Aug 31
10914
10916
10918
10922
10926
..já sandkassinn er spennandi þó svo að sandurinn sé ekki endilega góður á braðgið! Maður verður nú að kanna heiminn, smakka á lífsins gæðum og læra af reynslunni. Svo á líka alltaf að sötra súpuna, annars veit maður ekkert að maður er að borða súpu, það segir Emil í Kattholti líka að minnsta kosti!
Ásgeir Garðar og Inga Jóna eignuðust yndislegan dreng í nótt, 15 merkur og 53 cm – og jermeías á jólaskónum, hann er svo fallegur, enda svosem ekki við öðru að búast, fallir foreldrar og sérstaklega falleg ætt sem hann fæðist inn í.
Ég setti inn óteljandi myndir í Ágústalbúmið og meðal annars myndir af litlu bjútíbollunni. Ég er sumsé orðin ömmusystir í þriðja sinn og er titillinn ekki jafn yfirþyrmandi núna eins og fyrst um sinn.

Knús á línuna - Anna Sigga, mamma í næstum heilt ár!

Aug 17
10460

Þetta kann Ninja Tíbrá að segja 11 mánaða gömul:

  • Mamma
  • Pabbi
  • Amma
  • Nei
  • Datt
  • Dudda
  • Ava = Afi
  • Tatt = Takk
  • Meija = Meira
  • Dódó = Dótaherbergið hennar
  • Dott = Gott
  • B’di = Patti
  • D’ddi = Doddi
  • Ba = Bað
  • Údi = Úti
  • Suuju = Sjáðu
  • Be = Ber
  • Ninna = Ninja
  • Vadd = Vatn
  • Bibbi = Bíbí
  • Vá = Fá (..og bendir á það sem hugurinn girnist)
  • Gaga = Kaka (..til dæmis mjólkurkex)
  • Dess = Kex (..á líka við um mjólkurkex)

Svo segir hún líka vá og vei þegar hún er að klappa og fagna. Hún kann líka að tjá sig á ýmsan annan ansi skemmtilegan hátt, hún segir til dæmis dúbbídúbbí þegar hún vill fá eitthvað, og það strax! Þetta orð er yfirleitt notað í ótrúlegum óþolinmæðistóni. Þá fálmar hún með höndunum út í loftið í áttina að því sem hún vill fá eða bendir pent í rólegri kantinum. Ég hef ekki minnstu hugmynd hvaðan dúbbídúbbí kemur en þetta notar hún óspart. Hún kyrjar hámminamm aftur og aftur, hátt og snjallt þegar hún er að borða eitthvað gott. Andrea vinkona notar hvert tækifæri til að koma með okkur mæðgum í mat til að heyra þetta endalaust fyndna hljóð!

Þetta gerir skutlan líka 11mánaða:

  • gefur ,,five” og finnst það óhemju fyndið
  • vinkar eins og forsetafrú, ótrúlega pen og sæt
  • kinkar kolli og brosir eins og hún skilji öll heimsins vandamál
  • bendir á tásurnar og eyrun þegar hún er spurð hvar það er
  • setur hendurnar hátt upp í loft þegar hún er spurð hvað hún er stór
  • klappar ósköpin öll þegar henni finnst hún fyndin eða er að labba
  • setur hendurnar yfir eyrun eða upp höfuðið og tekur þær svo í burtu og segir BÖÖÖÖÖ og brosir, fattar leikinn greinilega ekki alveg en er svo endalaust sæt þegar hún gerir þetta að það er ekkert eðlilegt!
  • bendir ótrúlega pent með vísifingri
  • segir ehhh, ehhh þegar hún sér hunda og verður afskaplega spennt
  • klemmir saman varirnar og gerir fílahljóð þegar hún sér myndir af fílum eða er spurð hvernig þeir segja
  • tekur mest 5 skref í einu, ein og óstudd en sem svo niður – maður verður nú að hvíla
  • hún reynir að flauta í sífellu, setur stút á munninn og gerir eins og pabbi hennar en frussar bara og andar út um nefið með stút á munni

Hún er fyndnust í heimi þegar hún fær að borða því um daginn þá vorum við að borða grillmat og vorum að blása á hann fyrir hana og litla skotta tók upp á því að gera eins. Eftir þetta blæs hún á allt, allur er varinn góður. Hún setur stút á munninn og brettir vörina upp að nefinu og blæs ægilega út um nefið! Það er sko bráðnauðynlegt að blása á seríósið og ávextina – ekki er nú gott að brenna sig.

Hún er komin með 5 tennur, báðar framtennur uppi og nirði og hliðarframtönn hægra megin uppi, hliðarframtönnin vinstra megin er rétt ókomin.

Hún dansar með því að beygja hnén um leið og hún heyrir tónlist sem henni líkar við og brosir út fyrir eyrun. Stundum syngur hún með með því að garga svolítið.

Hún klifrar upp og niður stiga á mettíma. Hún fer upp hverja tröppu í tveimur skrefum og bakkar svo niður. Hún er ótrúlegur glanni en samt svo varkár einhvernveginn. Hún er ótrúlegur klifurköttur en passar sig samt alltaf að halda sér í. Það er líklegast ástæðan fyrir að hún er ekki byrjuð að labba, hún kann þetta alveg en þorir ekki alveg að sleppa, hún er greinilega varkár glanni.

Þetta var nú aldeilis upptalningin! Það er nú vissara að eiga þetta allt saman skjalfest, internetið er mín dagbók barnsins, hið fullkomna uppflettirit fyrir mæður sem ekki eru duglegar að fylla staðreyndir inn í krúttlegar bækur.

Knús úr Gettóinu, þar sem verið að gera geggjað Dódó fyrir Tíbrá litlu!

Aug 11
10524

Um helgina ætlum við að flytja í­ 8 skipti á 2 árum. Núna er stefnan tekin á Gettóið í Breiðholtinu og planið er að græja um helgina og gera kósí. Við erum ótrúlega spennt yfir þessu, enda alltaf gaman að takast á við nýja hluti. Friðgeir er kominn með glæsta tölvunarfræðingsvinnu hjá Opnum Kerfum og lí­kar glimrandi vel. Núna er orðið kristaltært að Ninja Tíbrá fær ekki dagmömmupláss þannig að spurningin er hvernig við mæðgur tæklum næstu mánuði vinnu- og pössunarlega séð. Við finnum einhverja stórkostlega lausn á þessu, eins og alltaf!

Ninja Tíbrá er núna búin að vera með hita í 22 daga samfleytt og læknar skilja hvorki upp né niður í þessu ástandi. Eina sem amar að dömunni er hitinn og helst hann í­ kringum 38°c. Hún hefur ekki verið með kvef, eyrnabólgu eða neitt annað svo einkennilegi hitinn sem ekki hverfur, veður óskiljanlegri með hverjum deginum sem líður. Hún er svolítið mikil mömmustelpa þessa dagana útaf lasleikanum. enda ekki skrítið, mamman er jú alltaf bestust!
Við vonum að það fari að koma gífulegri skýring í þessa hitavellu en ,,óútskýranlegur vírus” eða þá að hitinn hverfi bara, það væri auðvitað langbest!

Ég henti inn myndahaug fyrir nokkrum dögum, bæði í­ júní­ og júlí­albúmið og svo frábærum sólskinsmyndum í­ ágústalbúmið! Myndin hérna uppi er af bestu vinum í veröldinni, Ísabellu Sól, Ninju Tíbrá og Patrik Degi. Betri vini og sætari börn er hreinlega ekki hægt að finna!

Aug 2
9732

Ég er búin að vera þvílíkans dugnaðarforkur og hetjublóð í myndainnsetningu. Ég er búin að setja inn 12 albúm úr ferðinni (semsagt á 2 blaðsíðum) sem öll eru merkt hverju landi fyrir sig og innihalda mismikið af myndum hvert. Albúmin er að finna hér (blaðsíða 1) & hér (blaðsíða 2). Núna eru sumsé komnar inn allar myndir úr ferðinni og bara eftir að setja inn síðustu daga, fyrstu dagana á ͍slandi. Á myndinni hérna fyrir ofan nældi Ninja Tíbrá sér í súkkulaðiköku og fannst það sko ekki slæmt! ..þarna sjást líka fallegu brúnu augun ansi vel! Ég lofa að myndakerfið fer nú eitthvað að skána á næstunni og að “next” hnappurinn komi inn bráðum. Well, njótið myndanna og sólarinnar :D