Ofurhetjur.com

Samdrættir
Það er almennur samdráttur í samfélaginu og greinilega einnig hjá mér.

Líðanin er ekki búin að vera sem best upp á síðkastið. Líðanin er jú búin að vera ægilega fín en barnið, litla krúttið í bumbunni er ekki sem hressast með ofvirku móður sína. Ég er algjörlega hætt að gera allt heima, Jói sér um allt. Ég bara er í rólegheitum allan daginn. Reyni mitt allra besta við að vera í rólegheitum í vinnunni líka, sumsé ekki hlaupandi um. Samdrættirnir virðast ekkert á undanhaldi heldur frekar að aukast. Læknastéttin hefur það ráð eitt að ég fari í algjöra hvíld, hætti að vinna og sjái hvort þetta skánar.

Ég vona nú samt að ég geti unnið sem lengst en ef þetta fer ekki að skána þá þarf ég bara að hlýða læknum og hætta að vinna og fara í algjöra hvíld. Jói er á því að þetta barn sé jafn mikill tjillari og hann og vilji því fá sín rólegheit.

Annars er þetta afar alvarlegt því ef ég passa mig ekki þá fer ég af stað í fæðingu og barninu verður ekki bjargað þar sem ég er bara komin 17 vikur og barnið hvergi nærri tilbúið til að koma í heiminn. Ég fann það samt í gær þegar samdrættirnir voru orðnir töluvert meira en góðu hófi gegnir þegar ég var eitthvað að vesenast, ekki að hlífa mér nóg og þá um leið og ég lagðist útaf og náði algjörri slökun, duttu þeir niður. Ég var þá, áður en ég lagðist niður og slakaði algjörlega á, farin að halda að ég þyrfti að fara upp á deild. Ég er núna að bíða eftir að læknirinn minn hringi í mig til að segja mér hvað henni finnst að ég eigi að gera akkúrat núna eftir að hún er búin að líta á allar niðurstöður úr rannsóknum, hvort ég eigi að taka mér smá frí í vinnunni til að byrja með og sjá hvort þetta skánar eða hvort ég þurfi að gera eitthvað drastískara, eins og að leggjast inn á spítalann sem ég vil alls alls ekki.

Ég er alveg hreint endalaust ánægð hvað Jói er góður við mig, mér finnst þetta ægilega skrítið og finnst alltaf eins og allir séu að passa aðeins of vel upp á mig, fannst læknarnir aðeins of brúnaþungir en um leið og ég er aðeins of mikið á ferðinni, finn ég strax útaf hverju ég þarf að vera róleg. Þetta er samt svo allt annað en að vera lasin, því mér líður alveg hreint ljómandi vel, fyrir utan þetta. Það fer mér bara ekkert sérstaklega vel að vera róleg, ég hef aldrei kunnað á það. Þetta er kannski bara mín leið í lífinu til að læra almennilega afslöppun.

Ég hlakka svo til að fá að vita kynið! Ennþá meira auðvitað til að knúsa krúttið! Ninja er líka svo spennt, það má samt ekkert tala um að þetta sé stelpa eða strákur því þetta er LITLA BARNIÐ HENNAR! Hún er svo góð og yndisleg þessi dúlla, alltaf syngjandi og spjallandi. Hún og Patrik eru alltaf að spá í þessu með litla barnið, hvernig það verði nú eiginlega, hvort það skæli mikið og hversu agnarsmátt það verður. Ninja lítur svo upp til Patriks að hún er farin að einbeita sér ægilega að því að segja flott R eins og hann gerir, þarf líka alltaf að vera með tígó eins og Ísabella. Þessar dúllur, þau eru auðvitað bestustu bestu vinir í heiminum!

Lítill grís, nammigrís!
Ég er búin að vera illa fyrirkölluð síðustu daga sökum hita, slappleika, ótímabærra samdrátta og óþæginda. Ég þarf því að taka því rólega og er að gera mitt allra besta til að hlýða þeim fyrirmælum ljósmæðra en það er bara svo ægilega leiðinlegt að liggja uppi í rúmi allan daginn. Á morgun ætla ég þó að rísa úr rekkju og fara aftur í vinnuna. Þá verð ég þó að hafa mig hæga hérna heima við og hætta þessari endalausu ofvirkni sem alltaf hefur heltekið mig. Ég þarf víst að leggja ofvirknina á hilluna í smá tíma, svona rétt á meðan barnið er að hóta móður sinni með samdráttum sem ekki eru þægilegir eða góðir fyrir krílið.

Í gær var Jói á námskeiði og ég fann þessa líka kunnuglegu löngun í sælgæti, ég fór á stjá og snöflaði hér um alla íbúð í leit af einhverju sykursætu. Ég vissi af því að ég hafði keypt pez fyrir ástkæra dóttur mína í Bónus um daginn og það átti að leynast einhversstaðar pakki eða svo af slíkum sætindum. Ég snéri öllu við í leit minni af sykrinum mínum, reyndi að þefa hann uppi. Þegar ég var búin að tæta hér allt upp úr öllum skúffum og orðin ævareið við sjálfa mig að muna ekki hvað ég gerði við pez barnsins rann upp fyrir mér ljós. Ég skyndilega áttaði mig á því að þetta gat nú ekki verið eðlilegt, ég var eins og fíkill í leit af hvurslags vímu. Ég ákvað því í þessu geðsýkiskasti mínu að hætta leit minni og senda ástmanni mínum smáskilaboð um að hann yrði nú að gleðja mig með smávegis sælgæti í lok dags. Það gerði hann að sjálfsögðu. Magnað hvað það að vera með barn í maganum breytir öllum manns fæðuþörfum og löngunum. Stundum hreinlega er ekkert raunhæft að langa einvörðungu í perur um miðja nótt. Þegar líkaminn gjörsamlega öskrar á sykur er það nú líklegast eitthvað tengt barninu eða blóðsykursstatus mínum og það sama gildir að sjálfsögðu þegar það eina sem hægt er að borða eru appelsínur og ekkert annað, þá vantar kroppinn líklegast cvítamín. Svona er meðgangan skemmtileg. Mögnuð vél þessi líkami, finnur alltaf leið til að fá það sem mann í raun vantar mest af öllu og setur barnið í fyrsta sæti, ég er gjörsamlega heilluð! Ég held barasta að ég gangi með lítinn grís, lítinn nammigrís.

Fróðleikur dagsins..
..epli er afar ógeðfellt þegar maður gubbar því þrátt fyrir að það sé afar gott þegar maður borðar það.

Tónlistaryndisauki
Ég fékk ósköp yndislegt símtal í síðustu viku. Það var haldinn huggunarorðafyrirlestur í skólum í Breiðholtinu í síðustu viku vegna kreppunnar og sú sem hélt fyrirlesturinn hringdi sumsé í mig til að þakka mér fyrir jákvæðni og hlýju. Hún tók sumsé part úr ,,Hversu grænt er grasið” sem ég skrifaði og las það upp sem huggunarorð í hremmingunum sem dynja nú á þjóðfélagið. Óskaplega fannst mér þetta nú yndislegt, að vita að ég hafi kannski hjálpað einhverjum að líða betur, finna smá sálarró og bros.

Ég dýrka tónlist svo mikið! Ég get varla einbeitt mér í vinnunni nema að hlusta á eitthvað yndislegt og núna er ég að hlusta á svo yndislegt sem Frank var að senda mér að ég brosi eins og vistkona á Kleppi eftir lyfjagjöf hérna uppi í Borgartúni á meðan ég bíð eftir því að forritið mitt klári að vinna og skili mér niðurstöðum.

Helgin mun einkennast af óskaplega miklu baðherbergisstússi og svo smá nammiteiti í kveld sem er sko alltaf nauðsynlegt - Sara, Jóa og Ragga ætla að koma í Singing Bee stemningu! Annars hlakka ég svo til að gera allt tilbúið á baðinu, það verður svo geggjað þegar allt er tilbúið! Þá getur líka Sara mín loksins komið heim til okkar án þess að þurfa að læra eitthvað nýtt ,,pípara-lingó” til að skilja það sem er í vændum og það mun nú gleðja hana ægilega

Kreppa?
Við komumst að því um helgina að það að ryðjast í framkvæmdir í kreppunni er það allra gáfulegasta sem hægt er að gera. Við fengum þvílíkt flott tilboð í allt, ætluðum í upphafi að kaupa flísar á eyjuna í eldhúsinu en ákváðum að umturna bleika baðherberginu okkar ,,í leiðinni” sem hefur verið við sama heygarðshornið síðan í kringum 1970. Flísarnar á gólfinu voru bleikar, flísarnar á veggjunum voru fölbleikar, fjólubláar og mintugrænar með blómum og borðplatan að sjálfsögðu bleik í stíl við allt hitt. Ég hef sjaldan séð jafn slepjulegt baðherbergi eins og einmitt þetta. Við erum þó búin að smá-laga það, innréttingin er ný og hurðin, restin sat á hakanum.

Við fengum sumsé tilboð í nýtt nuddbaðkar, klósett, innfelldan kassa og allt meðfylgjandi, vask, blöndunartæki og flísar á allan pakkann. Við ætlum því heldur betur að græja þetta ,,2008-stæl” en ekki hafa þetta lengur fornaldarfölbleikt.

Við brutum flísarnar af veggjunum í gær og Ninja sætamús var í vinnufötunum, ægilega dugleg að hjálpa og fylgdist grannt með á kantinum með seríós í skál, syngjandi fyrir okkur og leiðbeindi okkur þegar henni fannst tilefni til að sýna okkur nú aðeins hvernig væri best að gera þetta. Í beinu framhaldi af þessu ætlum við svo að brjóta gólfflísarnar af, leggja gólfhita og já, þá fer nú boltinn að rúlla því mestu lætin verða þá búin og þá er hægt að flísaleggja allt upp á nýtt og setja upp öll tæki og byrja að elska baðherbergið!

Við erum svo framkvæmdaglöð, vorum einmitt að hlæja að því í gær að við erum ekki búin með allt frammi og byrjuð á þessu líka. Vonandi samt klárast þetta frammi bara með baðinu því það helst í hendur við það að iðnaðarmannakrúið sem ég dái svo mikið komi til að setja borðplötur, veggfóðra, hjálpa til við flísalögn og verði með ýmsa aðstoð. Allir sem vilja hjálpa eru ó svo velkomnir! =)

Þegar baðherbergið er orðið stórbrotið er allt að verða fabjölös því þá eigum við bara eftir að saga út fyrir svalahurð, setja hurð og búa til sólpall sem vonandi gerist næsta sumar, þá er þetta draumaheimili okkar tilbúið!

Topp 10
10 Toppstaðirnir sem ég hef gubbað á:

1.  Ramsey Street (Neighbours-götunni) í Ástralíu

2.  Forsætisráðuneytið (hitti forsætisráðherra á leiðinni úr gubbipásunni)

3.  Ofan í Grand Canyon

4.  Við rætur Mount Everest

5.  Hjá Taj Mahal í Indlandi

6.  Walk of fame í Hollywood

7.  Spilavíti í Las Vegas

8.  Ofan í matinn minn á Singapore flugvelli

9.  Á mótorhjóli á fullri ferð á Cookeyjum

10. Á kamar á Oktoberfest

Það eru fáir sem geta státað sig af lista eins og þessum, þá sérstaklega þar sem þetta er allt sökum morgunógleði. Það er hægt að vera þakklátur fyrir allt í lífinu, líka þá staðreynd að hafa morgunógleði alla meðgönguna hennar Ninju og stefna í slíkt hið sama á þessari meðgöngu líka. Þetta er allt spurning um að gera gott úr hlutunum, ég ákvað bara að safna saman flottustu gubbstöðunum til að sjá ákveðinn árangur og stolt í allri þessari ógleði sem er fágæt, ég er í raun og veru heppin að hafa þessa ógleði til þess eins að geta búið til svona glæstan lista.

Listinn verður eflaust orðinn töluvert flottari í apríl 2009 þegar ég fer á fæðingadeildina og búin að gubba á mun fleiri stórglæsilegum stöðum en þessum.

Guði sé lof fyrir lystisemdir internetsins
Ég er svo þakklát fyrir stórkostlega internetið. Ég hugsa að ef þessi saga af sköpuninni og Guði er sönn þá held ég að það vanti smávegis vandræðalegan bút í hana. Ég held að Guð hafi í raun ekki hvílst á hvíldardeginum, sunnudeginum góða, heldur hafi hann verið á djamminu kveldið áður og verið kominn verulega vel í glas, hitt þar dömu sem hann hafi gleymt að spyrja hverra manna var og ákveðið að nýta þynnkudaginn í eitthvað gáfulegt og hafi þar með skapað internetið, til þess eins að finna þessa frábæru dömu aftur því mikið asskoti kunni hún vel til verka. Já svona held ég að sköpunin hafi í raun átt sér stað, ég held að Biblíumenn hafi bara ákveðið að passa mannorð Guðs og sleppa þessu með lauslætið, drykkjulætin, þynnkuna og svo internetið því það eru jú ekki allir jafn þakklátir fyrir internetið og ég er. Það eina sem gætu verið ýkjur í þessu hjá mér er orðið asskoti, það er ekki eitthvað sem Guð myndi segja.

Ég vona að ég verði ekki send til heljar fyrir þessar yfirlýsingar mínar og guðlast, gott að ég er ekki trúuð neitt að ráði. Ég held reyndar að flestir vinir mínir fari til heljar þannig að kannski vil ég bara fara þangað, þar verður örugglega mesta stuðpartýið.

Ninja djammari..
Helgin var í heild sinni unaðsleg. Við fórum í sund, elduðum dýrindis matargóðgæti, bökuðum, skemmtum okkur, fórum í heimsóknir og höfðum það kósý. Við fengum líka fullt af frábærum afmælisheimsóknum, knúsum og kveðjum því ég varð árinu eldri!

Ninja er orðin eitthvað svo stór, heldur uppi margra klukkutíma samræðum ef því er að skipta. Skilur sko allt og vill sko alltaf ræða hvað er framundan á degi hverjum, hafa skipulag og skemmtidagskrá alveg út í eitt sem er alveg ljómandi fínt því henni finnst yfirleitt allt skemmtilegt, bara ef það er gert með bros á vör. Hún kemur alltaf á hverjum morgni og skríður upp í til okkar og knúsar okkur í bak og fyrir og vill kúra aaaðeins lengur í fanginu áður en við byrjum daginn.

Ég var að tala við Sonju í símann á laugardagsmorguninn og hún var að segja mér frá hvítvínslögg sem hún og Sara fengu sér kveldið áður og ég spurði hvort þær hafi verið að djamma. Litla skottan var nú ekki lengi að grípa þetta nýja orð og endurtók aftur og aftur hlaupandi um íbúðina að hún væri að djamma. Svo útskýrði ég fyrir henni að það að djamma væri að syngja og dansa og þá  gerði mín sér lítið fyrir og dansaði um allt og söng leikskólalögin og á milli þess sem hún greip andann á lofti kallaði hún: ,,mamma, Ninja djamma!“.

Steinka var að þvo öll dúkkufötin sem við systur áttum í æsku og Ninja og Ísabella skiptu á milli sín fjársjóðnum og litla skottan er algjörlega í skýjunum með góssið! Hún situr og spjallar við dúkkurnar með dúkkuföt allt í kring, skiptir á þeim og tætir þær úr öllu, hefur ,,pæjustund“ eins og við mæðgur höfum oft eftir bað þar sem hún þykist setja á þær naglalakk, klippir á þeim neglurnar og setur á þær krem með góðri lykt. Ímyndunaraflið er sumsé alveg í góðu lagi hjá henni.

Hún er bara svo góð, yndisleg og fyndin. Húmorinn er alveg að fara með hana þessa dagana. Stríðir alveg á fullu og það er alveg hrikalega fyndið að fylgjast með henni. Hún beinir stríðninni mjög mikið að afa sínum (pabba Þorgeiri) og þau eiga ægilegan einkahúmor. Svo finnst henni voða fyndið að segja gottandi á morgnanna þegar við spyrjum hvort hún vilji ekki koma í fötin til að fara á leikskólann: ,,Nei, Ninja liddlikki fara í leikskólann“ svo hlær hún ægilega með þvílíkum ýkjum, hoppar helst líka og kemur kát tilbúin að fara í fötin.  Það er svo yndislegt að fylgjast með þessu öllu, fylgjast með húmornum þróast og orðunum fjölga með hverjum einasta degi. Svo er líka svo gott að laumast inn í herbergi þegar hún er sofnuð í bangsaflóðinu í rúminu sínu og stelast til að dást að fegurðinni. Hún er líka orðin mjög dugleg að leggja áherslu á að segja rétt R. Við heyrum oft í henni dunda sér inni í herbergi með dúkkurnar þegar við erum til dæmis að elda kvöldmatinn og hún er að prófa að segja orð með R aftur og aftur, enda þráir hún fátt heitar en að vera eins og Patrik Dagur í einu og öllu og hann segir svo flott R. Já óhætt að segja að maður getur verið aaansi upptekinn af börnum sínum! =)

Hún á afmæl’í dag..
Ninja Tíbrá er 2 ára í dag! Veiiiiiiiii..

Ádeila dagvistunarmál Reykajvíkurborgar
Nú sótti ég um leikskóla fyrir Ninju fyrir lifandis löngu eins og eðlilegt er. Hún er núna búin að vera hjá dagmömmu í slétt ár í dag. Við fengum bréf í júní að hún væri komin inn á leikskóla. Um leið og ég samþykti það pláss sem henni var þá boðið, datt hún út af biðlista fyrir hina leikskólana sem við höfðum einnig sótt um. Okkur var tjáð að um leið og væri búið að fullmanna leikskólann fengjum við að vita hvenær aðlögun færi í gang, enda sótti ég um að hún fengi að byrja sem fyrst. Ég beið spennt og hringdi nokkrum sinnum og allt leit þetta út fyrir að hún fengi aðlögun síðustu vikuna í ágúst, ég tók því með þökkum. Leið og beið og ekki varð úr því. Hún er fremst á listanum og kemst því fyrst inn, enda er hún í fyrsta forgangi. Í morgun hringdi ég símtal númer 17 í leikskólann til að sjá hvenær aðlögun gæti hafist, þá er mér tjáð að sökum óstjórnlegrar manneklu mun ég að öllum líkindum fá símtal í lok viku, hugsanlega með einhverjum svörum. Hugsanlega, hvurslas svar er það? Nú standa málin þannig að dagmamman er löngu búin að láta plássið hennar Ninju, þar sem leikskólinn gaf jákvætt svar um síðustu vikuna í ágúst eða þar um bil. Ég hef hvorki dagmömmu né leikskóla fyrir barnið. Reykjavíkurborg er algjörlega að drulla upp á bak með dagvistunarmálin og það eina sem ég sé í stöðunni er að taka launalaust frí í vinnunni til að vera heima með barnið. Þar að auki hef ég ekki rétt á launalausu fríi frá vinnu, fyrir utan það að hafa ekki á nokkurn hátt efni á því. Dagmamman ákvað að taka sér 6 vikna sumarfrí í sumar og því á ég ekki uppsafnað frí til að brúa bilið núna. Ég get jú þáð með þökkum 25.000kr á mánuði sem Reykjavíkurborg er tilbúin að greiða mér fyrir að vera heima með barnið mitt, já það er á við laun fyrir að vera útivinnandi! Kæra Reykjavíkurborg - er þetta grín?

Hvernig stendur á því að þessi mál þurfa að vera svona arfaslök? Hvernig stendur á því að börn í mörgum öðrum sveitafélögum geta fengið leikskólapláss rétt um 18 mánaða aldur? Af hverju þarf Reykjavíkurborg að standa sig svona innilega illa? Hún er jú 2 ára, ég er ekki með óraunhæfar kröfur! Þetta eru börnin okkar sem eru annars vegar, maður á ekki að þurfa sjálfur að vera í hálfu starfi við að hafa uppi á fólkinu sem á að ræða við til að fá einhver haldbær svör, maður á ekki að þurfa að hringja einu sinni á dag til að fá það svar að manneklan sé svo mikil að því miður, gangi þetta ekki upp í þessari viku, í raun sé ekki nægilegur mannskapur til að svara í símann einu sinni. Ástandið er augljóslega skelfilegt! Nú hafa leikskólastarfsmenn alltaf verið á lágum launum, er þetta árið sem allir ákveða að hætta að sætta sig við það? Það hreinlega getur ekki staðist! Þetta vandamál getur ekki verið nýtt! Ég greiði hundruði þúsunda í blóðuga skatta hver einustu mánaðarmót, mér finnst ég að eiga skilið pláss á leikskóla fyrir gersemið mitt fyrir vikið!

Ég trúi því seint að ég ein standi fyrir þessum ömurlega vegg sem ég er búin að klessa á í dagvistunarmálum borgarinnar. Nú finnst mér að menn ættu aðeins að skoða sína afstöðu gagnvart borgarstjórn, þar eru greinilega allir barnlausir og er bersýnilega slétt sama um þá þegna sem þurfa að sjá fyrir heimili með launaðri vinnu!