Ofurhetjur.com

Dísúss kest!

Tuesday - 26.February 2008 5 komment

Ninja Tíbrá er svo mikill snillingur! Ég held ég hafi nú ekki minnst á það áður! Orð vikunnar eru Tíramisú (eftirrétturinn unaðslegi) og Dísúss!

Hún segir ALLT sem maður lætur út úr sér og er svo fljót að grípa orðin og nota þau svo seinna að ég er alltaf furðu lostin í hvert sinn! Steinkan okkar kenndi henni að segja dísúss. Því næst lærði hún Dísúss kræst og segir núna dísúss kest skælbrosandi við hin ýmsu tækifæri ;)

Við erum búnar að vera svo busy upp á síðkastið að við erum nánast aldrei heima. Ninja Tíbrá var svo fegin áðan að fá að leika með SITT dót í SÍNU herbergi að það var ekkert smá, skríkti hérna úr gleði og lokkaði mömmuna sína í kaffiboð í prinsessuherberginu - YNDISLEGT!

Hún var í svo miklu kúristuði hérna í gærkveldi að hún sagði ,,mamma, sitja!” í sínum hundaskipunartón og benti mér að sitja, ég settist niður í sófann og þá sagði mín: ,,Ninna kúsa kyssa mamma” Ég var alveg snortin yfir kraftaverkinu mínu sem lá í fanginu á mér með hendurnar utan um hálsinn, kyssti mig í gríð og erg á meðan við spjölluðum um daginn og veginn, fórum með bænirnar, lásum bók og kúrðum þvílíkt. Þetta entist í rúmlega hálftíma (ótrúlegt miðað við hennar athyglisspan) eða þangað til hún sagði: ,,Ninna lúlla pela” og leiddi mig inn í herbergi, ég hitaði pela og hún fór að lúlla þessi elska :D

..Ég horfði á No Country for Old man um daginn, svaf allan tímann og lét ,,krádið” sem var í vídjókúri hér um að dæma tómleika hennar og ætla mér ekki að gera aðra tilraun til að vaka yfir henni - hvað er við þessa mynd sem allir lofsyngja?

Bænastund..

Monday - 18.February 2008 5 komment

Þorvaldur, kærastinn hennar Regínu minnar lenti í skelfilegu bílslysi á Akranesi fyrr í dag. Hann hefur ekki komist til meðvitundar og er núna haldið sofandi. Það er núna í augnablikinu verið að kljást við heilablæðingu niðri á Landspítala og ég er að bíða eftir nýjustu fréttum um hvernig sú aðgerð gekk. Ég vona að allir biðji fyrir honum og við sendum honum fallega strauma. Regína ætlar að koma til mín í kvöld og gista hjá okkur og svo verður haldið upp á spítala snemma í fyrramálið aftur. Við mæðgur sendum hlýhug og fallegar hugsanir til allra sem Þorvaldi standa nálægt.

A near death experience

Sunday - 17.February 2008 2 komment

Ég fór í Kringluna í gær að kaupa skírnargjöf fyrir Ágúst Inga. Ég fór sumsé á mínum bíl (sem hér eftir verður kölluð Bláa hættan), lagði og hljóp inn í Kringlu til að hitta Steinunni. Ninja var hjá pabba sínum og ég skaust þarna inn eitt augnablik og út aftur. Þegar ég bakkaði bílnum út úr stæðinu hjá Kringlunni fannst mér hann eitthvað einkennilegur. Það var eins og það væri einhver fyrirstaða þegar ég var að bakka, eins og hann væri í handbremsu eða eitthvað. Ég pældi ekkert meira í því og bakkaði út og keyrði af stað. Ég snéri svo stýrinu til að keyra ekki á vegginn sem framundan var en nojts, bíllinn hlýddi mér ekki! Ég keyrði á kantinn því dekkin fylgdu ekki stýrinu og náði að bremsa áður en ég fór á vegginn. Ég fór út og skildi hvorki upp né niður í þessu einkennilega máli og út úr bílnum fyrir aftan mig kom maður sem svo heppilega vildi til að var bifvélavirki og maðurinn hennar Hjördísar sem vinnur með mér. Þarna datt ég aldeilis í lukkupottinn því hann kom og hjálpaði mér og var ekki lengi að sjá hvert vandamálið var, stýrismaskínan var ónýt og framdekkin vísuðu bæði út í sitthvora áttina - svona: \ /
Hjólin höfðu sumsé losnað frá stýrisendunum og þess vegna var ekki skrítið að bíllinn hlýddi mér ekki og ég keyrði á kant. Ég var alveg ringluð þarna og spurði hvernig svona gæti gerst og þá er þetta bara eitthvað gamalt slit sem hefði getað losnað hvenær sem er. Þar sem ég var á leiðinni upp á Akranes í skírn hugsaði ég með mér hvað ég var mikill lukkunnar pamfíll að vera ekki að keyra á 90km hraða á Kjalarnesinu þegar þetta gerðist því þá er mjög auðvelt að reikna út hvað hefði gerst, bíllinn hefði steypst fram fyrir sig, oltið og ég væri ekki lifandi.

Við þurftum að fá til liðs við okkur nokkra af erlendu bergi brotna til að koma bílnum úr alfaraleið og inn í stæði. Núna liggur Bláa hættan á maganum í Kringlunni og bíður eftir að vera toguð á haugana eða verkstæði, fer allt eftir því hvað kostar að gera við þetta.

Mér leið pínu eins og Ross í Friends, þegar hann lenti í ,,the near death experience” og var að hugsa um að lesa inn á símsvarann minn kveðju til mín um að minnast þessa augnabliks það sem eftir væri! ..ooooog muna eftir að kaupa frímerki! ;)

lyftaragella & afastelpa

Friday - 15.February 2008 3 komment

Við mæðgur komum við í vinnunni hjá pabba í gær á leið okkar heim úr okkar daglega starfi. Það var nú ekki lítill fögnuðurinn þegar hún sá afa sinn eins og alltaf. Ninja Tíbrá fékk að keyra lyftarann með afa og vildi sko alls ekki fara heim! Hún skríkti úr gleði og því miiiiður var ég ekki með myndavélina, hér eru myndir úr símanum - eins og sjá má er afi bestur og lyftarinn sko MEGA-skemmtilegur!

allir krakkar..

Wednesday - 13.February 2008 3 komment

Allir krakkar, allir krakkar er’í skessuleik,
Má ég ekki mamma með í leikinn þramma..

,,Kakkakakka, kakkakakka, sossusessu MAMMA!”

Ninja Tíbrá er sumsé alltaf að syngja þetta dásamlega lag og sleppir bara úr því sem ekki skiptir máli ;)

and then there was the snow..

Sunday - 10.February 2008 5 komment

Man einhver eftir ,,Vinabókunum” sem allir áttu í grunnskóla? Ég man allaveganna ægilega vel eftir þeim. Það var aðalmálið að skrifa í svoleiðis og fá alla til að skrifa í sína, þar átti maður að skilgreina nafn, heimili, systkini, uppáhalds bók, hverjum maður er skotinn í og uppáhalds mat - ef ég væri að fara að skrifa í svoleiðis bók núna - myndi ég klárlega setja Pekingönd sem uppáhalds matinn minn! Við elduðum svoleiðis í gær og vá, ég lokaði augunum, fékk gæsahúð og er ekki frá því að veröldin hafi snúist í smá stund inni í hausnum á mér, vellíðanin var slík!

Ég fann mína svona vinabók um daginn, frá því ég var í grunnskóla og þar voru gellurnar allar búnar að skrifa, allar búnar að setja Xxxxx fyrir þá sem þær voru skotnar í eftir því hversu margir stafir voru í nafninu þeirra - frekar hressandi! Ég var sko skotin í Jóhanni! Þetta var endalaust skemmtileg lesning, dagbók berts var vinsælasta bókin og ég fletti og las þetta og fannst þetta æði, þegar ég fletti bókinni fann ég merkilegustu færsluna af þeim öllum! Ég fékk GUÐJÓN YFIRBJÖRNS til að skrifa HAHAHAHA, hann var sko greinilega vinur minn þó svo hann hafi ALDREI lært að nafnið mitt, 10 ár mín í Grunnskólanum á Eskifirði! Hann las alltaf upp: ,,Anna er hún mætt?” og ég svaraði: ,,Já en ég heiti samt sko Anna SIGGA!” og hann sagði: ,,Já Anna mín, ég hef það í huga” og boraði endanum á gleraugunum í nebbann og eyrað og smakkaði. Ég lá hérna heima í hláturskasti að lesa þetta allt saman, Guðjón var jú skotinn í Auði á bókasafninu og skráði engin x fyrir það heldur setti nafnið - mjög djarfur ;)

Ég sit hérna heima í kotinu að hlusta á Death cab for cutie í gleðivímu (sökum stórbrotinnar tónlistar) að skoða myndir, rifja upp gamlar minningar og skemmti mér konunglega! Ég ákvað því að skella nokkrum frábærum inn frá síðustu dögum! =)

Pabbi & Ninja
Hér er ein af Fritz og Ninju Tíbrá þegar þau eru að knúsa dúkkukrúttið í regngallanum þegar Pabbinn kom frá París! =)

Næstu myndir eru allar frá æðislegum snjó-stuðdegi þegar við fórum í göngu með Dimmu (hundinn hennar Þórhildar) og borðuðum ægilegt magn af snjó! =)





Seytján mánaða í sjálfstæðisbaráttu

Friday - 8.February 2008 3 komment

Í dag er dálítið skringilegur dagur í mínu lífi. Í dag er settur dagur fyrir barnið sem ég varð ólétt af í byrjun maí í fyrra. Sumarið var ansi gott, ég var að verða mamma í annað sinn, leið stórkostlega - hefði ekki mögulega getað verið glaðari! Í lok sumars misstum við fóstur.

Dagurinn er búinn að vera mjög skrítinn, pínu doði í gangi, ákveðið sorgarferli.

Ninja Tíbrá, sólargeislinn minn er sautján mánaða í dag! Vá hvað tíminn líður hratt! Eftir mánuð er hún orðin eins og hálfs árs - ótrúlegt hvað þessi litla stórbrotna vera er búin að auðga líf mitt! Hún hljóp hérna um í allt kvöld í banastuði á brókinni einni fata (því hún er svo sjálfstæð að suma daga fer hún ekki í föt nema þau sem hún ÁKVEÐUR að klæða sig í og henni verður ekki haggað svo auðveldlega hehe) með töskuna sína á bakinu og söng ,,tassa tassa, tassa tassa, é tassa..” (taska taska - lagið úr Dora the Explorer). Algjööör dúlla! Svo vildi hún nú fá að sjóða allar duddurnar sínar og upphófst leitin mikla af snuddunum endalaust mörgu, hún var hérna eins og ægileg vinnukona, móð og másandi því hún hljóp og leitaði í hverjum króki og kima og reyndi að finna hverja einustu duddu og klappaði svo ægilega í hvert sinn sem hún fann duddu, kallaði á duddurnar og var hin alvarlegasta á svipinn þegar hún fékk ekkert svar! MESTA KRÚTTIÐ! =)

Kvöldið var svo skemmtilegt að hún var dauðuppgefin hér klukkan sjö og sagði: ,,mamma, pela lúlla!” og ég hlýddi prinsessunni, hitaði pelann og breiddi yfir gullið mitt sængina og hún var sofnuð á þrem mínútum.

Ninja tekur koppaþjálfuninni með sínum eigin karakter, kallar sko ekki allt ömmu sína og nennir sko ekkert að hafa þessa bleyjudruslu, vill bara brók takk! Í síðustu viku var ég að fara að vekja hana í morgunsárið til að ég kæmist í vinnuna og hún til dagmömmunnar og lyfti sænginni og tók eftir að hún var bleyjulaus! Þá hafði mín farið úr náttbuxunum, losað smellurnar á samfellunni og tekið af sér bleyjuna um miðja nótt!!! Ég átti ekki orð yfir þessu gáfaða barni mínu! Hún var að sjálfsögðu ekkert búin að pissa í rúmið, enda sannkallaður snillingur sem fer sínar eigin leiðir! ;)

Myndir! =)

Monday - 4.February 2008 8 komment

Fallegust í Fellsmúlanum
Ninja Tíbrá að borða skyr í Fellsmúlanum í lok nóvember. Síðasti skyrslagurinn áður en við fluttum í Grafarvoginn - heldur betur fjör!


Frænkurnar á aðfangadag
Ísabella Sól og Ninja Tíbrá, yndislegu frænkukrúttin, í banastuði í Glaðhúsinu á aðfangadag að halda uppi fjörinu!


jólakrútta
Á aðfangadag að stelast í skrautið á pökkunum frá Ömmu og Afa - NAMMI NAMM - frábært skraut!


5 gellur í Eyjum
5 gellur í Vestmannaeyjum milli jóla og nýárs! Ég, Herdís, Sunna, Ninja Tíbrá og Ísabella Sól að lesa bók í banastuði!


Grettudúlla
Litla krúttan að gretta sig í brúðkaupi í Eyjum milli jóla og nýárs!


Grallari
Litli grallarinn að prakkarast í brúðkaupinu, ótrúlega pen í fína kjólnum.


Singstar
Krúttulingurinn í Singstar heima hjá Sunnu og Oliver.


Málningakrútt
Gellan fékk sápumálningu til að leika með í baðinu frá jólasveininum á aðfangadag - vakti heldur betur lukku!


Snjókallarnir
Ísabella Sól og Ninja Tíbrá í snjónum í janúar - vorum úti á sleða og það var sko æði!


Brosmilda krúttan í baði
Brosmildust í baði!


dúkkuknús
Ninjukrúttið og dúkkukrúttið í baði! Æðislegar dúllur saman!


koss
Ninja sæta að kyssa dúkkuna sína - algjörlega yndislega fallegt!


Fallegust í heimi!
Frábært bros - falleg augu!


Svínið
Hvernig segir svínið? OINK OINK! (..og hljóð og svipur til að fullkomna lúkkið)


Sterkust
Hvað ertu sterk? SVOOOOOONA STERK!!!


hláturskast
Munur að eiga svona frábærlega skemmtilega mömmu ; )


Sólargeislinn í snjógallanum
Sólargeislinn minn í snjógallanum, úti að ,,blabbla” (þýðing: labba) í gær!



Klárasta barn fyrr og síðar!

Thursday - 24.January 2008 4 komment

Við mægður vorum að eignast litla frænku! Hún er guðdómlega falleg! Adda og Arnar voru sumsé að eignast gullmola númer 2. Anna Lilja (sem ég vil að sjálfsögðu meina að sé skírð í höfuðið á mér hehe) er því orðin stóra systir og allt gekk vel. Ég hlakka mikið til að fá að sjá gelluna en ég er sko algjörlega barnasjúk þessa dagana! Ég fór og kíkti um daginn með Tindi og Andra á litlu yndislegu Birtu Líf sem Nóri og Tinna voru að eignast. Við fengum að sjá hana alveg glænýja á spítalanum og að sjálfsögðu er ég ekki húsum hæf eins og allir vita, þegar lítil börn eru annars vegar. Ég missi mig alveg í barnababblinu og tárast úr gleði yfir þessu fallega kraftaverki sem fæðing barns er, ég er sumsé ALLS EKKI húsum hæf. Mér finnst svo ægilega stutt síðan litla gullið mitt var svona lítil en samt hefur svo mikið vatn runnið til sjávar síðan þá!

Í síðustu viku þegar við mæðgur vorum búnar að dúða okkur upp í ullarnærföt og snjógalla, tilbúnar að hlaupa út í bíl til að afþýða læsingarnar sem frjósa á hverri nóttu sagði dóttir mín: ,,mamma! HÁLKA!” Ég stóð á öndinni, gjörsamlega frá mér numin úr stolti yfir því að eiga án minnsta efa, gáfaðasta barn samtímans! Patrik var þá daginn áður (þegar við fórum út á sleða að renna) búinn að ítreka við Ninju Tíbrá að það væri hálka úti og því hættulegt að hlaupa! Núna í þessari viku sagði Ninja Tíbrá við Ísabellu Sól frænku sína (þegar Ísabella ætlaði að prakkarast og klifra í stiganum heima hjá ömmu og afa): ,,Bella! segi afi? NEI!” og otaði puttanum framan í Ísabellu skammarlega. Þetta þýddi sumsé Ísabella, hvað segir Afi? Hann segir NEI!” Því þær frænkur eru nú alveg með það á kristaltæru að ef þær klifra í stiganum þá segir afi þeirra nei við þær og bannar þeim að vera að prakkarapúkast. Ninja er nú reyndar ekkert betri en Ísabella þegar stiginn er annars vegar, það er bara svo ægilega spennandi að vera ,,púki” eins og Ninja segir þegar hún er að prakkarast.

Í gær kom ég heim frá Ísafirði, eftir að hafa verið þar veðurtept í vinnuferð. Ég fór á leiðið hennar mömmu og í heimsókn til Önnu og Katrínar. Þegar ég kom heim varð ég aðeins að fara í vinnuna og þar sem litla skotta er búin að vera með mikinn hósta og dagmamman var á leiðinni út með krílin, ákvað ég að fara með hana með mér í vinnuna. Þar lék daman á alls oddi, sneri gellunum í vinnunni um fingur sér, lét þær hlaupa eftir sódavatni og kexi og fékk að gera allt sem hún vildi. Þetta fannst henni að sjálfsögðu ekki leiðinlegt. Hún sagði síðan: ,,mamma - Ninna pissa” og ég fór með hana inn á klósett. Gellurnar í vinnunni, sem eiga flestar börn á aldri við mig, voru svo dolfallnar yfir snilldinni í barninu, að vera ekki orðin eins og hálfs árs og nánast hætt með bleyju! Þær áttu ekki orð! Hún er sumsé alltaf bleyjulaus hér um helgar og þegar hún er búin hjá dagmömmunni er það yfirleitt sama sagan, fer úr fötunum í sinni röð (segir við mig: úppa, húfa, skó, peysa, beyja og vill að ég aðstoði hana úr fötunum í þessari röð) og vill fá að spreyta sig á bleyjuleysinu. Hún er ekki jafn örugg með þetta hjá dagmömmunni en þetta kemur allt saman. Það fyndna er að ég hef ekkert verið að ýta undir þetta, hún kýs þetta sjálf, er farin að finna greinilega hvenær hún þarf á klóið og lætur vita hvað þar á að gera. Auðvitað gerast oft slys og auðvitað sest hún oft á klóið eða koppinn án þess að nokkuð gerist en það fylgir þessu bara og þau skipti verða alltaf færri og færri.

Steinunn og Siggi fengu svo nýju íbúðina sína í gær og veiii hvað þetta verður æðislegt hjá þeim! Ég er mikið spennt yfir þessu ferli öllu og langar helst af öllu að vera að kaupa íbúð handa okkur gellunum líka, með flottasta prinsessuherbergi fyrr og síðar! Ég þarf nú víst að safna aðeins og kaupa svo. Draumurinn er að kaupa í Smáranum og vera nálægt mömmu & co og Steinku & co.

Jæja, ég ætla að taka smá vinnusession hérna, ákvað að skella smá fréttum hér inn í hádeginu í staðinn fyrir að hlaupa út í búð því það er svo ægilega kalt! Ég fæ mér bara herba-sjeik í staðinn ;)

Pjása í Smáralind

Monday - 14.January 2008 6 komment

Ég sá gellu í Smáralindinni um daginn í ólöglega stuttu pilsi og gegnsæum nælonsokkabuxum. Hún var augljóslega ENGUM nærbuxum því þegar hún beygði sig fyrir framan okkur mæðgur sá ég ALLTOF mikið og var án minnsta efa með hneyslunarsvip aldarinnar þegar stelpuskjátan snéri sér við. Annaðhvort hefur hún hugsað: ,,OMG GMG hvað þessi er ógó fokkíng gömul og hallærisleg, hvað þykist hún vita um tísku?” eða: ,,úps, ætli það hafi sést of mikið?” því hún varð pínu einkennileg á svipinn og tuggði tyggjóið sitt eins og enginn væri morgundagurinn með augun opin alveg upp á gátt og horfði stíft á mig. Ég skammaðist mín ægilega fyrir þennan svip sem svo ósjálfrátt afmyndaði andlit mitt þegar hún var að snúa sér við. Mér leið eitt augnablik eins og ég sæti gegn mínum vilja með barnið mitt á strippbúllu með bjór og vindil í hönd en ekki að bíða með barnið mitt eftir afgreiðslu í banka með stútkönnu og snuð í hönd. Allt í einu fann ég til með dömunni sem var augljóslega í mikilli blöðrubólgu-hættu þar sem það var -2°c úti!

Mini-pils og sokkabuxur eða leggings eru einstaklega þægilegt kombó - ég nota svoleiðis mjög mikið, ég nota hins vegar líka nærbuxur og hef sokkabuxurnar það þykkar að þær eru ekki ,,sí-þrú.”

Hvernig er það, er þetta Britney-look bara algjörlega að gera sig og ég ægileg tepra eða er eðlilegt að mér misbjóði pjása í Smáralind?

« Fyrri síðaNæsta síða »