


Mæðgur
Skype - Samskiptamiðill framtíðarinnar?
[12.05.2008 22:55:43] abdou.milan1 says: hi
[12.05.2008 22:55:44] abdou.milan1 says: iam man
[12.05.2008 22:55:53] abdou.milan1 says: you love sex
[12.05.2008 22:56:01] abdou.milan1 says: imake wimen happy love
[12.05.2008 22:56:08] abdou.milan1 says: so connecter for me
Eitt allra innihaldsríkasta samtal fyrr og síðar. Mér þykir djarft og hugað að mönnum eins og Abdou skuli detta akkúrat þessi orð í hug til að segja við mig, í fyrsta skipti sem hann ákveður að hafa samband - eftir að hafa einvörðungu séð að ég heiti Annzka (skype nafnið mitt) og fæðingarár mitt. Ég er með allt lokað og læst á skype, svo enginn geti hringt nema þeir sem eru á listanum hjá mér, hins vegar getur fólk sent skilaboð. Ég hló svo mikið að súkkulaðikakan sem ég var að baka varð töluvert betri fyrir vikið, einvörðungu sökum orðavals og fáránlegheita Abdou. Við hverju býst hann blessaður? Að ég segi: ,,yes I love sex, wanna have some? can you maby move from Kasakstan to Iceland to be with me and we’ll fall in love and live happily ever after?”
Ljómandi góður samskiptamiðill þetta Skype, sérstaklega þegar menn kunna hvorki ensku né mannasiði.
Þetta er kannski það sem framtíðin ber í skauti sér, einkamál.is fara að leggja upp laupana og skype, facebook og myspace taka við sem kynlífs- og ástarmiðlanir. Fólk hættir að fara út á lífið og leita, kaupir frekar öflugri fartölvu til að höndla allt internetklámið og ástarleitina óumflýjanlegu, situr heima sveitt í hlýrabolnum, með matarleifar á hökunni, svínslegt glott og ánægjutón í lyklaborðshamrinu. Ekki þurfa menn nú að hafa sig til fyrir netsamskiptin. Ritvinnsla fer að verða mikilvægasti tími grunnskólans og étur upp þann tíma sem áður fór í sögu og stærðfræði, því hver þarf slíkt þegar maður getur setið heima og drukkið í sig fróðleik internetsins, valið RUN takkann og skrifað CALC og keypt helstu nauðsynjar á netinu samhliða því að finna hina einu sönnu. Velsæmismörk er kannski ekki lengur eitthvað sem hægt er að hafa til viðmiðunar. Kannski eru öll höft og takmörk farin fyrir bí. Maður getur spilað sig stórlax á netvefnum, logið til um allt sem er og þar með skapað sér nýjan heim, ýtir þetta ekki töluvert undir siðblindu? Hvar hófst þetta, var það IRCið sem tröllreið öllu, kollsteypti samskiptum eins og við þekktum þau? Eða var það gemsinn, sem hafði í för með sér smáskilaboð og það að krakkar hættu að banka heima hjá öðrum krökkum, senda bara smáskilaboð frekar um útileiki? Hefur þetta hugsanlega þróast hægt og bítandi, með tímanum, án þess að nokkur verði þess var hefur þetta læðst inn í líf okkar? Hvar hættir þetta? Hvar dregur maður mörkin? Fyrst menn eru ákafir á internetinu, hvernig eru þeir þá í raunveruleikanum? Teprur eða nýðingsmenn, feimnir eða ágengir? Jah, maður spyr sig!
Býflugnaslagur
Ég og Sara lentum aldeilis í hremmingum um daginn. Við vorum úti á svölum að anda að okkur ákaflega fersku lofti sem Grafarvogurinn og Sara höfðu upp á að bjóða í sameiningu þegar allt í einu koma aðsvífandi brjálaðir fuglar í vígahug. Þessir fuglar voru svo skelfilegir að annað eins hefur sjaldan sést, já þetta voru býfuglar! Við, eins og góðum gelgjum sæmir, vissum ekki okkar rjúkandi ráð og Sara stóð stjörf úti á meðan kvikindin voru upp um allt og út um allt en ég hljómp inn með tilheyrandi píkuskrækjum. Við reyndum að bæja býfuglunum frá með ýmsum brögðum. Söru varð svo um að þegar hún komst inn forðaði hún sér inn á bað. Ég hins vegar ákvað að vera ægilegur kúreki og snara snérilinn á hurðinni með tölvuhleðslutækinu. Ég stóð þarna, búin að gera lykkju á tölvuhleðslutækis-snúruna og reyndi að snara hurðina til mín. Þetta tókst á endanum og ein býflugan varð eftir í falsinum og ég hélt að sjálfsögðu að ég hafði framið þarna afar sjálfselskt morð. Stuttu seinna, þegar Sara þurfti að róa sig með einni rettu og við héldum að árás býfuglanna færi yfirstaðin og opnuðum hurðina grunlausar þá stökk býfuglinn á móti okkur, í meiri vígahug en nokkru sinni.

Núna eftirá skammast ég mín fyrir að hafa reynt að deyða þetta ágæta og saklausa dýr, ég er nú hálffegin að hún slapp og húkti í falsinum (það er svona rönd á svalahurðinni þar sem tekið er úr hurðinni, þar var hún inni í gatinu og slapp gjörsamlega ómeidd) því ég hef ekkert yfirvald í þessum bransa, á ekkert að drepa hana neitt! Við vorum bara svo hræddar! Jeremías hvað það hefði verið kostulegt hefði einhver verið með vídjótökuvél og tekið upp þar sem ég stóð skjálfandi úr hræðslu með hleðslutækið úr vinnutölvunni, búin að gera lykkju á snúruna og snaraði snérilinn eins og ég væri komin beint heim í stofu úr villta vestrinu! Ægilega laumuleg á svipinn og læddist til að styggja ekki kvikindin sem voru þarna samankomin í leynimakki á svölunum! Já sumarið er sko greiiiiiiiiinilega komið og það lofar góðu! ![]()
Ketchup
Eyrnarörin gengu vel og krúttan eldhress.
Við erum eldhressar og allt gengur ljómandi. Trampolínið í garðinum hjá mömmu og pabba er í uppáhaldi þessa dagana og krílin hoppandi kát með það.
Dæmi um það sem Ninja gerir mikið þessa dagana:
• Telur: ,,einn, tveii, sjimm, átta, tíu“ - þetta eru aðal tölurnar sem aldrei gleymast, þær sem eru inni á milli eru hvergi nærri jafn mikilvægar
• Syngur ósköpin öll, trallar, hoppar og dansar.
• Segir sjálfri sér til: ,,Nei, Essku Ninna mí, ekki síta jebbann emminn.“ (is. Nei, elsku Ninja mín, ekki snýta nebbann í ermina).
• ,,Ninna, ekki boja bókin, bara jesana.“ (is. Það á ekki að borða bókina, bara að lesa hana).
• ,,Essku Ninna lúlla núna - gónódd!“ (is. Elsku Ninja ætlar að fara að lúlla núna, góða nótt!)
Svo biður hún alltaf um glosskoss, því ég er alltaf með gloss og hún vill glosskoss til að fá gloss á sig líka.
Krúttið litla!
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Við mæðgur skelltum okkur með Steinku, Patrik og Ísabellu í fjölskyldu- og húsdýragðarinn á laugardaginn. Það var sko ekkert smá gaman! Ég setti inn nokkrar myndir á Flickr svona til að seðja myndahungrið í smá tíma þangað til myndaalbúmið hérna á síðunni kemst í lag.


Tónlistaræði
Sumarið er tíminn! Mér finnst sumarið svo mikið uppáhalds. Þegar sumarið er búið og veturinn að nálgast finnst mér hann reyndar alltaf æði líka en sumarið er svona meira í uppáhaldi. Þá er hægt að grilla (eins og ég gerði í gær, kom reyndar ekkert nálægt grillinu eeeeen það er nú algjört aukaatriði). Þá er sumsé hægt að láta grilla fyrir sig. Þá er líka svo gaman að hlusta á frábæra tónlist, ég er með mismunandi vetrartónlistasmekk og sumartónlistasmekk, núna er sumargírinn klárlega kominn og uppáhaldstónlistin mín þessa dagana fær sko að óma hérna í íbúðinni og bílnum líka. Ninja er nú líka alveg að meta þetta, stóð hérna áðan með sólgleraugu og dansaði. Ég er að reyna að koma inn hjá henni aaaaaalvöru tónlistasmekk, Fritzinn sér svo um að koma inn hjá henni Liverpool-æðinu, góð skipti. Eitt kvöldið um daginn var ég að hlusta á geggjað lag, uppáhaldslagið mitt þessa dagana og tók teppi, breiddi það á svalirnar og lá skælbrosandi úti á svölum með hendurnar undir höfðinu, tásurnar í dyragættinni og headphones á hausnum að hlusta á yndislegt lag og horfa á sólarlagið! =)
Svona er lífið nú algjörlega stórkostlegt! ![]()
HNE
Við fórum sumsé til HNE í gær. Hann var afar elskulegur barnalæknir og svaraði öllum spurningum ungu, óreyndu mömmunnar með glæsibrag. Hann las latínubréfið sem ég sagði honum að mér hafi þótt ægilega fyndið og sagðist í fyrsta skipti vera að sjá þetta sem tákn á blaði en ekki afar skilvirk skilaboð sem myndu svara öllum heimsins spurningum og sá hvar skemmtilegheitin lágu. Hann skoðaði eyrun með risavöxnu tæki, sagði okkur að þetta myndi nú alls ekki líta vel út og að hann vildi fá hana í rör í bæði eyru og það strax. Næsti tími var eftir rúma þrjá mánuði en hann tók ekki í mál að bíða svo lengi, vildi fá hana um leið og eyrað væri aðeins búið að jafna sig. Hann færði til nokkra tíma til að búa til pláss fyrir Ninju og við förum í rör eftir tvær vikur, 2.maí nánar tiltekið. Það er á föstudegi, sem er alveg frábært því þá hefur hún helgina í að jafna sig og það verður sko lögð áhersla á afslöppun og dekur. Hann sagði að með því að koma strax í rörin myndum við losna við hina aðgerðina og aðra svæfingu sem hinn læknirinn hafði talað um. Hann útskýrði hvernig Ninju myndi líða núna og það var nú ekki fallegt, hún heyrir ekki vel því eyrun eru svo full af bólgum, sýkingum og slími en eftir rörin þá mun hún heyra betur, líða betur og auðveldara er að grípa fyrr inn í eyrnabólgur ef þær koma. Ég er sko alveg himinlifandi, þetta á eftir að ganga eins og í sögu og krúttu litlu á eftir að líða muuuuuun betur eftirá! =)
Húmoristi með eyrnablæðingar
Ninja Tíbrá vaknaði galvösk kl.6:00 í morgun og var ekkert á því að eftir að sólin væri komin upp, væri hægt að sofa, mamman var nú á öðru máli en þaaaaað er algjört aukaatriði. Við fórum því fram úr og prinsessan skondna stjórnaði heimilinu eins og svo oft áður. Hún er með ægilegar bendingar, ef hún er alveg handviss um hvað hana langar og er jafnvel örlítið óþolinmóð þá beygir hún handlegginn og kastar puttanum einhvernveginn beint fram með mjög ákveðnum hætti og bendir og segir hvað hún vill. Hún er nú samt alls ekkert frek, veit hvað hún vill en er alltaf til í að semja. Ef hún fær ekki það sem hún vill er hún yfirleitt sátt, enda aldrei langt í brosið. Í morgun þegar við vorum að röllta út í bíl í rólegheitunum (enda höfðum við sko nææææægan tíma) sagði mín: ,,Mamma bílinn Tótu, Ninna Patti heima sjómminn Sjubbana!” og hló svo ægilega - þá átti ég nú bara að skella mér til dagmömmunnar og hún ætlaði bara að vera heima með Patta sínum að horfa á Stubbana í sjónvarpinu (sjubba = stubbarnir, sjómminn = sjónvarpið.) Hún er með húmorinn í lagi þessi elska!
Ég, Ninja, Steinunn, Patrik og Ísabella fórum í Kringluna í gær og þegar við vorum að fara þaðan sá ég að það var að leka bló út úr eyranu á Ninju. Við fórum rakleitt upp á læknavaktina ,,okkar” (við erum orðnar eins og heimiliskötturinn þarna, allir læknarnir þekkja okkur orðið og afgreiðslugellan man kennitöluna hennar Ninju) og létum kíkja. Steinunn, Ísabella og Patrik voru í stuðningsliðinu. Ninja Tíbrá ,,eyrnabólgu-professional” settist í fangið á mér, hallaði höfðinu að mér og snéri eyranu að lækninum, já þetta er sko ekkert mál lengur! Svo þegar læknirinn var búinn að kíkja sagði hún: ,,oooog annan”, skælbrosti og snéri höfðinu til að minna lækninn á að kíkja líka í hitt eyrað. Hljóðhimnan var sumsé sprungin og ægileg sýking í gangi. Hún fékk dropa í eyrun og verkjastillandi fyrir nóttina en svo förum við mæðgur í dag til Háls-, nef- og eyrnalæknisins, eða HNE eins og þeir læknafélagar okkar kalla þetta. Læknirinn skrifaði ægilegt bréf á latínu handa okkur til að taka með. Við systur skemmtum okkur konunglega þegar við lásum þetta bréf, orðin voru ótrúleg skemmtileg, sum hægt að misskilja jafnvel, önnur enganvegin hægt að bera fram. Algjört lykilatriði að hafa húmor fyrir lífinu! Því miður voru valkostirnir tveir til að lækna þetta svo sannalega ekki fallegir, svo skuggalegir að ég fæ hroll. Ég vona innilega að hvorugur af þessum lausnarkostum verði valinn, heldur að það sé ,,the hidden third” sem HNE-inn komi með og er algjörlega sársaukalaus, svæfingarlaus og lyfjalaus =)
Lífið og tilveran..
Við mæðgur erum eiturhressar. Bryndís, Hinrik og Ásdís Iða eignuðust litla yndislega Hugrúnu í heimafæðingu 28.mars og Sigurlaug og Einar Már eignuðust líka yndislega stelpu 10.apríl. Við eigum eftir að fara að kíkja á litlu dúllurnar en það verður gert í þessari viku, ég vildi bara ekki kíkja með Ninju því hún er búin að vera með kvef og eyrnabólgu. Núna er það hins vegar algjörlega horfið á braut og loksins komið að því að fara til háls-, nef- og eyrnalæknisins. Við förum sumsé á morgun og þá verður ákveðið hvað verður gert í þessu eyrnabólgustandi á Ninjunni. Hún fær svo bullandi eyrnabólgur að núna upp á síðkastið hafa venjuleg sýklalyf hvergi nærri dugað og hún fengið sterkustu skammta sem völ er á. Það versta er að þegar einn sýkló-skammtur er búinn fær hún næsta í kjölfarið því bólgurnar virðast aldrei hverfa alveg. Þetta horfir hins vegar allt til betri vegar og að sjálfsögðu skánar allt með hækkandi sól og jákvæðninni sem drífur okkur áfram.
Annars er komið grill á svalirnar, Ninja segir alltaf: ,,Afi úti gjilla” og skælbrosir þegar hún sér það því hún er orðin ansi vön því að vera í æðislegum grillpartýum í Glaðhúsinu hjá mömmu og pabba. Hún er orðin svo dugleg, er stundum heilu dagana bleyjulaus og fær: ,,sjilpplinn” (stimpil) fyrir vikið! Hún er óskaplega sérvitur með þetta og óstjórnlega krúttleg, allt þarf að vera gert eftir hennar höfði og heima hjá mömmu og pabba pissar hún til dæmis ekki á klósettinu niðri, BARA uppi, annað er hreinlega ekki tekið í mál og þessu verður ekki haggað. Þetta gerir hún því Patrik pissar ALLTAF uppi og eru þau frændsystkinin með þessa sömu ægilega krúttlegu sérvisku.
Hún gjörsamlega elskar og dáir kisuna sem býr í blokkinni okkar, kisan bíður eftir okkur á morgnanna og verður alltaf ágengari í vinskap sínum og í morgun kom hún bara inn í bíl til okkar, ætlaði bara með til dagmömmunnar og Ninja Tíbrá var að sjálfsögðu himinlifandi, sagði bara: ,,pisa mej bíli Tótu. Ninna, pisa bojða gautinn Tótu, Tomma, Sunnu” þá átti kisa bara að koma með til Tótu og borða hafragraut með henni, Tomma og Sunnu =)
Pjása, kisan hennar Ágústu systur er kettlingafull og erum við mæðgur að spá í að fá okkur einn lítinn krúttlegan hnoðra í sumar =)
Auðkennislykillinn - rót alls ills!
Ég er þungi á íslensku þjóðfélagi. Ég finn mig tilneydda til að mótmæla upptöku auðkennislykla þar sem þeir gera líf mitt leitt og valda mér afar miklu hugarangri. Þeir verða til þess að ég á erfitt með svefn og ekki nóg með það, mínir auðkennislyklar hafa ekki einungis áhrif á mig, heldur þjóðfélagið í heild sinni.
Þegar ég týni auðkennislykli gefur auga leið að ég þarf nýjan í stað þessa týnda. Þegar ég fæ nýjan liggur það í hlutarins eðli að hann týnist undir eins. Þegar ég fæ svo enn annan fer bankastarfsmaðurinn að líta mig hornauga, það er þetta sem veldur svefntruflunum hjá mér.
Þetta endalausa útlát auðkennislykla hefur ekki verið tekið inn í fjárhagsáætlun bankanna og standa þeir á gati þegar þeir sjá þarna í sínu bókhaldi stórar summur sem ekki er hægt að gera grein fyrir með neinum vitrænum hætti. Þarna tapa þeir stórfé. Það eru svona hlutir sem valda halla bankanna, halla þjóðfélagsins í heild sinni og að lokum hækkun stýrivaxta. Þetta byrjar allt með litlu hlutunum, sem vinda síðar upp á sig og verða að snjóbolta sem erfitt er að stoppa. Þegar boltinn er farinn að rúlla á ógnarhraða hækkar bensínverð, sem veldur mótmælum, sem veldur því að ég verð sein í vinnuna. Þetta veldur hækkun verðbólgu, hækkun matvælaverðs, hækkun lána og eins og gefur að skilja, er það á þessum tímapunkti sem þetta er farið að hafa áhrif á þjóðfélagið í heild sinni. Það að ég týni þessum auðkennislyklum í hrönnum veldur því öllu þessu slæma og er það ósanngjarnt að þjóðfélagsþegnar sem passa upp á sinn auðkennislykil eins og demtantshring ömmu sinnar þurfi að súpa seiðið af mínu misminni. Að þessum sökum finn ég sterka löngun til að mótmæla upptöku auðkennislykla.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og því gerði ég grein fyrir þessu hugarangri mínu við stórkostlega skilningsríka þjónustufulltrúann minn hjá bankanum fyrir nokkru, þetta er bréfið:
,,ég er sumsé að vandræðast með þennan blessaða auðkennislykil, ég vil helst ALDREI þurfa að nota þetta því ég veit vel að ég á eftir að týna honum undir eins og kemst þá aldrei inn í einkabankann minn, ég mun biðja um nýjan og hann mun eiga sömu örlög og hinn þannig að í raun er þetta bara tilkostnaður fyrir ykkur, að þurfa að leggja út fyrir endalausum auðkennislyklum fyrir mig, aulann sem öllu týni. Þið eruð nú þegar að panta fyrir mig ný debet- og kreditkort svo oft á ári að ég hef fengið fyrir það skammir, ekki vil ég nú setja ykkur endanlega á hausinn. Ég hef hingað til ekki þurft að nota hann en núna (þegar ég skrái mig inn í einkabankann) grátbiður bankinn mig um að nota þennan sora. Ég hef grun um að ég hafi aldrei fengið þennan ágæta lykil þar sem ég bjó í Danmörku þegar þessu var dreift á landsvísu. Það getur nú svosem vel verið að ég hafi á einhverjum tímapunkti fengið þennan óvin minn í hendurnar en glatað honum ,,med det samme” (enda óvinur minn og því engin ástæða til að passa sérstaklega upp á).
Ég er tilbúin að beita öllum mögulegum brögðum og töfrum til að sleppa við þessa fjötra, allaveganna sem lengst. Er fræðilegur möguleiki að komast hjá því að nota þennan blessaða lykil eða fresta því lengur? (og mundu, það verður stórt sár í fjáhag Landsbankans því svo mörgum mun ég týna!)”
Minn stórgóði þjónustufulltrúi svaraði mér um hæl:
,,Þetta er allt í lagi, ég set mig bara í samband við bankastjórnina og þeir geta gert ráð fyrir auðkennislykla-týnleika að þinni hálfu svo þeir geti sett það í fjárhagsáætlun næsta árs. Ég er hræddur um að þú neyðist að taka þennan erkióvin upp á arma þína vegna þess að mér skilst að bráðum eigi að loka á alla sem ekki nota lykilinn.”
Núna get ég sofið örlítið værar, þegar ég veit að næsta fjárhagsár verður mun betra, fyrirsjáanlegra á allan máta. Það þarf ekki að kvíða falli krónunnar eða óvæntra stýrivaxtahækkanna, þetta hefur verið tekið inn í fjárhagsáætlun og því biðst ég hér með afsökunar við alla sem hafa nú þurft að súpa seiðið af mínum mistökum þetta árið. Lánahækkanir, mótmæli í Ártúnsbrekku, hjónaerjur, ég tek þetta á mig.


20 May, 2008 @ 15:44