Ofurhetjur.com

Letilíf í Danaveldi

Monday - 23.April 2007 4 komment

6217
Gleðilegt sumar! Ég og Ninjan erum bara búnar að vera með letidaga síðustu daga, vera bara inni og leika því veðrið hefur ekkert verið skemmtilegt. Ég var að setja inn slatta af myndum frá þessum letidögum okkar. Mats kom í mat til okkar á laugardaginn og lokaverkefnishópurinn hans Friðgeirs kemur í mat á morgun. Á miðvikudaginn er svo Liverpool-leikur og matarboð og á fimmtudaginn koma íslensku mömmurnar og krílakrúttin þeirra til mín í mat og fínerí þannig að það er nóg að gera framundan.

Ninja Tíbrá er svo mikið krútt að ég get hreinlega ekki hætt að horfa á hana! Það er nú kannski eins gott að ég get ekki haft augun af henni því það er jú alveg bannað þessa dagana, hún er orðin rosa prakkari og er farin að skríða á fullu. Stundum fer hún upp á fjórar fætur og skríður þannig en stundum dregur hún sig áfram og spyrnir með tánum og liðast hérna um gólfin eins og lítill ormur. Síðustu daga er hún búin að vera í baráttu við þröskulda heimilisins. Fyrst þegar hún ætlaði að komast yfir einn slíkan og það tókst ekki þá varð hún frekar pirruð, settist upp og rétti hendurnar í áttina til mín (sem þýðir að það á að taka hana upp) og vildi alls ekkert vera á gólfinu á meðan þessi þröskuldur væri þar. Hún er búin að gera margar frekar fyndnar tilraunir til að sigra þröskuldana og loksins er hún búin að finna leið til þess að smokra sér yfir þá og núna er aðalsportið að fara yfir þröskuldana og fram á gang að skoða skóna.

Við keyptum litla uppblásna Bangsímon-sundlaug á Kanarí og það er uppáhaldsdótið þessa dagana, hún klifrar út úr henni og í hana aftur og sest upp rosa hróðug. Hún er öll í því að brasa eitthvað, fer að hillunni, nær í bangsa og dregur hann með sér í sundlaugina og fer að leika, alveg móð og másandi. Henni finnst líka endalaust gaman að vera í hoppurólunni sem við fengum lánaða hjá Tinnu Maríu og skríkir alveg þvílíkt hátt og snýr sér í hringi rosa montin. Eina vandamálið er að hurðagöt í Danmörku eru greinilega hærri en á Íslandi því gellan nær ekki niður úr hoppurólunni þannig að hún er bara notuð sem róla í staðinn, sem er bara ennþá skemmtilegra.

Tíbráin okkar málaði listaverk handa foreldrum sínum um helgina og þegar hún var búin að fá nóg af málingavinnunni stakk hún penslinum upp í sig og smakkaði bláan. Blár smakkaðist ekkert alltof vel enda ekki til þess gerður og þegar ég tók af henni pensilinn þá gargaði hún á mig í pirringstón, greinilegt að það er að koma smá skap í mína ;)

Jæja, tími til kominn að binda endi á þessa leti! Við mæðgur ætlum að drífa okkur í bæinn með Ríkey og Eiríki Ingimari.

Stóri rokkarinn

Wednesday - 18.April 2007 6 komment

6048

Súsanna Sundhedsplejeske kom í morgunsárið og spjallaði við okkur og vigtaði Ninjuna. Gellan er orðin 8,3 kíló og 71 cm. Það er nú aldeilis flott fyrir 7 mánaða gellu! Tíbrá litla heillaði Súsönnu HimmelblÃ¥ (Ã…h Susan HimmelblÃ¥ ved du hva’ jeg tænker pÃ¥ - eins og Kim Larsen, stórvinur hans Fritz segir hehehe). HimmelblÃ¥ vill að ég gefi Ninju Tíbrá kjötbollur, kjúkling, egg, ávaxtasafa, jógúrt og rúgbrauð með lifrakæfu (rúúúbröð með leverpÃ¥stage, mér finnst svo gaman að segja þetta með æææægilegum dönskum hreim - maður kafnar næstum á leverpÃ¥stageorðinu). Ég verð greinilega að fara að herða mig í fjölbreytninni til að halda í danska standardinn.

Annars erum við bara lækjarspræk hérna í góða veðrinu í Danmörkinni. Ninja Tíbrá er reyndar með dálítið mikið kvef en brosir allan hringinn í gegnum horið eins og henni einni er lagið. Fritz er alltaf rosa duglegur, var í prófi í gær og er að fara í annað á fimmtudaginn þannig að við mæðgur sjáum hann lítið þessa dagana en hann borðar nú samt yfirleitt alltaf með okkur kvöldmat og sekkur sér svo aftur í lærdóminn, það finnst okkur góð regla. Ninja er í góðri rútínu og við erum að minnka brjóstagjöfina á nóttunni en það er mín nú ekki beint sátt við, vill fá að kúra og súpa hjá mömmunni sinn eins oft og henni hentar takk fyrir!

Ninja sæta mús er öll í því þessa dagana að kalla MAMMA þegar hún vaknar en ekki skæla. Það er sætast í heimi! Henni finnst voða skemmtilegt að segja mamma og notar það óspart. Hún segir líka babba (pabbi), didda (sem hún segir við dudduna sína en ég var búin að vera að reyna að kenna henni að segja Doddi þannig að ég veit ekki alveg hvort þetta er), gúgú (sem Guðný kenndi henni - þýðir Guðný), amma, ava (afi) og DATT! Ninjan er öll í því að sýna hvað hún er stór og segja svo veiiii og klappa svo en þegar hún verður of spennt yfir að sýna það þá gleymir hún stundum að sýna hvað hún er stór (setja hendurnar upp í loftið) og klappar bara (með því að lemja í borðið) og segir VEIIII og skellihlær - hún er náttúrulega bara sætust! ..og ægilegur rokkari sem ekki vill vera skítug eins og sést á myndinni!

Mamma, pabbi, Þorgeir Kristján, Steinunn, Siggi, Patrik Dagur og Ísabella Sól ætla að koma í menningarævintýr til okkar á afmælisdeginum hennar mömmu Gerðu í lok maí. Þau ætla að vera í viku og ég er ehendalaust spennt. Við erum að sjálfsögðu byrjuð að plana allskyns skemmtilegheit; tívolí, legoland, h&m, fullt af knúsum og fleira fjörugt. Andrea, Jakob og Róbert koma í vikunni áður í svipað stuð og saltekastenja þannig að Östre Allé sex og tjú verður hinn nýji Kópavogur í maí og júní og vá hvað það verður gaman að hitta allt þetta yndislega fólk okkar. Ég get vart hamið mig og beðið, ég er eins og lítil smástelpa sem er æst yfir jólapökkunum, hef greinilega lítið þroskast síðan á leikskóla. Guð gefi mér þolinmæði - NÚNA STRAX! =)

Pakkar & bikiníeyja

Sunday - 15.April 2007 5 komment

5833
Við fengum ANNAN óvæntan pakka frá Íslandi áður en við fórum til Kanarí! Fritz var vægast sagt glaður þegar póstmaðurinn hringdi bjöllunni og hljóp niður til að opna fyrir honum því hann var viss um að hann væri búinn að fá bækurnar sem hann var búinn að bíða eftir frá Amazon í aaansi langan tíma. Hann fékk sko heldur betur bækurnar og Ninja Tíbrá fékk pakka! Hún fékk pakka frá Ömmu Gróu og Afa Ásgeiri sem innihélt páskaegg (lykilatriði að eiga nóg af páskaeggjum þegar maður er sex mánaða) og náttföt! Gott að eiga góða að sem þekkja þarfir litla krílisins, henni var nauðsynlega farið að vanta náttföt! Yndislegt að eiga svona frábæra fjölskyldu - sem senda óvænta pakka með nokkurra daga millibili með allskyns dóti og nauðsynjavörum sem ekki er hægt að kaupa í Danmörku og náttfötum sem vantar!

Friðgeir rakaði af sér skeggið sem hann er búinn að vera með síðan um jólin og Ninja Tíbrá trylltist úr hræðslu! Hún var ekki að gúddera þennan mann sem kominn var inn í stofu hjá okkur og vildi fá pabba sinn aftur! Hún jafnaði sig nú samt fljótt og örugglega litla prinsessan okkar.

Guðný skvísa kom í heimsókn til okkar frá Odense áður en við fórum til Kanarí og það var sko æði að fá hana eins og alltaf! Hún er sko langduglegust af öllum að koma í heimsókn! Við grilluðum með Eyjólfi og Maju þar sem Gústi sá liðinu fyrir útrunnum bjór.

Við fórum svo til Kanarí á föstudeginum og Eyjólfur var svo yndislegur í sér að skutla okkur á flugvöllinn. Mér fannst ég vera komin til útlanda að vera komin yfir í Nörresundby (hinummegin við Limafjörðinn) því þangað hafði ég aldrei komið áður. Ninja var draumur foreldra sinna eins og alltaf og stóð sig eins og hetja í flugunum (hljómar eins og skordýrin en er flug í fleirtölu). Hún lék á alls oddi og heillaði alla spánverjana upp úr skónum! Við vorum nokkrum sinnum spurð: ,,WHAT’S HER NAME?” og þá sögðum við eins og gefur að skilja: ,,NINJA” og fengum þá: ,,EEEHHH, NO - I MEAN WHAT IS HER NAME?” Þetta þótti okkur alltaf mjööög fyndið af því Ninja þýðir jú lítil stelpa á spænsku =)

Páskafríið á Bikiníeyju var vægast sagt unaðslegt og við erum ansi ánægð með að hafa bara skellt okkur. Ninja Tíbrá dýrkaði að vera léttklædd og fannst bestast að fara í sund. Við fórum í vatnsrennibrautagarð, spiluðum minigolf, slöppuðum af á ströndinni, gerðum ómeðvitaða tilraun til að láta reiða spanjóla berja okkur og gerðum margt fleira ógleymanlegt. Við borðuðum íslensk páskaegg, slökuðum ærlega á og nutum þess í botn að vera til!

Friðgeir makaði alltaf á sig sólarvörn í bak og fyrir en einn daginn þegar hann var að bera á sig náði hann ekki alveg nógu vel á milli herðablaðanna og um kvöldið var útkoman augljós - hann brann á þessum einum bletti - var eins og dreki hafi spúið á hann eldi á smá blett. Þetta var pínu eins og í auglýsingunni fyrir einhverjar sólarlandaferðir fyrir mörgum árum síðan þar sem pabbinn sofnaði í sólbaðinu og var með handafar á bringunni - óendanlega fyndið!

Þegar við svo komum heim beið okkar enn einn pakkinn! Ohhh það er svo frábært að fá svona pakka! Þessi pakki var frá Lóu, Gulla, Snæfríði Sól, Amelíu Rún, Mána Snæ og ófæddu tvillingunum. Lóa er svo mikil kjarnakona að hún prjónaði á Ninju Tíbrá geggjaðan ullargalla, húfu, vettlinga og ullarsokka! Hún prjónaði svona galla á tvíburana og prjónaði bara einn í leiðinni fyrir Ninju Tíbrá - það er sko dugnaður í skvísunni! Amma Gróa prjónaði líka á Ninjuna æðislega peysu þegar við vorum á Íslandi þannig að Tíbrá litla er aldeilis vel undirbúin fyrir útiveruna. Ég og Steinunn erum svo að prjóna peysur og fleira á skvísurnar okkar þannig að Ninju Tíbrá ætti nú ekkert að skorta. Ninja Tíbrá og Ísabella Sól verða svo eins í dressinu þegar við systur erum búnar með frumraun okkar í prjóneríinu.

Andrea og Jakob ætla að koma í heimsókn til okkar eftir mánuð og jeremías á jólaskónum hvað við erum spennt! Núna mööönum við alla til að panta sér flugfar til okkar og njóta sólskinsins með okkur í maí og júní!

Við settum inn alveg aragrúa af myndum frá því áður en við fórum til Kanarí, myndir frá Kanarí (sem ég skipti niður í þrjú albúm sökum gríðarlegs fjölda) og myndir frá helginni. Úff, þessi færsla er nú orðin ægileg langloka, enda margt búið að vera að gerast!

Útlandapáskar

Friday - 6.April 2007 4 komment

205

Við erum að fara út á flugvöll! Flugið er eftir þrjá tíma. Í kvöld verðum við á Kanarí! =)

Páskaknús til allra - njótið páskanna í botn!

Tinky Winky & standandi prakkari

Tuesday - 3.April 2007 6 komment

5239

Ég held að ég sé almennt ekki hrædd við að breyta til og gera eitthvað róttækt. Ég hef til dæmis farið óendanlega oft í klippingu og oftar en ekki komið út með allt annað lúkk en ég fór inn með. Ég hef verið með hanakamb, rautt hár, dökkt hár, ljóst hár, dökkt undir og ljóst yfir og öfugt, stutt hár, sítt hár, stutt að aftan sítt að framan - sítt að framan og öfugt, sítt öðrumegin og svona mætti lengi telja. Ég hef samt aldrei farið inn á hárgreiðslustofu áður og komið út með fjólublátt hár og bleikar strípur! Þetta gerði ég á laugardaginn og eins ótrúlegt og þetta hljómar þá er þetta bara ansi töff! Þetta á amk að vera það allra heitasta í Danmörku í sumar og það þýðir náttúrulega ekkert annað en að vera týskuþræll í sínu landi! Ég og Tinky Winky í Teletubbies erum alveg keimlík þessa dagana =)

Dagurinn í gær var aaaansi góður! Við vöknuðum við að póstmaðurinn rogaðist upp tröppurnar með stóran pakka! Ég skrifaði undir og hoppaði hérna eins og lítil smástelpa úr spenningi að vita hver hafi sent pakkann og sá svo að pabbi var skrifaður fyrir honum - það kom mér nú svosem ekki á óvart! Við fengum sumsé frábæran og óvæntan pakka frá Íslandi! Veiiii hvað það var mikil gleði á heimilinu! Við fengum risastór íslensk páskaegg og Ninja Tíbrá fékk glás af pökkum frá mömmu, pabba, Þorgeiri Kristjáni, Steinunni, Sigga, Patrik Degi og Ísabellu Sól! Svona óvænt ánægja getur aldeilis bjargað vikunni! Ninja Tíbrá var alveg í essinu sínu hérna og dundaði sér lengi við að opna pakkana og reyndi alla sína takta og nýtti tennurnar tvær til fullnustu við að reyna að ná páskaegginu úr pokanum en allt kom fyrir ekki.

Aðalmálið í kassanum var hitamælir í baðið sem gladdi Ninju Tíbrá ósköpin öll og varð til þess að hún STÓÐ UPP í fyrsta skipti!!! VÁ - ég hélt að ég myndi alveg kafna úr stolti! Hún stóð upp aftur og aftur í gær og er búin að vera að því líka í dag! Ég tók vídjó af því þegar hún stóð upp í annað skiptið. Hún festi löppina aðeins undir sér þannig að mamman kom henni til bjargar á kostnað gæða myndbandsins. =)

Friðgeir kom heim úr skólanum í gær fyrir hádegi og við vorum með ,,hyggedag” og kúrðum yfir vídjó og borðuðum pítsu og nutum þess að eiga flottasta barn í heimi - sem stendur upp! Við mæðgur skelltum okkur svo út í Aalborg Øst í afmæli til Berglindar í gær og ég komst að því að hún er heljarinnar bakari skvísan!

Á myndinni hérna fyrir ofan sjást tönnslurnar tvær ansi vel. Ég setti inn myndaalbúm með nýja Tinky Winky hárinu, standandi Ninju Tíbrá og síðustu dögum! Ég setti líka inn myndir í marsalbúmið fyrir stuttu =)