að klára að drekka og slefar áa lyklaborðið og hlær!

Jólin okkar

Sunday - 7.January 2007 3 komment

2898

Jólin voru stórkostleg í alla staði! Við vorum í Lindasmáranum á aðfangadag og Vesturberginu á jóladag. Ninja fékk þvílíkt pakkaflóð og þökkum við innilega fyrir okkur! Á milli jóla og nýárs einkenndust dagarnir af jólaboðum og spilakvöldum út í eitt. Jólin voru sumsé yndisleg! Á gamlársdag borðuðum við heima í kotinu okkar bara við þrjú. Það var frábært og við borðuðum djúpsteikta osta í forrétt, dýrindis pekingönd í aðalrétt og heimatilbúinn ís og marsíssósu í eftirrétt, namminamm! Við fórum svo í Lindasmárann og horfðum á skaupið og borðuðum meiri ís og vorum svo í Vesturberginu á miðnætti. Ninja Tíbrá svaf bara í fanginu á mömmu sinni á meðan flugeldabrjálæðið gekk yfir. Á nýársdag var svo partýið endurtekið og aftur borðað þriggja rétta dinner - namminamm. Við byrjuðum að pakka á nýársdag og erum ekki enn búin en þetta klárast vonandi allt saman á morgun.

Flugið okkar er kl.7:00 um morgun 10.janúar þannig að í raun eigum við bara morgundaginn og þriðjudaginn eftir á Íslandinu! ,,Við flytjum í janúar 2007″ hljómaði alltaf svo fjarlægt en allt í einu er kominn janúar 2007 og við að fara út og erum ótrúlega spennt!
2.janúar fengum við svo íbúð! 2.janúar er sko ekkert smá góður dagur - Pabbi Þorgeir og Andrea Þóra eiga bæði afmæli, í fyrra tilkynntum við komu Ninjunnar okkar og í ár fengum við íbúð! Íbúðin er ótrúlega kósý (eins og sjá má hér) og er eins og klippt út úr IKEA-bæklingi, híhíhí! Hún er 57 fermetrar og á fínum stað í miðbæ Ålaborgar.

Sumir diskarnir sem við sendum út fyrir jólin voru bilaðir þannig að það er hægt að nálgast jólastuttmyndina hér!

Ég setti inn nokkur myndaalbúm í desember og janúar og á næstu dögum koma inn fleiri og ég loooooofa að vera duglegri að setja inn myndir í danaveldinu!