Fellsmúlamæðgurnar..
Thursday - 7.August 2008 3 komment
..standa núna á ákveðnum tímamótum. Byrjum á mér, núna er ég búin að vinna hjá Vinnumálastofnun sem tölvunörd í ár, frábært ár. Næstu mánaðarmót byrja ég á tölvudeild Íbúðalánasjóðs, mitt helsta áhyggjuefni er þó ekki stórvægilegt - það er að ég eigi aldrei eftir að muna nafnið á fyrirtækinu sem ég er að fara að vinna hjá, ég segi alltaf Lánstraust eða Ríkislánastofnun sem er bæði út í hött. Ég verð því í aðlögun fram að mánaðarmótum, til að læra nafnið áður en ég fer að svara í símann hjá tölvudeild Lánsríkis (..eða eitthvað álíka hresst mix sem kemur málinu ekkert við)! Ég er mjög spennt að byrja þar og ljómandi sátt með launahækkunina sem kemur í kjölfarið því þeir lokkuðu mig yfir með fögrum kjörum svo auðvelt var að bíta á agnið. Ninja stendur líka frábærum tímamótum, á sama tíma byrjar hún á leikskóla. Hún er alveg með það á hreinu að Múlaborg er leikskólinn hennar þó svo hún átti sig ekki alveg á því hvað leikskóli er, þetta verður alveg ljómandi skemmtilegt allt saman!
Fellsmúlinn okkar er að verða orðinn kósí og ég hlakka óskaplega til þegar allt verður tilbúið, sem er ekki strax. Ég held samt að enginn sé jafn spenntur að allt klárist eins og Jói sem sér afslöppun í hyllingum í stað þess að koma alltaf heim og framkvæma einhverja töfra til að laga hitt og þetta. Æj það verður nú ljúft þegar allt er orðið tipptopp. Þá slökum við eflaust á í hálfan mánuð, fáum svo nóg af kyrrsetunni og rífum svo baðherbergið í tætlur og græjum það frá a til ö. Annars er allt bara í lukkunnar velstandi hjá okkur familyunni í Múlanum - sumarfríið var stórkostlegt og Ninja Tíbrá duglegust í heimi, þess má geta að bleyjuleysi ungu dömunnar hefur gengið alveg vonum framar í sumarfríinu - litli dugnaðarforkur.
Uppáhaldslögin hennar þessa dagana eru: ,,Dvel ég í Draumahöll” og ,,Dansi dansi dúkkan mín”, þau eru sungin allan daginn - hún er alltaf síkát, púslar og litar ægilega mikið og syngur daginn út og inn. Herbergið hennar, Draumahöllin er að verða ægilega flott - bara smááávegis saumaskapur eftir sem móðirin hefur enn ekki komið sér í.
