Ofurhetjur.com

Kanarííííí beibííííí!

Thursday - 29.March 2007 8 komment

293

Já leidís end djentölmen - við pöntuðum okkur í dag ferð til Kanarí! Þar ætlum við að eyða páskunum í sól og blíðu og ærlegri afslöppun. Við förum eftir viku og verðum í viku! Á páskunum í fyrra vorum við á Cook eyjum í frábæru yfirlæti, með Tíbrána í bumbunni og snorklgleraugun á nefinu og þessir páskar verða eflaust ekki síðri! Við verðum í þriggja herbergja íbúð þannig að Ninja Tíbrá fær sitt eigið herbergi í heila viku - úje! Fyrir utan hjá okkur er sundlaug og ströndin og miðbærinn mjög stutt frá. Við fljúgum frá Álaborg og verðum sótt út á flugvöll og keyrð upp á hótel þannig að þægilegheitin gætu ekki verið meiri og að sjálfsögðu fengum við þetta á trylltu tilboði eins og góðum dönum sæmir! Þetta verður fyrsta ,,fjölskyldupakka” ferðalagið okkar og eflaust dálítið annað en við höfum verið að gera hingað til en erum æsispennt yfir þessari skemmtilegu þróun! Við verðum með stóra íbúð þannig að ef einhver á leið hjá þá er alveg hægt að gista í herberginu ,,hennar” Ninju Tíbrár.

Við foreldrarnir ætlum að einbeita okkur að því að slaka ærlega á og sleikja sólina en Ninja Tíbrá ætlar að einbeita sér að því að sleikja sandinn og brosa hringinn eins og alltaf.

Jeremías á jólaskónum - spenningurinn er alveg að fara með okkur!

One flew INTO the cuckoo’s nest

Monday - 26.March 2007 5 komment

4997

Í gær skiptist yfir í sumartíma hjá okkur og núna erum við 2 tímum á undan Íslandi. Í morgun vaknaði Ninja Tíbrá fyrir allar aldir eins og vanalega en útaf tímabreytingunni þá vaknaði hún klukkulega séð ekki alveg jafn snemma og vanalega og það var nú vel þegið. Friðgeir fór í skólann og ég og Ninja Tíbrá fórum fram í stofu eins og alla morgna. Ég dró frá til að hleypa sólargeislunum inn til okkar, opnaði gluggann (sem opnast alveg endalaust mikið) og setti Tíbrá á gólfið til að leika sér á meðan ég fór og klæddi mig og tannburstaði. Ég heyrði í Ninju söngla ,,mamma mamma baba” á meðan hún lék sér en svo allt í einu hætti hún og ég heyrði eitthvað ansi einkennilegt hljóð úr stofunni. Ég fór fram og leit á Ninju og sá að hún starði stórum augum á eitthvað sem hún var staðráðin í að ná í. Þetta eitthvað - var DÚFA! Næstu mínútur fóru í að reyna að sannfæra dúfuna um að hún ætti ekki heima í stofunni hjá okkur með því að segja ,,sjúh - sjúh” og fleira álíka gáfulegt við greyjið sem var dauðskelkuð á atferli mínu. Ég reyndi meira að segja trixið hennar Rachel úr Friends (að fanga dúfuna í pott) en allt kom fyrir ekki. Ninja skemmti sér konunglega yfir þessu nýja dóti sem var mætt hérna inn í stofu og vildi ólm leika með það. Þegar ég var búin að reyna að reka vesalinginn út með kústi og ýmsum nýstárlegum aðferðum gafst ég upp. Ég ákvað að reyna að taka hana og setja hana út um gluggann og sjá hvort hún myndi ekki bara sætta sig ágætlega við að vera þar en þá kom fát á vinkonuna og hún flögraði af stað, fyrst beint á rúðuna en svo rataði hún út og ég og Ninja Tíbrá horfðum á þessa nýju vinkonu okkar flögra um hverfið! Seinnipartinn kíktum við svo í garðinn sem er hérna rétt hjá okkur og gáfum öndunum og DÚFUNUM sem þar búa kanilsnúða og gotterí og reyndum að finna dúfu-vinkonuna okkar en sáum hana ekki í fljótu bragði. Já, alltaf lendi ég í einhverju svona spaugilegu - ef það er ekki að hafa pöddu skríðandi undir skinninu á mér í 9 mánuði þá er það dúfa inni í stofu - svona er lífið mergjað, fullt af óvæntum og skemmtilegum uppákomum!

A different kind of hero..

Sunday - 25.March 2007 4 komment

4867

Í gær skellti mamman á heimilinu sér út! Síðan við komum til Danaveldisins hef ég ekkert kíkt út eftir kvöldmat (sem er nú nauðsynlegt annað slagið, þá sjaldan að maður lyftir sér upp) en það breyttist aldeilis í gær. Áladívurnar, skvísufélagið hérna í Álaborg, héldu 80’s djamm og þar mætti ég galvösk með legghlífar og póníteil on ðe sæd! Það var ótrúlega fínt og ég var án efa eina edrú konan á svæðinu - sem hressir, bætir og kætir. Þetta var í fyrsta skipti sem ég var án Ninju í heilt kvöld og það var bara ótrúlega hressandi, ég bjóst við andstoppi úr mömmu-þráhyggju en ekkert slíkt lét á sér kræla. Við skemmtum okkur konunglega og fengum kynningu á ýmsu, tjah, ansi skemmtilegu! =)

Í kvöld fór ég svo aftur út, ég fór og hitti fjórar hressar skvísur hérna í Álaborg og við borðuðum glás af nammi og horfðum á stelpumynd. Gellurnar eru að sjálfsögðu íslenskar og að vera í þessum sporum, í öðru landi með nýju tungumáli fær mann til að hugsa sig tvisvar um áður en maður blótar pólverjum eða tælendingum sem hópa sig saman á Íslandi og eru með sína eigin sérvöruverslun - við íslendingarnir erum engu skárri! Eeen, mér fannst þetta ægilega gaman og ég er ansi ánægð að mér tókst að vera án Ninju Tíbrár tvö kvöld í röð og skemmta mér konunglega í spandexi fyrra kvöldið og með endalaust magn af nammi seinna kvöldið. Á meðan var Ninja Tíbrá í öruggum og vönum höndum föður síns þannig að aðskilnaðarkvíðinn sem ég hafði fyrirfram var algjörlega óþarfur.

Ég tók svo stærtó heim á leið (eins og góðum dana sæmir), og fór út eins nálægt heima og mögulegt var og röllti svo restina (hér um bil einn Eskifjörð eða svo) með ipoddinn í eyrunum í kolniðamyrkri! Ég læt sko ekki smá myrkur og áttavillu buga mig þegar ég hef ljúfa tóna til að hvetja mig áfram og hughreysta!

..Það er ómetanlega gott að koma aftur heim í kotið og fá knús frá Fritz og sjá litlar Ninju-hendur sem vilja komast í mömmufang til að kúra og nudda mömmuhár! =)

Hann á afmæli í dag..

Saturday - 24.March 2007 2 komment

4456

Þorgeir Kristján, yndislegasti litli bróðir sem nokkur getur hugsað sér á afmæli í dag! Ég vildi óska þess að ég gæti gefið honum knús en hann verður bara að fá extra stórt knús næst þegar ég hitti hann! Töffarinn er 11 ára í dag - tíminn líður heldur betur hratt!

Á þessum tíma fyrir ári síðan vorum við að keyra um eyðimerkur Ástralíu - þá hringdi ég í Þorgeir Kristján til að óska honum til hamingju með afmælið um miðja nótt svo ég myndi ná honum þegar hann var búinn í skólanum heima á Íslandi! Þá var ég nýbyrjuð að finna fyrir hreyfingum hjá Ninju Tíbrá í bumbunni og ég lá útí eyðimerkursandinum í myrkrinu fyrir utan húsbílinn okkar að horfa á stjörnurnar og tala við Þorgeir Kristján í símann og Ninja Tíbrá sparkaði á fullu, enda er Þorgeir Kristján í algjöru uppáhaldi hjá henni!

Til hamingju með afmælið gullið mitt - þú ert æði! :D

Hún á afmæli í dag..

Thursday - 22.March 2007 1 komment

4849

Steinunn Gerður yndisleg systir mín, frábær vinkona og sólargeisli er 25 ára í dag!

Á myndinni er hún með Ísabellu Sól í bumbunni (sama dag og hún fæddist) og Patrik Dagur sætakrútt er að knúsa mömmuna sína og ófædda systur!

Til hamingju með afmælið eeeelsku Steinka mín - ég elska þig alveg jafn mikið þó þú sért orðin hálf-fimmtug! :D

..Það er á svona dögum sem er erfitt að búa í útlöndum!

Tvær tennur komnar

Wednesday - 21.March 2007 15 komment

4768

Við höfum það sko gott hérna í Danaveldinu! Ninja Tíbrá er orðin svo gasalega hrifin af dótinu sínu að hún leikur sér orðið ansi lengi í einu og raular oft á meðan hún er að leika, ekkert smá krúttlegt! Við erum ennþá mikið að velta fyrir okkur hvernig augun hennar verða á litin, þau eru móbrúngrá þessa dagana en suma daga eru þau alveg blá og aðra dökkbrún. Kannski verða þau alltaf bara í óráðum lit og skipta bara um lit eftir því hvað passar við dressið sem hún er í því hún er jú svo mikil tískulögga!

Pabbi hennar fann tönnsluna, sem við vorum að bíða eftir, á laugardaginn. Það er ekkert smá sætt að sjá hana skælbrosandi - eins og hún er alltaf - með tvær litlar, skjannahvítar tönnslur í neðri góm. Hún beit mig í brjóstið á laugardaginn, þegar tönn númer tvö var nýkomin upp og ósjálfrátt sagði ég ÁI og henni brá svo mikið, því hún var bara í sínum eigin heimi að kúra, að hún fór að háskæla! Þegar ég svo lagði hana aftur á brjóstið eftir að hafa huggað hana þá var hún eitthvað hálfsmeik við að súpa og fór svo að prófa nýjar aðferðir við að drekka, hún að lokum komst að því að gamla aðferðin er langbest en hefur ekki bitið mig síðan. Ég vildi nú helst ekki vera með útnöguð brjóst en þá hefði ég getað sótt um inngöngu í BDSM-félagið og fengið flýtimeðferð - eeen, það hefur aldrei verið draumur hjá mér að vera BDSM-félagi og BDSM ekki eitthvað sem heillar mig þá er ég heldur betur sátt með að hún bítur mig ekki meir litla krúttið!

Við erum búin að brasa margt skemmtilegt síðustu daga, fórum í lautarferð, fórum á leikvöll, fórum í lystigarðinn hérna hjá okkur, rölltum um Ålaborgina okkar og tókum að sjálfsögðu böns af myndum!

Við erum mikið að velta fyrir okkur þessa dagana hvað við eigum að gera um páskana, hvort við skellum okkur í utanlandsferð til Tyrklands eða eitthvað eða hvort við verðum bara heima, slaka ærlega á, borða Peking-Önd og páskaegg! Við erum líka mikið að velta fyrir okkur hvað er næsta skref hjá okkur, hvað við gerum þegar Friðgeir verður búinn í skólanum og kominn með B.Sc gráðu númer tvö og þegar leigusamningnum okkar hérna á Östre Alle sex og tjú lýkur. Frðgeir er búinn í skólanum í byrjun júní og leigusamningnum líkur 1.júlí þannig að það er spurning hvort við komum heim til Íslands, verðum áfram í Danmörku eða hvort við förum eitthvað annað. Vandamálið er eiginlega að okkur finnst of margir kostir heillandi, of mikið af spennandi námi, framandi löndum og skemmtilegum tækifærum. Ég ætla í skóla næsta haust og Fritz hugsanlega í masterinn þannig að við þurfum að finna út hvað okkur finnst mest spennandi og fara að undirbúa það! :D

Myndalegi tannálfurinn

Wednesday - 14.March 2007 5 komment

4204

Ninja Tíbrá fékk fyrstu tönnina í fyrradag! Tönnin er hægra megin í neðri góm og er ægilega fííín! Ninja er hæstánægð með tönnina góðu og notar hana óspart til að naga allt og alla! Tönnin við hliðina er alveg að koma, við sjáum í hana en hún á eftir að brjóta sér leið í gegn.

Við mæðgur fórum í mömmuklúbb í dag hérna í Álaborg með Íslenskum mömmum og það var bara ótrúlega fínt, fengum allskonar kræsingar, ég fékk kökur og kræsingar og Tíbrá fékk svo ægilega sykraða og ljúffenga brjóstamjólk eftir það.

Gellunni okkar líður miklu betur eftir að við skiptum yfir í taubleyjur. Ótrúlegt hvað bleyjurnar eru búnar að breyta miklu! Hún er ekki lengur með nein útbrot eða óþægindi og það sem okkur finnst svo merkilegt er að hún er ekki að pissa allan daginn (eins og hún gerði með pampersinn) heldur þegar hún pissar þá pissar hún fullt í einu! Um leið og hún er búin að pissa (eða kúka) lætur hún svo vita af óánægju sinni, enda er þvílíkt óþægilegt að hafa blauta bleyju. Við erum að vona að hún verði snemma hætt að vilja bleyjurnar og vilji bara fara á kopp!

Hún er komin í ansi góða rútínu núna skvísan okkar, vaknar um áttaleytið á morgnanna, fær að súpa eins oft og hún vill, fær ávexti í hádeginu og graut eða kartöflu eða eitthvað í kvöldmatinn og ávexti í eftirrétt og það finnst henni sko bestast! Hún fer svo í baðið (sturtubotninn) eftir matinn og það er sko þvílíkt sport, hún leikur á alls oddi og er í þvílíku stuði allan tímann. Þegar hún svo kemur uppúr fær hún pampers-bleyju sem hún sefur með. Hún fer í náttfötin og sofnar vært um hálftíu og sefur yfirleitt alla nóttina, fyrir utan drykkjarpásurnar sem hún tekur með mömmu sinni.

Við settum inn rétt rúmlega tvöhundruð myndir í febrúar- og marsalbúmin! Bæði frá Íslandi og svo góða veðrinu til heiðurs!

Við erum sumsé bara hress og kát í góða veðrinu hérna í danaveldinu. Guðný ætlar að koma til okkar á morgun og ætlar að vera um helgina. Annars gengur allt sinn vanagang, kvöldin eigum við fjölskyldan yfirleitt saman, Friðgeir er rosa duglegur í skólanum og við mæðgur erum duglegar að vera úti á daginn, duglegar að versla í h&m og duglegar að skemmta okkur saman, enda báðar svo gasalega skemmtilegar!

Walking on sunshine..

Monday - 12.March 2007 4 komment

Akkúrat núna er 15°c hiti og logn í Åalborg! Ég kíkti svona til samanburðar hvernig veðrið er í Reykjavík akkúrat þessa stundina og þar er hitinn 2°c og vindur.. Við erum að fara út að njóta veðursins! :D

I dag er det Ninja’s fødselsdag, húrra - húrra - húrra!

Thursday - 8.March 2007 4 komment

465

Já þetta er sko ekkert grín, Ninja Tíbrá er sex mánaða í dag! Okkur finnst eins og við höfum alltaf átt hana og getum ekki ímyndað okkur lífið án hennar en samt er eins og það sé svo stutt síðan hún fæddist!

Á þessu hálfa ári hefur hún:

  • Komist í heiminn og það voru nú átök
  • Verið í hitakassa, þurft aðstoð við að anda, fengið sýkingu í lungun og verið með margskonar sýklalyf í æð
  • Jafnað sig fullkomlega enda er henni hetjuskapurinn í blóð borinn
  • Búið á Miðbraut 15 á Seltjarnarnesinu, þar sem ríka, flotta og fræga fólkið býr
  • Verið góð í bíl og gargað í bíl, það hafa nú allir smá skap
  • Lært að brosa og brosir allan daginn, alla daga síðan
  • Fengið sér óteljandi oft að drekka hjá mömmu sinni því brjóstið er sko bestast
  • Sofnað óteljandi oft í fanginu á foreldrunum sem ekki tíma að leggja hana frá sér því hún er svo sæt
  • Fengið óteljandi gjafir og fallega hluti frá yndislegu fólki sem þykir vænt um hana
  • Fengið milljón kossa frá ástsjúku foreldrunum og öllu frábæra fólkinu sem elskar hana
  • Sofnað í ferðatösku
  • Málað handaförin sín á samfellur og boli
  • Flutt til útlanda
  • Búið á Östre Allé sex og tjúve í Álaborg
  • Frussað endalaust mikið
  • Gargað heljarins ósköp og hlegið svo mikið að það komu tár og hún náði varla andanum
  • Farið á spítalann
  • Fengið margar sprautur og verið algjör hetja, maður kvartar nú ekki yfir smámunum
  • Farið endalaust oft í bað og finnst það alltaf jafn stórkostlegt
  • Þyngst um næstum fjögur kíló
  • lengst um tuttugu og eitthvað sentimetra
  • Farið í dýragarð og séð ljón öskra
  • Farið í flugvél þrisvar sinnum
  • Farið oft í lest
  • Prufað allar tegundir af bleyjum en engar hentuðu silkirassinum sem fékk bara útbrot þannig að við skiptum algjörlega yfir í taubleyjur og gerum eins og hörkutólin í gamla daga og skiptum trilljón sinnum á dag
  • Farið einu sinni í sund með Ísabellu Sól, bestu vinkonu sinni
  • Fengið að borða graut, banana og epli
  • Fengið að smakka örlítinn súkkulaðibita hjá Pattanum sínum (sem var að sjálfsögðu bara að vera góður því honum finnst þetta jú gott)
  • Sofið, sofið og sofið
  • Lært að sitja
  • Labbað mörghundruðsinnummilljónmetra í vagninum góða
  • Lært nokkurnveginn að skríða, vantar ennþá herslumuninn
  • Fengið Liverpoolbúning frá pabba sínum og horft á leiki með honum
  • Lært að segja hvað hún er stór
  • Leikið sér ótrúlega mikið
  • Lært að segja: MAMA (mamma), BABA (pabbi) og AVA (afi) og raular það þegar hún leikur sér
  • Gert fullt af fleiri spennandi hlutum
  • OG VERIÐ ELSKUÐ DÁÐ OG DÝRKUÐ ENDA ER HÚN BARA YNDISLEG!

Allt þetta á aðeins hálfu ári!