Ofurhetjur.com

Klárasta barn fyrr og síðar!

Thursday - 24.January 2008 4 komment

Við mægður vorum að eignast litla frænku! Hún er guðdómlega falleg! Adda og Arnar voru sumsé að eignast gullmola númer 2. Anna Lilja (sem ég vil að sjálfsögðu meina að sé skírð í höfuðið á mér hehe) er því orðin stóra systir og allt gekk vel. Ég hlakka mikið til að fá að sjá gelluna en ég er sko algjörlega barnasjúk þessa dagana! Ég fór og kíkti um daginn með Tindi og Andra á litlu yndislegu Birtu Líf sem Nóri og Tinna voru að eignast. Við fengum að sjá hana alveg glænýja á spítalanum og að sjálfsögðu er ég ekki húsum hæf eins og allir vita, þegar lítil börn eru annars vegar. Ég missi mig alveg í barnababblinu og tárast úr gleði yfir þessu fallega kraftaverki sem fæðing barns er, ég er sumsé ALLS EKKI húsum hæf. Mér finnst svo ægilega stutt síðan litla gullið mitt var svona lítil en samt hefur svo mikið vatn runnið til sjávar síðan þá!

Í síðustu viku þegar við mæðgur vorum búnar að dúða okkur upp í ullarnærföt og snjógalla, tilbúnar að hlaupa út í bíl til að afþýða læsingarnar sem frjósa á hverri nóttu sagði dóttir mín: ,,mamma! HÁLKA!” Ég stóð á öndinni, gjörsamlega frá mér numin úr stolti yfir því að eiga án minnsta efa, gáfaðasta barn samtímans! Patrik var þá daginn áður (þegar við fórum út á sleða að renna) búinn að ítreka við Ninju Tíbrá að það væri hálka úti og því hættulegt að hlaupa! Núna í þessari viku sagði Ninja Tíbrá við Ísabellu Sól frænku sína (þegar Ísabella ætlaði að prakkarast og klifra í stiganum heima hjá ömmu og afa): ,,Bella! segi afi? NEI!” og otaði puttanum framan í Ísabellu skammarlega. Þetta þýddi sumsé Ísabella, hvað segir Afi? Hann segir NEI!” Því þær frænkur eru nú alveg með það á kristaltæru að ef þær klifra í stiganum þá segir afi þeirra nei við þær og bannar þeim að vera að prakkarapúkast. Ninja er nú reyndar ekkert betri en Ísabella þegar stiginn er annars vegar, það er bara svo ægilega spennandi að vera ,,púki” eins og Ninja segir þegar hún er að prakkarast.

Í gær kom ég heim frá Ísafirði, eftir að hafa verið þar veðurtept í vinnuferð. Ég fór á leiðið hennar mömmu og í heimsókn til Önnu og Katrínar. Þegar ég kom heim varð ég aðeins að fara í vinnuna og þar sem litla skotta er búin að vera með mikinn hósta og dagmamman var á leiðinni út með krílin, ákvað ég að fara með hana með mér í vinnuna. Þar lék daman á alls oddi, sneri gellunum í vinnunni um fingur sér, lét þær hlaupa eftir sódavatni og kexi og fékk að gera allt sem hún vildi. Þetta fannst henni að sjálfsögðu ekki leiðinlegt. Hún sagði síðan: ,,mamma - Ninna pissa” og ég fór með hana inn á klósett. Gellurnar í vinnunni, sem eiga flestar börn á aldri við mig, voru svo dolfallnar yfir snilldinni í barninu, að vera ekki orðin eins og hálfs árs og nánast hætt með bleyju! Þær áttu ekki orð! Hún er sumsé alltaf bleyjulaus hér um helgar og þegar hún er búin hjá dagmömmunni er það yfirleitt sama sagan, fer úr fötunum í sinni röð (segir við mig: úppa, húfa, skó, peysa, beyja og vill að ég aðstoði hana úr fötunum í þessari röð) og vill fá að spreyta sig á bleyjuleysinu. Hún er ekki jafn örugg með þetta hjá dagmömmunni en þetta kemur allt saman. Það fyndna er að ég hef ekkert verið að ýta undir þetta, hún kýs þetta sjálf, er farin að finna greinilega hvenær hún þarf á klóið og lætur vita hvað þar á að gera. Auðvitað gerast oft slys og auðvitað sest hún oft á klóið eða koppinn án þess að nokkuð gerist en það fylgir þessu bara og þau skipti verða alltaf færri og færri.

Steinunn og Siggi fengu svo nýju íbúðina sína í gær og veiii hvað þetta verður æðislegt hjá þeim! Ég er mikið spennt yfir þessu ferli öllu og langar helst af öllu að vera að kaupa íbúð handa okkur gellunum líka, með flottasta prinsessuherbergi fyrr og síðar! Ég þarf nú víst að safna aðeins og kaupa svo. Draumurinn er að kaupa í Smáranum og vera nálægt mömmu & co og Steinku & co.

Jæja, ég ætla að taka smá vinnusession hérna, ákvað að skella smá fréttum hér inn í hádeginu í staðinn fyrir að hlaupa út í búð því það er svo ægilega kalt! Ég fæ mér bara herba-sjeik í staðinn ;)

Pjása í Smáralind

Monday - 14.January 2008 6 komment

Ég sá gellu í Smáralindinni um daginn í ólöglega stuttu pilsi og gegnsæum nælonsokkabuxum. Hún var augljóslega ENGUM nærbuxum því þegar hún beygði sig fyrir framan okkur mæðgur sá ég ALLTOF mikið og var án minnsta efa með hneyslunarsvip aldarinnar þegar stelpuskjátan snéri sér við. Annaðhvort hefur hún hugsað: ,,OMG GMG hvað þessi er ógó fokkíng gömul og hallærisleg, hvað þykist hún vita um tísku?” eða: ,,úps, ætli það hafi sést of mikið?” því hún varð pínu einkennileg á svipinn og tuggði tyggjóið sitt eins og enginn væri morgundagurinn með augun opin alveg upp á gátt og horfði stíft á mig. Ég skammaðist mín ægilega fyrir þennan svip sem svo ósjálfrátt afmyndaði andlit mitt þegar hún var að snúa sér við. Mér leið eitt augnablik eins og ég sæti gegn mínum vilja með barnið mitt á strippbúllu með bjór og vindil í hönd en ekki að bíða með barnið mitt eftir afgreiðslu í banka með stútkönnu og snuð í hönd. Allt í einu fann ég til með dömunni sem var augljóslega í mikilli blöðrubólgu-hættu þar sem það var -2°c úti!

Mini-pils og sokkabuxur eða leggings eru einstaklega þægilegt kombó - ég nota svoleiðis mjög mikið, ég nota hins vegar líka nærbuxur og hef sokkabuxurnar það þykkar að þær eru ekki ,,sí-þrú.”

Hvernig er það, er þetta Britney-look bara algjörlega að gera sig og ég ægileg tepra eða er eðlilegt að mér misbjóði pjása í Smáralind?

Internetgleði & Humarhátíð

Sunday - 13.January 2008 3 komment

Ísabella og Patrik voru í pössun hjá okkur í gær og svo gistu Doddi og Patti hjá okkur í nótt. Það var geggjað stuð allan daginn og heldur betur fjör um kvöldið líka. Ninja Tíbrá er með lungnabólgu og eyrnabólgu (fór með hana til læknis á miðvikudaginn síðasta). Hún er því búin að vera bara í innipúkastemmaranum en fer til dagmömmunnar á morgun (ef nóttin verður fín). Hún er bara á sýklalyfjum til að vinna á þessum lasleika. Annars erum við bara í hressleikanum og internetið loksins komið í Flétturimann okkar, ráderinn og ADSL-tengin voru komin hérna í síðustu viku en tölvan mín (nýja fína) var ekki sátt við þetta og neitaði að tengjast. Við vorum búin að eyða ófáum klukkustundunum í að fikta en svo í morgun, græjaði yndislegi mágur minn og ástmaður systur minnar hann Siggi þetta! Eftir internetlögun skelltum við okkur öll í sunnudagaskólann og veiii, það var jafn frábært og alltaf, Ninja Tíbrá hoppar alltaf af kæti, syngur með og vill ólm taka þátt í öllu.

Sigurlaug og Andrea komu með köku til okkar á miðvikudaginn og við borðuðum köku, klöppuðum bumbu, ræddum markmið ársins og stöðu bankanna (hljómar eins og mjög háfleygar og markvissar umræður eeeen þeir sem þekkja okkur vel vita að þetta er allt yfirskin).

Við vorum með stórkostlegt humarpartý með extra miklum hvítlauk hérna í kotinu okkar á fimmtudaginn og namminamm, ég dýrka humar! ..og hvítlauk! Enda líka meistarakokkar sem höndluðu sjávarkvikindin! Ótrúlegu marki var náð þetta kvöld, í fyrsta skipti í þessari íbúð var hvítlauksbrauðið ekki brennt! Bakaraofninn hérna er svo trylltur að um leið og eitthvað er sett inn, er það tilbúið! Ég er vön lélegum ofnum sem taka sinn korter í að hita hvítlauksbrauð en í þessum þarf að vakta brauðið og kökurnar, svo trylltur er hann! Ég boraði á mig gat og hafði ekki orku í að gera nokkurn skapaðan hlut sökum seddu en samt borðaði ég meira! Ótrúlegt hvernig maður borðar stundum alltof mikið, þrátt fyrir að vita vel að það kemst ekki mögulega meira í magann, þá er það græðgin sem tekur yfir og skellir restinni bara í íshólfið ;)

Jólagleði

Tuesday - 8.January 2008 2 komment

Jólin voru mjög frábær og fjörug! Við vorum í Glaðhúsinu í Smáranum (nýja húsinu hjá mömmu, pabba og Þorgeiri Kristjáni). Um morguninn komu jólasveinar til okkar og létu öllum illum látum, renndu sér á handriðinu, spiluðu á trommurnar og gáfu lingunum okkar gjafir. Á aðfangadag voru í Glaðhúsinu: við, Steinunn, Siggi, Patrik og Ísabella, mamma, pabbi og Þorgeir Kristján og svo eftir matinn komu pabbi og Dísa. Sami hópurinn var svo saman á Gamlárs. Pakkaflóðið var óskaplegt og yndislegt, krílin skemmtu sér sko konunglega við að opna pakkana fyrir alla og hjálpuðu afa sínum og Þorgeiri Kristjáni að ferja pakkana í réttar hendur. Við erum hæstánægðar með jólahátíðina í heild sinni og þökkum kærlega fyrir okkur. Á milli jóla og nýárs skelltum við okkur í bjartsýniskasti til Vestmannaeyja. Við vorum staðráðin í því að komast heim fyrir áramót en svo þegar við vorum komin hálfa leið í Herjólfi fengum við að vita að aftakaveðrið sem var á leiðinni, yrði til þess að við kæmumst ekki heim fyrir skaup. Við fórum í brúðkaup hjá Daða og Þóru og allir dönsuðu og höfðu gaman. Við vorum í stanslausum humar- og kökuveislum eins og við er að búast þegar öll stórfamilyan hittist, þá er sko alltaf fjör og mikið borðað af góðum mat. Ninja, Aron, Herdís og Ísabella léku sér saman (og slóust líka aðeins en það er nú bara til að slípa vinskapinn) en þau eru öll jafngömul, munar 22 dögum á Ninju og Herdísi (hún er sumsé elst), 18 dögum á Ninju og Aroni (næstelstur) og svo auðvitað sléttum 10 vikum á Ninju og Ísabellu (sem er yngst). Þetta var allt geggjað gaman, vantaði bara Nönnu &co og Öddu &co. - þá hefði öll stórfjölskyldan verið þarna samankomin, ég held að við séum orðin hátt í 50 talsins, amma á Eski og hennar afkomendur. Við gistum í sumarbústað og veðrið var svo slæmt á tímabili að það ringdi inn í bústaðinn, inn á milli þjala og inn hjá þéttingunum á gluggunum eeeen eins og allir vita þá er enginn verri þó hann vökni ;)

Ninja Tíbrá er búin að vera með eyrnabólgur, berkjubólgur og lungnabólgur núna í 3 mánuði. Rosa hiti og óþægindi fylgja þessu. Hún fær aftur og aftur eyrnabólgu og í hvert skipti fær hún tvöfallt sterkari sýklalyf. Ég vona nú að þessi veikindakafli fari að taka enda í hennar lífi. Núna er hún með berkjubólgur og hugsanlega er að byrja enn eina ferðina lungnabólga, læknirinn var ekki alveg viss með þetta í gær þegar ég fór og lét hlusta hana en hún heyrði nú eitthvað óeðlilegt og var ekki viss hvort þetta væri að byrja eða hugsanlega enn smá leifar síðan fyrir 10 dögum þegar hún kláraði síðasta sýklalyfjaskammt við lungnabólgu. Hún er búin að vera að fá alltaf tvöfallt sterkari lyf í hvert skipti því eyrnabólgurnar virðast endalaust þrálátar. Hún losnar aldrei við vökvann bak við hljóðhimnuna en ég vona bara að það hjaðni með tímanum. Læknirinn okkar vill að ég fari með hana til háls-, nef-, og eyrnalæknis til að láta meta hvort hún fær rör í eyrun eður ei. Ég vil allaveganna ekki vera endalaust að dæla í hana sýklalyfjum í öllum regnbogans litum því litli kroppurinn höndlar það ekki svo vel. Ég er komin á ystu nöf í vinnunni því ég er búin að taka svo endalaust mikið af veikindadögum fyrir Ninjuna mína og sem betur fer á ég einstaklega skilningsríka yfirmann sem á fullt hús af börnum sjálfur svo hann skilur þessi veikindi ótrúlega vel. Ég vona bara að þetta fari nú að taka enda svo ég geti farið að standa mig eins vel og ég vil gera í vinnunni og svo að Ninju fari að líða betur. Gleðifréttir gærdagsins voru þær að nú er frítt með börn til læknis (lyfin eru auðvitað enn hunddýr)! Ég var svo himinlifandi með þetta því nánast í hverri viku mætum við mæðgur á vaktina uppi í Salahverfi og rölltum út með lyfseðil. Ninja er búin að hitta lækninn okkar svo oft að hún vildi bara fara til hennar í gær í spjall og knús.

Ninja Tíbrá er sko hæstánægð með prinsessuherbergið og finnst hundleiðinlegt þegar hún er búin að snúa öllu á hvolf, þá vill hún að mamman taki sig nú saman í andlitinu og taki til í herberginu ;)