Feb 22
4175

Við mæðgur erum mættar á klakann! Ég er alveg viss um að við höfum pakkað aðeins of miklu með okkur, fyrir utan 55,6kg sem við vorum með í farangur held ég að góða veðrið hafi farið með ofan í tösku! Veðrið hérna á Íslandinu er búið að vera þvílíkt gott síðan við komum en vorveðrið í danaveldinu algjörlega búið að víkja fyrir snjóhörku! Friðgeir veður snjó upp á hné til að komast í skólann á morgnanna á meðan við erum hérna í sólinni á Íslandinu. Við erum búnar að hafa það ótrúlega gott og viljum ólmar hitta sem flesta á meðan við erum hérna (förum 5.mars) þannig að um að gera að hringja í 868-8981 og panta hittings-tíma =) Við gerðum okkur glaðan dag á konudaginn, síðasta daginn áður en við skelltum okkur í ferðalagið og fórum í dýragarðinn og gáfum öndunum brauð. Ninja Tíbrá var alveg í þvílíku stuði og henti brauði í hausinn á öndum og heyrði ljónin í dýragarðinum öskra!

Við fórum svo í lestina fyrir allar aldir á mánudaginn síðasta, rétt um sexleytið um morguninn og komum til Köben um ellefu og lentar í Kef-city um fjögur. Við settum farangurinn okkar með elskulegum íslendingum sem við hittum á vellinum og þeim fannst ég algjör víkingur að vera með barnið framan á mér og með tvær risavaxnar ferðatöskur og skiptitösku. Flugið var algjör hörmung því flugvélin hoppaði alla leiðina og það var aldrei slökkt á sætisbeltaljósunum þannig að Ninja sæta Tíbrá grét meira og minna alla leiðina. Sætan grét svo alla leiðina til Reykjavíkur líka því hún var EKKI að gúddera að vera föst í stólnum því frjálslyndið í Danmörku er svo mikið að hún er aldrei bundin niður, enda eigum við ekki bíl. Fyrir utan þetta er hún bara búin að vera bestust eins og henni einni er lagið, brosir, situr og skríður eins og særður hermaður sem dregur á eftir sér lappirnar.

Við settum inn alveg böns af nýjum myndum, bæði úr dýragarðinum og fyrstu Íslands-dögunum! Við erum sumsé bara búnar að hafa það endalaust gott í sprengidags- og bolludagspartýum en söknum Fritzins okkar í snjóhörkunni alveg óendanlega mikið!

Feb 15
3921

Já, eins og titillinn ber með sér þá borðaði Ninja Tíbrá strikamerki í dag. Mamma hennar dró hana með sér í Toys’R'Us og verslaði handa henni Línu Langsokks dúkku (sem er álíka stór og Ninja btw). Ninja var náttúrulega alveg frá sér af hrifningu og réðst á hana með það að markmiði að gleypa hana í sig. Hún náði ekki lengra en að strikamerkinu og gleypti eins mikið og hún gat áður en mamma hennar (þ.e.a.s. Anna Sigga) kippti restinni út úr henni. Við höfðum ekki miklar áhyggjur af þessu svo sem en skemmtum okkur konunglega yfir því undir miðnætti þegar strikamerkið skilað sér út hinu megin, ögn grænna á litinn en þegar það fór inn. Pabba líst vel á dóttur sína :D

Feb 14
195

Friðgeiri var boðið að taka þátt í næstu seríu af Bachelor-þættinum! Þeir eru í leit að einstaklega myndalegum arkitekti sem er gáfaður, hnittinn og elskulegur - ekki skrítið að þeir hafi beðið hann! Hann afþakkaði gott boð og ætlar bara að vera einkabachelorinn okkar Ninju Tíbrár í staðinn.

Fritz fór í 30 eininga prófið í dag og BRILLERAÐI! Við mæðgurnar vorum viðstaddar vörnina (sem klappstýrur) og Ninja gargaði stundum inní til að bæta einhverju við ef henni fannst pabbi hennar vera að gleyma einhverju og kennararnir gjörsamlega dýrkuðu hann! Hann fékk glæst ummæli og er hetja valentínusardagsins. Við gáfum honum sætan pakka í tilefni dagsins og hann okkur líka - veiiii! Við mæðgur erum sko þvílíkt stoltar af okkar manni! Ég og Ninja Tíbrá komum á klakann á mánudaginn, það er reyndar spurning hvort við komumst fyrir í flugvélinni fyrir öllu góssinu sem við erum að koma með sem við höfum verið að kaupa í útlandinu fyrir familyuna og vini =)

Annars er nú orðið óhætt að upplýsa alþjóð um barnaskarann sem er á leiðinni seinna á þessu ári! Ásgeir Garðar (sonur Ágústu systur) og Inga Jóna eru að eignast lítið kríli í ágúst! Lóa (frænka hans Friðgeirs) og Gulli eru að eignast tvíbura í júlí! Vá hvað ég væri til í að vera þau - ég er alveg tvíbura-sjúk! Guðrún Veiga (bekkjarsystir og vinkona að austan) og Gummi eru að eignast lítinn strák í maí! Já ekki hélt ég að ég og Guðrún Veiga yrðum fyrstar í bekknum til að koma með afkvæmi (guðanna) en svona er lífið skemmtilegt, enginn veit sína ævina fyrr en öll er! ..svo eru örugglega fleiri yndisleg kríli á leiðinni sem ég man ekki eftir í augnablikinu og liggja ennþá í leyni í hlýrri mömmubumbu =)

..já og við skelltum inn myndum!
Til hamingju með bandaríska klisjudaginn!

Feb 12
3836

Gróa amma og Guðný komu til okkar á fimmtudaginn og það var ótrúlega gaman að hafa þær. Höfðum spilakvöld, fórum í verslunarferðir, saumuðum, prjónuðum, borðuðum fullt af góðum mat og fórum út að borða! Það var sumsé rosa stuð hjá okkur um helgina. Í gær fékk Ninja Tíbrá svo nýja tegund af graut, graut með perubragði! Henni fannst hann rosa góður og lék á alls oddi eins og alltaf! Tíu mínútum eftir að hún fékk grautinn byrjaði hún að bólgna upp og verða rauð allstaðar þar sem grauturinn snerti hana. Útbrotin voru út um allt og voru eins og efnabruni. Okkur leist nú ekkert á þetta og þegar hún byrjaði að hósta í gríð og erg og vera pirruð og varð þung í andadrætti sáum við ekkert annað í stöðunni en að skella okkur niður á sjúkrahús og láta kíkja á gelluna. Okkur fannst líklegt að hálsinn væri að bólgna líka og þess vegna væri hún að hósta. Á meðan við vorum að bíða eftir lækninum róaðist skvísan og útbrotin dofnuðu. Við vorum eins og gefur að skilja ægilega fegin! Læknirinn kíkti svo aðeins á hana og hún var þá orðin hress og bólgan í hálsinum að ganga tilbaka. Hann sagði okkur að þetta væru týbísk ofnæmisviðbrögð (eða oÐnæmisviðbrögð eins og vinkona hennar Andreu á Nonnabitum segir) og að ekkert væri við þessu að gera. Hún átti svo erfiða nótt og dag í dag að við mæðgur skelltum okkur í bæinn að kaupa pakka handa skvísunni fyrir dugnaðinn á spítalanum! =) Við þurfum greinilega að passa litla silkirassinn okkar vel og vandlega því hún er með ó svo viðkvæma húð og vonum bara að þessi oÐnæmisviðbrögð hafi bara verið tilfallandi en ekki eitthvað ofnæmi sem verður vandamál í framtíðinni!

Ninja Tibrá litla sætakrútt kann orðið að sitja! Hún vill núna bara fá að sitja takk f yrir og endilega fá að sitja EIN! Í dag sat hún á gólfinu og lék sér með dótið sitt og kyrjaði MAMMA-MAMMA-MAMMA-MAMMA og rétt í þessu var hún að segja BABBA! Hún er sko mesta krúttið! =) ..Við vorum að setja inn nokkrar nýjar myndir af helginni og bólgna andlitinu hennar Ninju Tíbrár!

Feb 5
3757

Ninja Tíbrá fékk að smakka graut í fyrsta skipti í gær. Við ætluðum bara aðeins að leyfa henni að smakka og fara hægt í þetta og leyfa henni að venjast grautnum ef henni þætti hann góður en bara bíða aðeins með þetta ef henni þætti þetta ógeð. Hún japlaði aðeins á grautnum og hló svo ægilega, vildi bara fá meira! Í dag gáfum við henni svo aftur smakk og hún skríkti af gleði og var í þvílíku stuði á meðan hún var að borða og svo þegar smakkið var búið fór hún að háskæla og tárin láku niður kinnarnar. Henni finnst þetta greinilega æði þannig að við ætlum að hafa graut á boðstólnum í kvöldmatinn næstu daga! Hún sofnaði svo bæði í gær og í dag um hálf-tíu og sefur eins og steinn þannig að grauturinn er greinilega alveg málið, enda er hún orðin fimm mánaða gella! Við vonum bara að henni finnist allur matur alltaf svona góður!
..Við settum inn nýjar myndir =)

Feb 3
3735

Ninja Tíbrá lá í sófanum í gærkvöldi hjá pabba sínum sem var að læra. Hún var búin að vera voða skemmtileg og frussa og alles og pabbi hennar var greinilega ekki að sýna henni næga athygli því hún teygði hendurnar í áttina að mömmunni sinni sem var að taka til og sagði hátt og snjallt: MAMMA! Mamman trúði þessu varla, bráðnaði að sjálfsögðu algjörlega og réði ekki við sig úr hamingju, snarhætti að taka til og sýndi gellunni alla athyglina! Í dag er hún svo fjórum sinnum búin að segja MAMMA! Fimm dögum áður en bjútíbollan okkar varð fimm mánaða kom fyrsta orðið, ætlar greinilega að feta í fótspor móður sinnar sem sögð er hafa fæðst talandi! Þvílík endemis gleði og hamingja að vera MAMMA!

Feb 1
3713

Icelandair bauð okkur mæðgunum tilboð sem við gátum ekki hafnað! Við bókuðum okkur ferð heim til Íslands mánudaginn 20.febrúar og verðum í 2 vikur, fljúgum aftur heim mánudaginn 5.mars! Við eigum eftir að sakna Friðgeirs alveg óendanlega mikið en hann verður hvort eð er á fullu í skólanum á þessum tíma. Við erum sko ekkert smá spenntar enda er margt að gerast í febrúar og mars, Patrik Dagur verður 2 ára 16.febrúar, Siggi 26 ára 2.mars, Steinunn 25 ára 22.mars og Þorgeir Kristján verður 11 ára 24 mars! Við viljum sko ekki missa af öllum þessum SPANGARLAUSU-partýum sem ég legg til að verði öll haldin á meðan við mæðgurnar erum á klakanum! Ég bind svo vonir við að Sigurlaug mín haldi líka tryllt afmæli þarna á þessum tíma ef hún heldur upp á afmælið á annað borð! Ég sé svo fram á að ég og Andrea höldum tveggja manna slúðurpartý og tölum um nýjasta slúddann! Friðgeir er byrjaður í skólanum á fullu og byrjaður á svokölluðu ,,miniproject” sem er eins og Hörpunámskeiðin í HR. Þetta er voða skemmtilegt og spennandi allt saman! Hann er í skólanum til 19:00 í kveld þannig að þetta er allt á góðri siglingu. Þetta nær allt saman hápunkti þegar ég og Ninja Tíbrá verðum á Íslandi, sem er bara glæsilegt!

Við keyptum stútakönnu fyrir Ninju Tíbrá í gær svo hún venjist á að drekka bara úr svoleiðis í staðinn fyrir pelanum þegar hún fær vatn og svoleiðis. Við bjuggumst nú ekki við mikilli flugeldasýningu þegar við létum hana fá könnuna í gær og héldum að það tæki aldeilis tíma að venjast henni en hún tók könnuna og stakk henni upp í sig og fékk sér að súpa! Hún er svo bráðgáfuð þessi elska! Henni finnst voða sport núna að sitja í Tripp-Trappnum og súpa úr stútkönnunni og spjalla! Hún er allt í einu orðin eitthvað svo fullorðin, nánast farin að sitja sjálf og spjallar alveg út í eitt! Henni finnst rosa gaman að leika sér og veltir sér alveg fram og tilbaka, velti sér meira að segja út úr rúminu okkar um daginn en dýnan lá sem betur fer bara á gólfinu og ekki fætur undir þannig að fallið var ekki mikið, kom bara smá kúla! Hún er voða mikið að uppgötva röddina og hvað hún getur gert með henni þessa dagana, hún gargar stundum bara og bregður alveg ægilega, áttar sig ekki alltaf á því að þetta eru hennar læti. Henni finnst líka langbest að syngja sig í svefn, hún vill sko hafa sína duddu og kúra einhversstaðar í einni klessu, annaðhvort í fanginu eða í rúminu eða eitthvað og svo syngur hún sig í svefn og sýgur dudduna sína. Hún elskar líka spegilinn, getur sko alveg spjallað lengi lengi við sætu stelpuna sem þar býr. Hún er öll í því að kyssa og knúsa og gera ,,aaaaaaaa” og það er algjört ææææði! Hún hermir líka þvílíkt eftir og reynir að gera eins og hljóð og hreyfingar, oft með mjög fyndnum afleiðingum. Alltaf þegar ég er að reyna að fá hana til að segja mamma þá segir hún ,,maaaaemma” og ,,maaaaaææææ” sem verður að einhverju ægilega skræku hljóði eins og þegar hún er að gera ,,aaaaa” og þetta vil ég túlka sem mamma! Mér líður eins og ég eigi klárasta barn sem fæðst hefur!