Ofurhetjur.com

Fróðleikur dagsins..

Thursday - 30.October 2008 4 komment

..epli er afar ógeðfellt þegar maður gubbar því þrátt fyrir að það sé afar gott þegar maður borðar það.

Tónlistaryndisauki

Friday - 24.October 2008 4 komment

Ég fékk ósköp yndislegt símtal í síðustu viku. Það var haldinn huggunarorðafyrirlestur í skólum í Breiðholtinu í síðustu viku vegna kreppunnar og sú sem hélt fyrirlesturinn hringdi sumsé í mig til að þakka mér fyrir jákvæðni og hlýju. Hún tók sumsé part úr ,,Hversu grænt er grasið” sem ég skrifaði og las það upp sem huggunarorð í hremmingunum sem dynja nú á þjóðfélagið. Óskaplega fannst mér þetta nú yndislegt, að vita að ég hafi kannski hjálpað einhverjum að líða betur, finna smá sálarró og bros.

Ég dýrka tónlist svo mikið! Ég get varla einbeitt mér í vinnunni nema að hlusta á eitthvað yndislegt og núna er ég að hlusta á svo yndislegt sem Frank var að senda mér að ég brosi eins og vistkona á Kleppi eftir lyfjagjöf hérna uppi í Borgartúni á meðan ég bíð eftir því að forritið mitt klári að vinna og skili mér niðurstöðum.

Helgin mun einkennast af óskaplega miklu baðherbergisstússi og svo smá nammiteiti í kveld sem er sko alltaf nauðsynlegt - Sara, Jóa og Ragga ætla að koma í Singing Bee stemningu! Annars hlakka ég svo til að gera allt tilbúið á baðinu, það verður svo geggjað þegar allt er tilbúið! Þá getur líka Sara mín loksins komið heim til okkar án þess að þurfa að læra eitthvað nýtt ,,pípara-lingó” til að skilja það sem er í vændum og það mun nú gleðja hana ægilega ;)

Kreppa?

Monday - 20.October 2008 3 komment

Við komumst að því um helgina að það að ryðjast í framkvæmdir í kreppunni er það allra gáfulegasta sem hægt er að gera. Við fengum þvílíkt flott tilboð í allt, ætluðum í upphafi að kaupa flísar á eyjuna í eldhúsinu en ákváðum að umturna bleika baðherberginu okkar ,,í leiðinni” sem hefur verið við sama heygarðshornið síðan í kringum 1970. Flísarnar á gólfinu voru bleikar, flísarnar á veggjunum voru fölbleikar, fjólubláar og mintugrænar með blómum og borðplatan að sjálfsögðu bleik í stíl við allt hitt. Ég hef sjaldan séð jafn slepjulegt baðherbergi eins og einmitt þetta. Við erum þó búin að smá-laga það, innréttingin er ný og hurðin, restin sat á hakanum.

Við fengum sumsé tilboð í nýtt nuddbaðkar, klósett, innfelldan kassa og allt meðfylgjandi, vask, blöndunartæki og flísar á allan pakkann. Við ætlum því heldur betur að græja þetta ,,2008-stæl” en ekki hafa þetta lengur fornaldarfölbleikt.

Við brutum flísarnar af veggjunum í gær og Ninja sætamús var í vinnufötunum, ægilega dugleg að hjálpa og fylgdist grannt með á kantinum með seríós í skál, syngjandi fyrir okkur og leiðbeindi okkur þegar henni fannst tilefni til að sýna okkur nú aðeins hvernig væri best að gera þetta. Í beinu framhaldi af þessu ætlum við svo að brjóta gólfflísarnar af, leggja gólfhita og já, þá fer nú boltinn að rúlla því mestu lætin verða þá búin og þá er hægt að flísaleggja allt upp á nýtt og setja upp öll tæki og byrja að elska baðherbergið!

Við erum svo framkvæmdaglöð, vorum einmitt að hlæja að því í gær að við erum ekki búin með allt frammi og byrjuð á þessu líka. Vonandi samt klárast þetta frammi bara með baðinu því það helst í hendur við það að iðnaðarmannakrúið sem ég dái svo mikið komi til að setja borðplötur, veggfóðra, hjálpa til við flísalögn og verði með ýmsa aðstoð. Allir sem vilja hjálpa eru ó svo velkomnir! =)

Þegar baðherbergið er orðið stórbrotið er allt að verða fabjölös því þá eigum við bara eftir að saga út fyrir svalahurð, setja hurð og búa til sólpall sem vonandi gerist næsta sumar, þá er þetta draumaheimili okkar tilbúið!

Topp 10

Wednesday - 15.October 2008 9 komment

10 Toppstaðirnir sem ég hef gubbað á:

1. Ramsey Street (Neighbours-götunni) í Ástralíu
2. Forsætisráðuneytið (hitti forsætisráðherra á leiðinni úr gubbipásunni)
3. Ofan í Grand Canyon
4. Við rætur Mount Everest
5. Hjá Taj Mahal í Indlandi
6. Walk of fame í Hollywood
7. Spilavíti í Las Vegas
8. Ofan í matinn minn á Singapore flugvelli
9. Á mótorhjóli á fullri ferð á Cookeyjum
10. Á kamar á Oktoberfest

Það eru fáir sem geta státað sig af lista eins og þessum, þá sérstaklega þar sem þetta er allt sökum morgunógleði. Það er hægt að vera þakklátur fyrir allt í lífinu, líka þá staðreynd að hafa morgunógleði alla meðgönguna hennar Ninju og stefna í slíkt hið sama á þessari meðgöngu líka. Þetta er allt spurning um að gera gott úr hlutunum, ég ákvað bara að safna saman flottustu gubbstöðunum til að sjá ákveðinn árangur og stolt í allri þessari ógleði sem er fágæt, ég er í raun og veru heppin að hafa þessa ógleði til þess eins að geta búið til svona glæstan lista.

Listinn verður eflaust orðinn töluvert flottari í apríl 2009 þegar ég fer á fæðingadeildina og búin að gubba á mun fleiri stórglæsilegum stöðum en þessum.

Guði sé lof fyrir lystisemdir internetsins

Monday - 13.October 2008 5 komment

Ég er svo þakklát fyrir stórkostlega internetið. Ég hugsa að ef þessi saga af sköpuninni og Guði er sönn þá held ég að það vanti smávegis vandræðalegan bút í hana. Ég held að Guð hafi í raun ekki hvílst á hvíldardeginum, sunnudeginum góða, heldur hafi hann verið á djamminu kveldið áður og verið kominn verulega vel í glas, hitt þar dömu sem hann hafi gleymt að spyrja hverra manna var og ákveðið að nýta þynnkudaginn í eitthvað gáfulegt og hafi þar með skapað internetið, til þess eins að finna þessa frábæru dömu aftur því mikið asskoti kunni hún vel til verka. Já svona held ég að sköpunin hafi í raun átt sér stað, ég held að Biblíumenn hafi bara ákveðið að passa mannorð Guðs og sleppa þessu með lauslætið, drykkjulætin, þynnkuna og svo internetið því það eru jú ekki allir jafn þakklátir fyrir internetið og ég er. Það eina sem gætu verið ýkjur í þessu hjá mér er orðið asskoti, það er ekki eitthvað sem Guð myndi segja.

Ég vona að ég verði ekki send til heljar fyrir þessar yfirlýsingar mínar og guðlast, gott að ég er ekki trúuð neitt að ráði. Ég held reyndar að flestir vinir mínir fari til heljar þannig að kannski vil ég bara fara þangað, þar verður örugglega mesta stuðpartýið.