Oct 7
12118

Helgin var ó svo næs. Við fórum í­ Vatnaveröldina í­ Keflavík í gær (innisundlaugagarður fyrir lítil kríli) og skemmtum okkur konunglega! Ninja Tíbrá synti bara með kútunum og fór galvösk í rennibrautirnar og skríkti úr gleði. Í dag vorum við svo bara úti í garði í góða veðrinu og tókum auðvitað sætar myndir. Lilta skottan er orðin svo dugleg að hlaupa og stendur allstaðar orðið upp á miðju gólfi - meira að segja í­ stí­gvélunum - Það hefur reynst þrautin þyngri hingað til en er nú algjörlega komið. Hún dýrkar veski og fylgihluti. Hún hengir veski um hálsinn og gengur stolt um í­búðina og spjallar og hlær ægilega mikið - enda fín frú hér á ferð. Hún fer í öll veski og alla vasa, nær sér í smápeninga og setur í­ baukinn, ótrúlega dugleg að safna og leggja fyrir, töluvert duglegri en múttan hennar - spurning hvort hún verði sú sem borgar útborgunina í íbúð með þessu áframhaldi! Úff, Ég er svo stolt móðir, hreinleg að springa úr stolti - Ninja Tíbrá er fallegasta, fyndasta og yndislegasta barn í veröldinni!

Oct 5
11934

Það er nauðsynlegt að breyta til annað slagið! Ég var komin með nóg af hinu lúkkinu á síðunni þannig að appelsínugult er liturinn fyrir veturinn. Myndasíðan er í örlitlu rugli enda er þetta ekki alveg tilbúið en það verður græða sem fyrst. Ég setti inn nokkrar nýjar myndir í septemberalbúmið. Mér finnst myndin hérna fyrir ofan algjörlega stórkostleg! Ninja Tíbrá er þarna að tala við ömmu sína í símann (hún tekur alltaf upp símann og segir HÆ AMMA, það var nú samt engin amma í símanum þegar þessi mynd var tekin) Allt í einu varð hún eitthvað reið því allt í einu fór hún að garga í símann, eins og sést svo glögglega á myndinni – hún er sko ekki sátt!

Oct 1
11866

Mamma, pabbi og Þorgeir Kristj+an buðu okkur mæðgum í leikhús í gær. Steinunn, Siggi, Patrik Dagur og Ísabella Sól, mamma, pabbi og Doddi komu auðvitað lÍka. Við fórum að sjá Abbababb Í Hafnarfjarðarleikhúsinu og vá hvað Það var gaman! Ég bjóst við því að Ninja Tíbrá, sem aldrei situr kyrr, myndi halda þolinmæðinni fyrsta korterinn, þá hefði ég orðið himinlifandi en mín hélt sko athyglinni ALLT LEIKRITIÐ! Í einn og hálfan tíma sat litla krúttan dolfallin og það heyrðist ekki múkk í henni. Henni fannst þetta svo gaman, klappaði ægilega, hló og vinkaði alltaf Þegar einhver nýr kom inn +a sviðið. Hún vildi helst bara sitja hjá Dodda sínum enda er hún Þvílíkt Dodda-sjúk, Doddi er bestur. Í síðustu atriðunum var dansað, sungið og rosa fjör þá stóð gellan upp í fanginu á mér og dansaði! Hún fékk sódavatn hjá afa sínum og kanilsnúða hjá Ísabellu Sól Í hléinu og var í banastuði! Þetta var svo æðislegt, aldrei hefði ég trúað því að henni þætti þetta svona gríðarlega skemmtilegt! Það verður sko ekki langt þangað til við skellum okkur aftur í eitthvað svona frábært fjör =)